Uppbygging útivistarstígs í Flatahrauni og grisjun skógar, innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdarleyfi
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
4 (26-30). fundur
Umhverfisnefnd tekur jákvætt í fyrirhugaða uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni í samræmi við gildandi deiliskipulag. Nefndin leggur áherslu á að framkvæmdir verði unnar af nærgætni, með tilliti til verndargildis svæðisins og aðgengis almennings.
Nefndin tekur jafnframt undir áform um upplýsingaskilti við báða enda stígsins og leggur áherslu á að þar verði miðlað fræðslu um náttúru og verndargildi svæðisins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
14. fundur
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi til Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs útivistarstígs og stofnstígs í gegnum Flatahraun í Urriðakotshrauni og grisjun skógar á því svæði. Framlögð gögn eru í samræmi við Deiliskipulag Urriðavatnsdala sem samþykkt var árið 2023.
Skipulagsnefnd vísar umsókn til kynningar í umhverfisnefnd.