Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030)
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
38. (2333). fundur
Bæjarstjóri og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, fóru almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2027 og fóru yfir forsendur, framkvæmdayfirlit og gjaldskrár.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030) til fyrri umræðu í bæjarstjórn samkvæmt 3.mgr. 62.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2.mgr. 40.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða fer fram í bæjarstjórn fimmtudaginn 5. nóvember 2026.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (2332). fundur
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að áætlunum málasviða, vegna vinnslu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2027. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á fundi bæjarráðs 3. nóvember 2026 og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 5. nóvember 2026.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
4 (26-30). fundur
Umhverfisnefnd ræddi helstu áherslur og verkefni á sviði umhverfismála í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027-2030.
Bæjarráð Garðabæjar
04
33. (2228). fundur
Bæjarráð tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 um mikilvægi þess að sveitarfélög, ríki og aðrir opinberir aðilar axli sameiginlega ábyrgð á því að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta og auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi.
Garðabær er reiðubúinn að leggja sitt af mörkum til þessa sameiginlega átaks. Við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2027 verði því miðað við að hækkun almennra gjaldskráa sveitarfélagsins verði að hámarki 2,5%, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Með því heldur Garðabær aftur af gjaldskrárhækkunum þrátt fyrir kostnaðarhækkanir í rekstri sveitarfélagsins og leggur þannig sitt af mörkum til að verja kaupmátt heimilanna, draga úr verðbólguþrýstingi og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta.
Með ákvörðun bæjarráðs er gengið út frá því að kjarasamningar haldi og að ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í hinu sameiginlega átaki með því að takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin.
Bæjarráð leggur áherslu á að árangur í baráttunni við verðbólgu byggist á samstilltum aðgerðum ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins og að kostnaði vegna nýrra verkefna eða aukinna skyldna sveitarfélaga verði ekki velt yfir á sveitarfélög án fullnægjandi fjármögnunar.
Bæjarráð Garðabæjar
05
30. (2225). fundur
Forsendur og vinnuferlar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 (2027-2030) lagðar fram til kynningar.
Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði fyrir lok október 2026 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 5. nóvember 2026. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 3. desember 2026.
Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2027.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.