30. (2225). fundur
30. (2225). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
08.09.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Forsendur og vinnuferli fjárhagsáætlunar Garðabæjar 2027 (2027-2030).
Forsendur og vinnuferlar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 (2027-2030) lagðar fram til kynningar.
Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði fyrir lok október 2026 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 5. nóvember 2026. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 3. desember 2026.
Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2027.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
02
Opnun tilboða í verkið - Eftirlit: Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi.
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Eftirlit: Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi":
1. VSÓ Ráðgjöf ehf., kt. 27.560.000 (101,9%).
2. Hnit verkfræðistofa, kr. 24.373.440 (90,1%).
3. Verkís hf., kr. 26.722.930 (98,8%).
4. Strendingur ehf., kr. 23.608.000 (87,3%).
5. Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf., kr. 20.782.400 (76,8%).
6. VSB Verkfræðistofa, kr. 25.994.000 (96,1%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 27.040.0000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar, að fjárhæð kr. 20.782.400, sem er 76,8% af kostnaðaráætlun.
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra fræðslu- og frísundasviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
03
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi þann 05.09.26.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna brúðkaups 5. september 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.
04
Drög að stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga til næstu fjögurra ára.
Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030 lögð fram.
Fylgiskjöl
05
Skipulagsmál á Arnarnesi.
Erindi vegna stígamála, búsvæðaverndar Skerjafjarðar á Arnarnesi rædd.
Bæjarráð vísar erindunum til skoðunar á umhverfissviði og til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
06
Beiðni íbúa í Urriðaholti um afgirt hundasvæði, dags 29.08.26.
Lagður fram undirskriftarlisti vegna afgirts leiksvæðis fyrir hunda innan Garðabæjar.
Afgirt svæði fyrir hunda er við Garðahraunsveg (gamla Álftanesveg) og opið svæði fyrir hunda í landi Bala.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á umhverfissviði.
07
Tilnefningar í stjórn og stefnuráð Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Stellu Stefánsdóttir í stjórn Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Jón Þór Eggertsson í stefnuráð Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.