Beint í efni

37. (2332). fundur

27.10.2026
Bæjarráð Garðabæjar

37. (2332). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

27.10.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2609083

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030)

Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að áætlunum málasviða, vegna vinnslu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2027. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á fundi bæjarráðs 3. nóvember 2026 og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 5. nóvember 2026.

Málsnúmer 2609373

02

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kröfu um frestun réttaráhrifa í máli UUA2609012, dags. 21.10.26.

Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2609012, varðandi kæru á ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 3. september 2026 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir veislusal til útleigu á spildu A úr landi Grundar á Álftanesi. Úrskurðarorð eru að hafna kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar bæjarstjórnar.

Málsnúmer 26102619

03

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi 24.10.26.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna brúðkaups 24. október 2026.

Bæjarráð gerir með 4 atkvæðum (BF,MB,HBE,SS - ÞÞ sat hjá) ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.

Málsnúmer 26102649

04

Bréf UMF Stjörnunnar varðandi afnot af íþróttahúsinu Mýrinni fyrir Þorrablót Stjörnunnar 2027, dags. 22.10.26.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.