Beint í efni

33. (2228). fundur

29.09.2026
Bæjarráð Garðabæjar

33. (2228). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

29.09.2026

Kl. 08:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Birkir Guðlaugsson - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2304477

01

Hnoðraholt - úthlutun og sala lóða.

Bæjarstjóri kynnti drög að úthlutunarreglum og úthlutunarskilmálum varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti suður - háholti.

Annars vegar er um að ræða byggingarrétt lóða í almennri sölu og hins vegar til byggingarsamvinnufélaga sem uppfylla ákvæði laga nr. 153/1998 um byggingarsamvinnufélög.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ljúka við gerð úthlutunarreglna og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti suður - háholti og leggja fyrir bæjarráð til afgreiðslu á fundi 6. október 2026.

Málsnúmer 2609083

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030).

Bæjarráð tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 um mikilvægi þess að sveitarfélög, ríki og aðrir opinberir aðilar axli sameiginlega ábyrgð á því að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta og auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi.

Garðabær er reiðubúinn að leggja sitt af mörkum til þessa sameiginlega átaks. Við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2027 verði því miðað við að hækkun almennra gjaldskráa sveitarfélagsins verði að hámarki 2,5%, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

Með því heldur Garðabær aftur af gjaldskrárhækkunum þrátt fyrir kostnaðarhækkanir í rekstri sveitarfélagsins og leggur þannig sitt af mörkum til að verja kaupmátt heimilanna, draga úr verðbólguþrýstingi og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta.

Með ákvörðun bæjarráðs er gengið út frá því að kjarasamningar haldi og að ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í hinu sameiginlega átaki með því að takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin.

Bæjarráð leggur áherslu á að árangur í baráttunni við verðbólgu byggist á samstilltum aðgerðum ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins og að kostnaði vegna nýrra verkefna eða aukinna skyldna sveitarfélaga verði ekki velt yfir á sveitarfélög án fullnægjandi fjármögnunar.

Málsnúmer 2609504

03

Útboð - Þjónusta við gatnalýsingu í Garðabæ 2027-2030.

Lögð fram verklýsing vegna Þjónusta og viðhalds gatnalýsingar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2609427

04

Erindi Alþingis varðandi frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 5. mál, dags. 17.09.26.

Lagt fram erindi nefnda- og greiningarsviðs Alþingis vegna frumvarps til nýrra Sveitarstjórnarlaga.



Bæjarráð felur bæjarstjóra að árétta sjónarmið Garðabæjar sem fram komu í umsögn Garðabæjar dags. 20. mars 2026, um fyrirhugaðar breytingar á sveitarstjórnarlögum.

Málsnúmer 2609525

05

Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um leikskóla, 80. mál, dags. 24.09.26.

Lagt fram erindi nefnda- og greiningarsviðs Alþingis vegna frumvarps til breytingar á lögum um leikskóla.

Málsnúmer 2609539

06

Bréf innviðaráðuneytisins um minningardag fórnarlamba umferðarslysa.

Lagt fram bréf innviðaráðuneytisins þar sem tilkynnt er um að árlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verði haldinn sunnudaginn 15. nóvember 2026.