Beint í efni

4 (26-30). fundur

14.10.2026
Umhverfisnefnd Garðabæjar

4 (26-30). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

14.10.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jón Þór Eggertsson - formaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Jóhann Jónsson - varamaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Anna Gréta Hafsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2610010

01

Uppbygging útivistarstígs í Flatahrauni og grisjun skógar, innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdarleyfi

Umhverfisnefnd tekur jákvætt í fyrirhugaða uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni í samræmi við gildandi deiliskipulag. Nefndin leggur áherslu á að framkvæmdir verði unnar af nærgætni, með tilliti til verndargildis svæðisins og aðgengis almennings.

Nefndin tekur jafnframt undir áform um upplýsingaskilti við báða enda stígsins og leggur áherslu á að þar verði miðlað fræðslu um náttúru og verndargildi svæðisins.

Málsnúmer 2610084

02

Veiðikortið 2027

Umhverfisnefnd tekur jákvætt í áframhaldandi samstarf við Veiðikortið árið 2027.

Málsnúmer 2610132

03

Útikennsla í friðlandi Vífilsstaðavatns 2026

Umhverfisnefnd fagnar góðu starfi við útikennslu við Vífilsstaðavatn og jákvæðum vísbendingum um ástand lífríkis vatnsins. Nefndin hvetur til áframhaldandi samstarfs við skólana og færir Bjarna Jónssyni, fiskifræðingi, garðyrkjudeild Garðabæjar og skólunum sérstakar þakkir fyrir þeirra góða samstarf.

Málsnúmer 2609083

04

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030)

Umhverfisnefnd ræddi helstu áherslur og verkefni á sviði umhverfismála í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027-2030.