Beint í efni

15. fundur

29.10.2026
Skipulagsnefnd Garðabæjar

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

29.10.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ásgeir Sigurður Ágústsson - aðalmaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - varamaður
  • Agla Eir Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Einar Þór Einarsson - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2203422

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í 4. kafla greinargerðarinnar að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð með tillögum að viðbrögðum og svörum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri á umhverfissviði og Þráinn Hauksson frá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögum að viðbrögðum og svörum.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 1903374

02

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs. Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness sem nær til sama svæðis. Aðalskipulagsráðgjafi er Árni Ólafsson arkitekt hjá Teikna-Teiknistofu arkitekta. Tillagan er sett fram á einu blaði í A2 broti og á honum eru breytingaruppdrættir, greinargerð og umhverfismat.

Sú breyting hefur verið gerð frá forkynntri tillögu að landnotkunarreitur við Eyvindarholt, 1.11 Vþ minnkar úr 1,3 ha í 0,3 ha þar sem ekki er lengur gert ráð fyrir golfskála norðaustan Eyvindarholts né stækkunarmöguleika á gistihúsi á Eyvindarholti 1 yfir á land Eyvindarholts 2. Golfskáli verður inni á Íþ 1.07 og lega hans skilgreind í deiliskipulagi.

Helstu breytingar tillögunnar frá gildandi aðalskipulagi eru eftirfarandi:

- Útivistarstígur og reiðstígur norðan Bessastaða við suðurbakka Bessastaðatjarnar breyta um legu og tengingar.

- Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar.

- Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út.

- Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun.

- Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb

- Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund.

- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund. Ekki verður þó heimilt að reka þar veitingahús.

- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar og kallast Hlaðan.

- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður á landi Eyvindarholts 1.

- Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri.

- Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar.

- Hverfisvernd við Breiðabólstaðatjörn stækkar og nær einnig til Breiðabólstaðatúns.

- Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan landnotkunarreit fyrir hafnarsvæði vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu.

- Innan hverfisverndar verða ákvæði um gerð sjóvarnargarða og fráveitulagnar sem og gerð nýrra tjarna og hólma til eflingar fuglalífs.

- Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.

Skipulagsnefnd vísar tillögu aðalskiplagsbreytingar til auglýsingar í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal senda hana til athugunar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness.

Málsnúmer 1803108

03

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi. Gert grein fyrir þeim atriðum sem mótuð hafa verið í tillögunni með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í tillöguna á forkynningarstigi.

Tillögu vísað til áframhaldandi vinnslu hjá ráðgjöfum og umhverfissviði.





Málsnúmer 2606714

04

Sviðholt - merkjalýsing

Lögð fram tillaga að breyttum eignamörkum bæjartorfunnar að Sviðholti. Tillagan er fram komin í tengslum við merkjalýsingarferli sem unnið er að af landeigendum í samráði við umhverfissvið Garðabæjar.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2608272

05

Hafnarfjarðarvegur dsk frá Lyngási í Engidal

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar frá Lyngási í Engidal að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Málsnúmer 2406836

06

Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar, svæðis I og II að lokinni auglýsingu og skoðun.

Vísað til frekari úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Málsnúmer 1405080

07

Móar, endurskoðað deiliskipulag

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Móa að lokinni auglýsingu og skoðun.

Vísað til frekari úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Málsnúmer 2609257

08

Kot og Gesthúsasvæði. Deiliskipulag.

Skipulagsstjóri leggur fram tillögu að skipulagsverkefni sem felst í mótun deiliskipulags fyrir Kot og Gesthúsasvæði á Álftanesi. Skipulagssvæðið nær til íbúðarbyggðar við Hákotsvör, Gesthúsavör, Mýrarkot, Gerðakot, Þóroddarkot og Efstakot auk lands umhverfis Bjarnastaði og Gesthúss og opins svæðis við Sandskarð. Ekkert deiliskipulag telst í gildi innan svæðisins. Markmiðið er það sama og verið hefur á undangengnum árum að innan byggðar í Garðabæjar sé í gildi deiliskipulag í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í dag.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra um að móta deiliskipulag fyrir svæðið.

Málsnúmer 2610083

09

Hliðsvegur 5-7 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðskóga sem nær til lóðanna Hliðsvegar 5 (Sólbarð) og Hliðsvegar 7. Lóð númer 7 er óbyggð og hefur nýverið verið afmörkuð með merkjalýsingu. Samkvæmt drögum að deiliskipulagi hefur Höfðabraut verið nefnd Hliðsvegur frá Suðurnesvegi að Hliði og er stuðst við það heiti hér. Endanleg ákvörðum um heiti götunnar verður tekið í deiliskipulagsferli.

Heimilt er að reisa einbýlishús á lóðunum með nýtingarhlutfall 0.35, vegghæð 3 m og rishæð 5,7 sem er ein hæð og ris. Skilgreining nýtingarhlutfalls, hæðar og húsgerðar er til samræmis við hús í nágrenninu.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús við Miðskóga, Hlein, Hof, Gerði og Sólbarð til að vekja athygli á auglýsingunni.

Málsnúmer 2610056

10

Vetrarbraut 1-15. Dsk br

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem nær til lóðarinnar Vetrarbraut 11-13. Breytingin gerir ráð fyrir því að lóðinni verður skipt upp í tvær lóðir og byggingum er breytt þannig að þær eru áþekkar breytingum á deiliskipulaginu frá 2024. Umfang byggingarreits bílakjallara er stækkað. Spennistöð sem er á lóðinni er færð inn í bygginguna á nr. 13 sem spennistöð í byggingum annarra samkvæmt skipulagsskilmálum. Bílastæði á landi eru möguleg innan lóðar á nr. 13. Byggingarreitur fyrir Vetrarmýri 13 færist fjær Reykjanesbraut.

Umfang byggingarreits bílakjallara á lóðinni nr. 15 er breytt.

Botnlangagata út úr Vetrarbraut sem þjónar lóðum nr. 1-3, 5, 7 og 9 er breytt þannig að koma megi fyrir bílastæðum þvert á götu (90°). Við það færast gangstéttar inn á lóðir með þeim kröfum sem deiliskipulagið gerir í sambærilegum tilfellum.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 26102466

11

Víkurgata 29 - deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Víkurgata 29. Tillagan gerir ráð fyrir að afmarkaður sé byggingarreitur fyrir inngrafna geymslu norðan við núverandi byggingarreit.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 20, 22 og 27 sem og Keldugötu 15.

Málsnúmer 2606062

12

Vinastræti 18-26 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 og háholts að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2610010

13

Uppbygging útivistarstígs í Flatahrauni og grisjun skógar, innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdarleyfi

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi til Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs útivistarstígs og stofnstígs í gegnum Flatahraun í Urriðakotshrauni og grisjun skógar á því svæði.

Lögð fram bókun umhverfisnefndar. Framlögð gögn eru í samræmi við Deiliskipulag Urriðavatnsdala sem samþykkt var árið 2023.

Skipulagsnefnd tekur undir bókun umhverfisnefndar og beinir því til framkvæmdaraðila og umhverfissviðs Garðabæjar að vel verði staðið að upplýsingagjöf vegna framkvæmdanna sem eru í viðkvæmu umhverfi. Samráð verður haft við Náttúruverndarstofnun vegna framkvæmdanna eins og fram kemur í umsókn.

Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem er í samræmi við umsóknina og þau gögn sem henni fylgja.

Málsnúmer 26102678

14

Dalvegur 1. Breyting á Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040., nr. 1134/2026: Lýsing (Breyting á aðalskipulagi)

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við framlagða skipulags- og matslýsingu en áskilur sér rétt til að gera athugasemdir á síðari stigum ferlisins.

Málsnúmer 26102679

15

Silfursmári 1-7. Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040, nr. 1132/2026: Lýsing (Breyting á aðalskipulagi)

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við framlagða skipulags- og matslýsingu en áskilur sér rétt til að gera athugasemdir á síðari stigum ferlisins.

Málsnúmer 2608015F

16

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 14

lagt fram

16.1 - 2607017 - Vesturtún 54 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um staðsetningu 15 m2 geymsluskúrs í norðurhorni lóðar. Gildandi deiliskipulag Vesturtúns kveður ekki sérstaklega á um smáhýsi og gilda því ákvæði byggingarreglugerðar um umfang þeirra. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við staðsetningu smáhýsis sem uppfyllir ákvæði byggingarreglugerðar um umfang smáhýsa og er undanþegið byggingarleyfi ef það er nær lóðarmörkum að bæjarlandi en 3 metrar. Þó skal fjarlægð smáhýsis vera amk 50 cm frá lóðarmörkum og runnagróður koma þar á milli.
Öðrum atriðum sem fram koma í fyrirspurn varðandi land í fóstur eða jólaseríur í húsagötu er beint til umhverfissviðs.

16.2 - 2608096 - Kumlamýri 21-23 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um hugmynd að breytingu deiliskipulags sem nær til parhúsalóðarinnar Kumlamýri 21-23.
Fyrirspurn vísað tli umsagnar deiliskipulagshöfundar.

16.3 - 2606363 - Garðprýði 6 - Umsókn um byggingar-leyfi - Fl. 2

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 6 að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust, tillagan skoðast því samþykkt.

16.4 - 2601207 - Markarflöt 30 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

16.5 - 2608097 - Þorraholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um breikkun á innkeyrslu.
Fyrirspurn vísað til umsagnar gatnahönnuðar og umhverfissviðs.

16.6 - 2606716 - Útholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

16.7 - 2607018 - Útholt 13 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Uppdráttum vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

16.8 - 2406817 - Stekkholt 14 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram gögn sem fylgja umsólkn um byggingarleyfi. Um uppfærslu á áður samþykktum aðaluppdráttur er að ræða. Umsókn felur í sér heimild fyrir kaldri geymslu undir palli en utan byggingarreits. Þar sem köld geymsla er utan byggingarreits metur skipulagsstjóri innihald fyrirspurnar sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynnar skal eigandum Stekkholts 12, 16 og 43 sem og Vorbraut 15.

16.9 - 2607299 - Haustbraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Uppdráttum vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2609005F

17

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 15

lagt fram

17.1 - 2207098 - Kumlamýri 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á hæðarkóta á lóðarmörkum Kumlamýrar 13 sem liggur að landi Garðabæjar. Land Garðabæjar liggur hærra en hæðarblöð gera ráð fyrir. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu lóðar eins og lóðaruppdráttur sýnir, hvað hæð varðar.

17.10 - 2302010 - Lambamýri 1 (MHL.02)hús nr.1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir af lóðarhönnun við Lambamýri 1-3. Skipulagsstjóri vísar uppdráttum til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi þar sem um miklar breytingar er að ræða frá gildandi uppdráttum.

17.11 - 2101260 - Víkurgata 27 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir fyrir Víkurgötu 27 þar sem til að mynda lóðarhönnun hefur verið breytt og svalir stækkaðar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd hvað lóðarhönnun varðar. Hvað svalir varðar þá segir í greinargerð deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts að "einstakir byggingarhlutar, svo sem þakskegg, skyggni, gluggafrágangur, svalir og sólpallar mega skaga út fyrir byggingarreit, þar sem aðstæður á lóð leyfa, að mati byggingarfulltrúa, m.t.t. stærðar lóðar, fjarlægðar á milli húsa og þess háttar". Skipulagsstjóri metur það svo að í þessu tilviki er nálægð við nágrannalóð óveruleg og gerir því ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.

17.12 - 2606363 - Garðprýði 6 - Umsókn um byggingar-leyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að undangenginni deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.

17.2 - 2207097 - Kumlamýri 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á hæðarkóta á lóðarmörkum Kumlamýrar 15 sem liggur að landi Garðabæjar. Land Garðabæjar liggur hærra en hæðarblöð gera ráð fyrir. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu lóðar eins og lóðaruppdráttur sýnir, hvað hæð varðar.

17.3 - 2608096 - Kumlamýri 21-23 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á parhúsalóðinni Kumlamýri 21-23 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Í breytingu felst að byggingarreitum parhússins er speglað.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum parhúsalóðanna Kumlamýrar 17-19 og 25-27.

17.4 - 2601520 - Stekkholt 18 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á lóðarhönnun. Skipulagsstjóri getur ekki fallist á framlagðar breytingar þar sem þær hafa áhrif á aðliggjandi lóð sem hefur ekki enn verið ráðstafað.

17.5 - 2607168 - Vífilsstaðavegur Flataskó - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi um tæknirými við æfingavöll við Ásgarðssvöll sem hýsa á búnað vegna æfingarvallar. Hæð mannvirkis verður 156 cm frá yfirborði að austanverðu auk 112 cm gagnsærrar fallvarnar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis þar sem að um búnað er að ræða sem er eðlilegur þáttur í uppbyggingu æfingarvallar sem á sér stoð í deiliskipulagi.

17.6 - 2606198 - Iðnbúð 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Iðnbúð 3 sem fellst í því að byggt er ofan á einnar hæðar hluta hússins. Skipulagsstjóri vísar umsókn til skoðunar hjá skipulagshöfundi.

17.7 - 2606074 - Hönnun - Útboð - Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi

Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi vegna gatnagerðar á Vífilsstaðavegi, frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi. Verkið felur í sér jarðvegsskipti, gerð tveggja hringtorga við Vetrarbraut, malbikun gatna og stíga, hellulögn og lagningu veitna og lýsingar. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

17.8 - 2606315 - Melás 9 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn um smáhýsi við Melás 11. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við staðsetningu og stærð smáhýsis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

17.9 - 2609119 - Vesturtún 49a - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um smáhýsi á lóð við Vesturtún 49a sem nær út fyrir lóð og inn á opið svæði í eigu Garðavæjar. Skipulagsstjóri getur ekki fallist á 15 m² smáhýsi, þar sem nú þegar er smáhýsi á lóð Vesturtúns 49a og eru þá samanlagðir m² orðnir meira en 15 m² líkt og byggingarreglugerð kveður á um.

Málsnúmer 2609039F

18

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 16

lagt fram

18.1 - 2604150 - Útboð vegna Gatnagerðar í Arnarlandi

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdarleyfi vegna gatnagerðar í Arnarlandi.

Gatnagerðin snýr að gatna- og stígagerð, lagningu fráveitu-, neysluvatns-, hitaveitu-, rafveitu- og fjarskiptalagna auk landmótunar í Arnarlandi. Lögð fram útboðsgögn frá VSB verkfræðistofu dags maí 2026. (Útboðsteikniningar og útboðs og samningsskilmálar)

Einnig er óskað eftir leyfi til efnisvinnslu á buðarhæfu efni og er gert ráð fyrir að verktaki geri sérstakar ráðstafanir til að draga úr hljóðmengun sem slík efnisvinnsla kann að valda, þ.m.t. með hljóðvörnum eftir því sem þörf krefur.

Staðsetning efnisvinnslu og efnishaugi kemur fram á skýringamynd.

Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis fyrir ofangreindu sem eru í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2609041F

19

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 17

lagt fram

19.1 - 2606198 - Iðnbúð 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á iðnaðarhúsinu Iðnbúð 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2609051F

20

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 18

lagt fram

20.1 - 26102500 - Fjarskiptamastur . Suðurnesv. - Höfðabraut - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi á fjarskiptasendi við Suðurnesveg að undangengnu deiliskipulagsferli. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

20.10 - 2607068 - Garðatorg 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi við Garðartorg 3. Um breytta notkun á rými er að ræða.
Í dag er tannlæknastofa starfandi í rýminu en ósk er um að gera tvær íbúðir úr því rými. Skipulagsstjóri getur ekki tekið afstöðu til málsins nema að afstaða húsfélags liggur fyrir. Skipulagsstjóri bendir jafnframt á að aðkoma að báðum íbúðum skal vera frá Hrísmóum en ekki göngugötu Garðatorgs.

20.11 - 2607177 - Garðatorg 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi við Garðartorg 3. Um breytta notkun á rými er að ræða.
Í dag er tannlæknastofa starfandi í rýminu en ósk er um að gera tvær íbúðir úr því rými. Skipulagsstjóri getur ekki tekið afstöðu til málsins nema að afstaða húsfélags liggur fyrir. Skipulagsstjóri bendir jafnframt á að aðkoma að íbúð skal vera frá Hrísmóum en ekki göngugötu Garðatorgs.

20.12 - 2211061 - Smáraflöt 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem sýna hæð veggja við lóðarmörk. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við hæð veggja.

20.13 - 2609149 - Gilsbúð 7 - Umsókn um byggingareyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Sótt er um breytingar innan húss, til að mynda er sett inn nýtt milliloft. Nýtingarhlutfall fer upp í 0,56 en deiliskipulag kveður á um að nýtingarhlutfall má vera allt 0,5. Byggður flötur á lóð breytist aftur á móti ekki. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað aukningu á nýtingarhlutfalli varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

20.14 - 2510437 - Háhæð 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Háhæð 10. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

20.15 - 2409217 - Stekkholt 22 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram lóðaruppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.

20.16 - 2609028 - Vífilsstaðavegur áhaldahús - Golfklúbbur Garðab - Umsókn um byggingareyfi - Fl. 3

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu þjónustumiðstöðvar GKG ásamt geymsluskúrum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Yfirfara þarf uppdrætti þegar hæðarblöð liggja fyrir.

20.17 - 2607007 - Suðurhraun 10 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl.2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að undagenginni deiliskipulagsbreytingu ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

20.18 - 2610086 - Brekkugata 8 - stækkun lóðar - fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn þar sem lóðarhafi við Brekkugötu 8 óskar eftir stækkun á lóð. Eftirfarandi breyting kallar á breytingu á deiliskipulags Urriðaholts - norðurhlati 3. áfangi. Skipulagsstjóri vísar fyrirspurn til umsagnar hjá skipulagshöfundi.

20.19 - 2610022 - Kauptún 4 - Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við staðsetningu bílastæða fyrir deilibíla á lóð Kauptúns 4.

20.2 - 2610168 - Víðiholt 3 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á lóðaruppdráttum við Víðiholt 3. Framlagðir uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við breytingar á sérafnotaflötum.

20.20 - 2608096 - Kumlamýri 21-23 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Kumlamýrar sem nær til lóðarinnar Kumlarmýrar 21-23 að lokinni grenndarkynningu.

Engar athugasemdir bárust, tillagan skoðast því samþykkt.

20.21 - 2609344 - Útboð - Breiðamýri Stígagerð

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdarleyfi fyrir stígagerð og yfirborðsfrágang á svæði 1 í Breiðamýri á Álftanesi.

Framkvæmdin felur í sér:

-Malbikaða göngustíga

-Stígalýsingu

-Áningarstaði og leiksvæði með bekkjum, leiktækjum og vatnspósti

-Gróðursetningu og frágang yfirborðs

Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis fyrir ofangreindu sem eru í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

20.3 - 2605137 - Holtstún 16 - Smáhýsi

Lögð fram fyrirspurn um garðhús á lóð við Holtstún 16. Skipulagsstjóri vísar fyrirspurn til afgreiðslu þegar ákvæði deiliskipulags Norðurness um smáhýsi á lóð liggur fyrir.

20.4 - 2609424 - Kjarrprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Kjarrprýði 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

20.5 - 2607298 - Borgarás 10 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1

Lögð fram endurbætt tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem nær til lóðarinnar Borgarás 10.

Tillagan er sett fram á tveimur uppdráttum, annarsvegar breytingaruppdrætti deiliskipulags og skýringaruppdrætti sem sýnir útlit byggingar til vesturs, norðurs og suðurs og grunnmyndir neðri hæðar og efri hæðar sem eru í samræmi við aðaluppdrætti sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.

Á breytingaruppdrætti er gert ráð fyrir byggingarreit við vesturgafl hússins og innan hans verða útitröppur fyrir aðgengi að íbúð á efri hæð heimilaðar. Stækkaður byggingarreitur nær einnig til þess hluta hússins sem er utan byggingarreits að vestanverðu.
Auk þess kemur eftirfarandi fram á uppdrætti: „Ef nústandandi hús verður fjarlægt skal nýbygging rísa innan byggingarreits eins og hann kemur fram á þessum uppdrætti fyrir breytingu og á mæliblaði 22.5774. útgefnu í janúar 2024“.

Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu Hraunsholts vestra (Ásar) í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Borgarási 4,6,8 og 12 og Melási 7,9 og 11.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

20.6 - 2609522 - Pikkolo - Hafnarfjarðarvegur Olís - Umsókn um stöðuleyfi

Lögð fram umsókn um stöðuleyfi vegna Pikkolo afhendingastöðvar við Olís við Hafnarfjarðarveg í bæjarlandi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu stöðuleyfis til 12 mánaða.

20.7 - 26102467 - Bílastæði við Strandveg 18-20 og Norðurbrú 3-5 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um bílastæði fyrir hreyfihamlaða við Strandveg 18-20 og Norðurbrú 3-5. Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

20.8 - 2609177 - Blikanes 10 - Umsókn um byggingarheimild - Fl.1

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Um breytingu á innra skipulagi er að ræða. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

20.9 - 2605411 - Teistunes 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lagðir fram uppfærðir uppdrættir að undangenginni grenndarkynningu, 4 athugasemdir bárust. Uppfærðir uppdrættir skýra betur frá útliti og ásýnd fyrirhugaðrar byggingar við Teistunes 1.
Skipulagsstjóri vísar tillögunni til grenndarkynningar að nýju í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Kríunesi 1 og 4, Súlunesi 3 og 5 og Þernunesi 3 og 5. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.