Beint í efni

38. (2333). fundur

03.11.2026
Bæjarráð Garðabæjar

38. (2333). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.11.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2609083

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030)

Bæjarstjóri og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, fóru almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2027 og fóru yfir forsendur, framkvæmdayfirlit og gjaldskrár.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030) til fyrri umræðu í bæjarstjórn samkvæmt 3.mgr. 62.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2.mgr. 40.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða fer fram í bæjarstjórn fimmtudaginn 5. nóvember 2026.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

Málsnúmer 1903374

02

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (BF, MB, HBE, SS - ÞÞ situr hjá) að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs. Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness sem nær til sama svæðis. Aðalskipulagsráðgjafi er Árni Ólafsson arkitekt hjá Teikna-Teiknistofu arkitekta. Tillagan er sett fram á einu blaði í A2 broti og á honum eru breytingaruppdrættir, greinargerð og umhverfismat.

Sú breyting hefur verið gerð frá forkynntri tillögu að landnotkunarreitur við Eyvindarholt, 1.11 Vþ minnkar úr 1,3 ha í 0,3 ha þar sem ekki er lengur gert ráð fyrir golfskála norðaustan Eyvindarholts né stækkunarmöguleika á gistihúsi á Eyvindarholti 1 yfir á land Eyvindarholts 2. Golfskáli verður inni á Íþ 1.07 og lega hans skilgreind í deiliskipulagi.

Helstu breytingar tillögunnar frá gildandi aðalskipulagi eru eftirfarandi:

- Útivistarstígur og reiðstígur norðan Bessastaða við suðurbakka Bessastaðatjarnar breyta um legu og tengingar.

- Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar.

- Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út.

- Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun.

- Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb

- Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund.

- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund. Ekki verður þó heimilt að reka þar veitingahús.

- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar.

- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður á landi Eyvindarholts 1.

- Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri.

- Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar.

- Hverfisvernd við Breiðabólstaðatjörn stækkar og nær einnig til Breiðabólstaðatúns.

- Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan landnotkunarreit fyrir hafnarsvæði vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu.

- Innan hverfisverndar verða ákvæði um gerð sjóvarnargarða og fráveitulagnar sem og gerð nýrra tjarna og hólma til eflingar fuglalífs.

- Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.

Skipulagsnefnd vísði tillögu aðalskiplagsbreytingar til auglýsingar í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal senda hana til athugunar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness.

Málsnúmer 2606714

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breyttum eignamörkum bæjartorfunnar að Sviðholti í tengslum við merkjalýsingarferli.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breyttum eignamörkum bæjartorfunnar að Sviðholti. Tillagan er fram komin í tengslum við merkjalýsingarferli sem unnið er að af landeigendum í samráði við umhverfissvið Garðabæjar.

Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2610010

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsefndar frá fundi 29. október 2029 varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi til Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs útivistarstígs og stofnstígs í gegnum Flatahraun í Urriðakotshrauni og grisjun skógar á því svæði. Framlögð gögn eru í samræmi við Deiliskipulag Urriðavatnsdala sem samþykkt var árið 2023.

Málið var kynnt á fundi umhverfisnefndar 14.október 2026.

Málsnúmer 26102466

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vestur vegna lóðarinnar við Víkurgötu 29.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Víkurgata 29. Tillagan gerir ráð fyrir að afmarkaður sé byggingarreitur fyrir inngrafna geymslu norðan við núverandi byggingarreit.

Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 20, 22 og 27 sem og Keldugötu 15.

Málsnúmer 2610083

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðskóga vegna lóðanna við Hliðsveg 5-7.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðskóga sem nær til lóðanna Hliðsvegar 5 (Sólbarð) og Hliðsvegar 7. Lóð númer 7 er óbyggð og hefur nýverið verið afmörkuð með merkjalýsingu. Samkvæmt drögum að deiliskipulagi hefur Höfðabraut verið nefnd Hliðsvegur frá Suðurnesvegi að Hliði og er stuðst við það heiti hér. Endanleg ákvörðum um heiti götunnar verður tekið í deiliskipulagsferli.

Heimilt er að reisa einbýlishús á lóðunum með nýtingarhlutfall 0.35, vegghæð 3 m og rishæð 5,7 sem er ein hæð og ris. Skilgreining nýtingarhlutfalls, hæðar og húsgerðar er til samræmis við hús í nágrenninu.

Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús við Miðskóga, Hlein, Hof, Gerði og Sólbarð til að vekja athygli á auglýsingunni.

Málsnúmer 2610056

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 11-13, ásamt bílastæðum á landi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem nær til lóðarinnar Vetrarbraut 11-13. Breytingin gerir ráð fyrir því að lóðinni verður skipt upp í tvær lóðir og byggingum er breytt þannig að þær eru áþekkar breytingum á deiliskipulaginu frá 2024. Umfang byggingarreits bílakjallara er stækkað. Spennistöð sem er á lóðinni er færð inn í bygginguna á nr. 13 sem spennistöð í byggingum annarra samkvæmt skipulagsskilmálum. Bílastæði á landi eru möguleg innan lóðar á nr. 13. Byggingarreitur fyrir Vetrarmýri 13 færist fjær Reykjanesbraut.

Umfang byggingarreits bílakjallara á lóðinni nr. 15 er breytt.

Botnlangagata út úr Vetrarbraut sem þjónar lóðum nr. 1-3, 5, 7 og 9 er breytt þannig að koma megi fyrir bílastæðum þvert á götu (90°). Við það færast gangstéttar inn á lóðir með þeim kröfum sem deiliskipulagið gerir í sambærilegum tilfellum.

Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2304477

08

Opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður - háholt.

Lögð voru fram 454 tilboð í óopnuðum umslögum í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti, sbr. tilkynningu um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti suður - háholti.

Öll tilboð voru móttekin fyrir kl. 12:00, föstudaginn 30. október 2026.

Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða.

Tilboð í raðhúsalóðir 57.

Tilboð í einbýlishúsalóðir 394.

Tilboð í raðhúsalóðir til byggingarsamvinnufélaga 3.

Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu og kynningar á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 10. nóvember 2026.