16. (986). fundur
16. (986). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.11.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Anna Ragnheiður Möller - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Ýmir Örn Finnbogason - varabæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - bæjarfulltrúi
- Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
- Jón Þór Eggertsson - bæjarfulltrúi
- Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Anna Ragnheiður Möller, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. október 2026 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/10 ´26.
Fundargerðin sem er 16. tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.2 - 2507256 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Viðauki nr. 1
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026 samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 1:
Fræðslumál.
Samtals er lagður til kr. 365.000.000 kostnaðarauka á fræðslusviði sbr. neðangreinda sundurliðun:
Sjálfstætt starfandi leikskólar, kr. 162.000.000.
Bæjarreknir leikskólar, kr. 203.000.000.
Samtals kr. 365.000.000
Bruna og almannavarnir - sjóvarnargarðar.
Samtals er lagður til kr. 10.000.000 kostnaðarauki vegna endurbóta á sjóvarnargörðum á Álftanesi:
07440-4520 Sjóvarnargarðar kr. 10.000.000.
Samtals kr. 10.000.000.
Garðahús félagsíbúðir.
Samtals er lagður til kr. 8.000.000 kostnaðarauki vegna félagslegra íbúða og nauðsynlegs viðhaldas.
57110-4502 Viðhald íbúða kr. 8.000.0000.
Samtals kr. 8.000.000.
Kostnaðarauki samtals 383.000.000
383.000.000
Fjármögnun
21870-7179 Varasjóður -200.000.000
00010-0021 Útsvar -84.000.000
Lækkun á rekstrarafgangi -99.000.000
Samtals -383.000.000
Skipting lántöku frá júní 2026 milli A og B hluta.
Lagt er til að lán sem tekið var með skuldabréfaútboði í júní 2026, að fjárhæð kr. 1.068.000.000, skiptist þannig á milli A og B hluta:
53,2% á A-hluta, eða kr. 569.000.000.
46,8% á B-hluta, eða kr. 500.000.000.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026 samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 1:
Fræðslumál.
Samtals er lagður til kr. 365.000.000 kostnaðarauki á fræðslusviði sbr. neðangreinda sundurliðun: Sjálfstætt starfandi leikskólar, kr. 162.000.000. Bæjarreknir leikskólar, kr. 203.000.000. Samtals kr. 365.000.000
Bruna og almannavarnir - sjóvarnargarðar.
Samtals er lagður til kr. 10.000.000 kostnaðarauki vegna endurbóta á sjóvarnargörðum á Álftanesi: 07440-4520 Sjóvarnargarðar kr. 10.000.000. Samtals kr. 10.000.000.
Garðahús félagsíbúðir.
Samtals er lagður til kr. 8.000.000 kostnaðarauki vegna félagslegra íbúða og nauðsynlegs viðhalds. 57110-4502 Viðhald íbúða kr. 8.000.0000. Samtals kr. 8.000.000.
Kostnaðarauki samtals 383.000.000
Fjármögnun 21870-7179
Varasjóður -200.000.000 00010-0021
Útsvar -84.000.000
Lækkun á rekstrarafgangi -99.000.000
Samtals -383.000.000
Skipting lántöku frá júní 2026 milli A og B hluta. Lagt er til að lán sem tekið var með skuldabréfaútboði í júní 2026, að fjárhæð kr. 1.068.000.000, skiptist þannig á milli A og B hluta: 53,2% á A-hluta, eða kr. 569.000.000. 46,8% á B-hluta, eða kr. 500.000.000.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/10 ´26.
Fundargerðin sem er 4.tl. er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð bæjarráðs frá 3/11 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans situr hjá við þessa afgreiðslu. Við teljum tillöguna innihalda þætti sem ganga illa upp saman og erum ósannfærð um að skipulagið sé til bóta fyrir Álftanes og Álftnesinga, en erum því ekki mótfallin að tillagan verði auglýst.
Reiðstígur sem liggur þétt við golfvöll, sem er byggður á varpsvæði fugla, sem verður skorinn í sundur af vegi sem umferð mun þyngjast um vegna íbúabyggðar, sem á að rísa á landi sem þarf að hækka verulega vegna flóðahættu, veislusalur í nánd við þessa nýju byggð sem rís langt frá skólum, íþróttasvæði og félagsstarfi eldra fólks.
Með tillögunni er gerð tilraun til þess að gera öllum hagaðilum til geðs, fyrir utan þá íbúa sem búa á svæðinu nú þegar, en við teljum að lokaútkoman verði sú að enginn verði fyllilega ánægður. Svæðið verður þannig hvorki frábært til búsetu, golfs, hestamennsku, veitingareksturs né fyrir náttúrunnendur. Við hvetjum íbúa á svæðinu og áhugafólk um skipulag á Álftanesi til þess að senda inn ábendingar og athugasemdir."
Björg Fenger ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi, 4.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi og 8.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður - háholt.
Stella Stefánsdóttir ræddi 8.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður - háholt.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 4.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi og 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.
Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og 8.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður - háholt.
Jón Þór Eggertsson ræddi 4.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.
Fundargerðin sem er 8.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
3.2 - 1903374 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (BF, MB, HBE, SS - ÞÞ situr hjá) að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs. Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness sem nær til sama svæðis. Aðalskipulagsráðgjafi er Árni Ólafsson arkitekt hjá Teikna-Teiknistofu arkitekta. Tillagan er sett fram á einu blaði í A2 broti og á honum eru breytingaruppdrættir, greinargerð og umhverfismat.
Sú breyting hefur verið gerð frá forkynntri tillögu að landnotkunarreitur við Eyvindarholt, 1.11 Vþ minnkar úr 1,3 ha í 0,3 ha þar sem ekki er lengur gert ráð fyrir golfskála norðaustan Eyvindarholts né stækkunarmöguleika á gistihúsi á Eyvindarholti 1 yfir á land Eyvindarholts 2. Golfskáli verður inni á Íþ 1.07 og lega hans skilgreind í deiliskipulagi.
Helstu breytingar tillögunnar frá gildandi aðalskipulagi eru eftirfarandi:
- Útivistarstígur og reiðstígur norðan Bessastaða við suðurbakka Bessastaðatjarnar breyta um legu og tengingar.
- Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar.
- Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út.
- Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun.
- Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb
- Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund. Ekki verður þó heimilt að reka þar veitingahús.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður á landi Eyvindarholts 1.
- Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri.
- Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar.
- Hverfisvernd við Breiðabólstaðatjörn stækkar og nær einnig til Breiðabólstaðatúns.
- Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan landnotkunarreit fyrir hafnarsvæði vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu.
- Innan hverfisverndar verða ákvæði um gerð sjóvarnargarða og fráveitulagnar sem og gerð nýrra tjarna og hólma til eflingar fuglalífs.
- Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.
Skipulagsnefnd vísði tillögu aðalskiplagsbreytingar til auglýsingar í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal senda hana til athugunar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (AG, BF, MB, HBE, SS, BG, JÞE, ARM - HEB, KAK, ÞÞ sitja hjá) afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs. Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness sem nær til sama svæðis. Aðalskipulagsráðgjafi er Árni Ólafsson arkitekt hjá Teikna-Teiknistofu arkitekta. Tillagan er sett fram á einu blaði í A2 broti og á honum eru breytingaruppdrættir, greinargerð og umhverfismat. Sú breyting hefur verið gerð frá forkynntri tillögu að landnotkunarreitur við Eyvindarholt, 1.11 Vþ minnkar úr 1,3 ha í 0,3 ha þar sem ekki er lengur gert ráð fyrir golfskála norðaustan Eyvindarholts né stækkunarmöguleika á gistihúsi á Eyvindarholti 1 yfir á land Eyvindarholts 2. Golfskáli verður inni á Íþ 1.07 og lega hans skilgreind í deiliskipulagi. Helstu breytingar tillögunnar frá gildandi aðalskipulagi eru eftirfarandi: - Útivistarstígur og reiðstígur norðan Bessastaða við suðurbakka Bessastaðatjarnar breyta um legu og tengingar. - Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar. - Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út. - Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun. - Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb - Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund. - Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund. Ekki verður þó heimilt að reka þar veitingahús. - Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar. - Svæði fyrir verslun og þjónustu verður á landi Eyvindarholts 1. - Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri. - Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar. - Hverfisvernd við Breiðabólstaðatjörn stækkar og nær einnig til Breiðabólstaðatúns. - Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan landnotkunarreit fyrir hafnarsvæði vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu. - Innan hverfisverndar verða ákvæði um gerð sjóvarnargarða og fráveitulagnar sem og gerð nýrra tjarna og hólma til eflingar fuglalífs. - Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100. Skipulagsnefnd vísði tillögu aðalskiplagsbreytingar til auglýsingar í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal senda hana til athugunar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness.
3.3 - 2606714 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breyttum eignamörkum bæjartorfunnar að Sviðholti í tengslum við merkjalýsingarferli.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breyttum eignamörkum bæjartorfunnar að Sviðholti. Tillagan er fram komin í tengslum við merkjalýsingarferli sem unnið er að af landeigendum í samráði við umhverfissvið Garðabæjar.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breyttum eignamörkum bæjartorfunnar að Sviðholti. Tillagan er fram komin í tengslum við merkjalýsingarferli sem unnið er að af landeigendum í samráði við umhverfissvið Garðabæjar. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3.4 - 2610010 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsefndar frá fundi 29. október 2029 varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi til Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs útivistarstígs og stofnstígs í gegnum Flatahraun í Urriðakotshrauni og grisjun skógar á því svæði. Framlögð gögn eru í samræmi við Deiliskipulag Urriðavatnsdala sem samþykkt var árið 2023.
Málið var kynnt á fundi umhverfisnefndar 14.október 2026.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi til Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs útivistarstígs og stofnstígs í gegnum Flatahraun í Urriðakotshrauni og grisjun skógar á því svæði. Framlögð gögn eru í samræmi við Deiliskipulag Urriðavatnsdala sem samþykkt var árið 2023. Málið var kynnt á fundi umhverfisnefndar 14. október 2026.
3.5 - 26102466 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vestur vegna lóðarinnar við Víkurgötu 29.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Víkurgata 29. Tillagan gerir ráð fyrir að afmarkaður sé byggingarreitur fyrir inngrafna geymslu norðan við núverandi byggingarreit.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 20, 22 og 27 sem og Keldugötu 15.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Víkurgata 29. Tillagan gerir ráð fyrir að afmarkaður sé byggingarreitur fyrir inngrafna geymslu norðan við núverandi byggingarreit. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 20, 22 og 27 sem og Keldugötu 15.
3.6 - 2610083 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðskóga vegna lóðanna við Hliðsveg 5-7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðskóga sem nær til lóðanna Hliðsvegar 5 (Sólbarð) og Hliðsvegar 7. Lóð númer 7 er óbyggð og hefur nýverið verið afmörkuð með merkjalýsingu. Samkvæmt drögum að deiliskipulagi hefur Höfðabraut verið nefnd Hliðsvegur frá Suðurnesvegi að Hliði og er stuðst við það heiti hér. Endanleg ákvörðum um heiti götunnar verður tekið í deiliskipulagsferli.
Heimilt er að reisa einbýlishús á lóðunum með nýtingarhlutfall 0.35, vegghæð 3 m og rishæð 5,7 sem er ein hæð og ris. Skilgreining nýtingarhlutfalls, hæðar og húsgerðar er til samræmis við hús í nágrenninu.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús við Miðskóga, Hlein, Hof, Gerði og Sólbarð til að vekja athygli á auglýsingunni.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðskóga sem nær til lóðanna Hliðsvegur 5 (Sólbarð) og Hliðsvegur 7. Lóð númer 7 er óbyggð og hefur nýverið verið afmörkuð með merkjalýsingu. Samkvæmt drögum að deiliskipulagi hefur Höfðabraut verið nefnd Hliðsvegur frá Suðurnesvegi að Hliði og er stuðst við það heiti hér. Endanleg ákvörðum um heiti götunnar verður tekið í deiliskipulagsferli. Heimilt er að reisa einbýlishús á lóðunum með nýtingarhlutfall 0.35, vegghæð 3 m og rishæð 5,7 sem er ein hæð og ris. Skilgreining nýtingarhlutfalls, hæðar og húsgerðar er til samræmis við hús í nágrenninu. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús við Miðskóga, Hlein, Hof, Gerði og Sólbarð til að vekja athygli á auglýsingunni.
3.7 - 2610056 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna lóðarinnar við Vetrarbraut 11-13, ásamt bílastæðum á landi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem nær til lóðarinnar Vetrarbraut 11-13. Breytingin gerir ráð fyrir því að lóðinni verður skipt upp í tvær lóðir og byggingum er breytt þannig að þær eru áþekkar breytingum á deiliskipulaginu frá 2024. Umfang byggingarreits bílakjallara er stækkað. Spennistöð sem er á lóðinni er færð inn í bygginguna á nr. 13 sem spennistöð í byggingum annarra samkvæmt skipulagsskilmálum. Bílastæði á landi eru möguleg innan lóðar á nr. 13. Byggingarreitur fyrir Vetrarmýri 13 færist fjær Reykjanesbraut.
Umfang byggingarreits bílakjallara á lóðinni nr. 15 er breytt.
Botnlangagata út úr Vetrarbraut sem þjónar lóðum nr. 1-3, 5, 7 og 9 er breytt þannig að koma megi fyrir bílastæðum þvert á götu (90°). Við það færast gangstéttar inn á lóðir með þeim kröfum sem deiliskipulagið gerir í sambærilegum tilfellum.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem nær til lóðarinnar Vetrarbraut 11-13. Breytingin gerir ráð fyrir því að lóðinni verður skipt upp í tvær lóðir og byggingum er breytt þannig að þær eru áþekkar breytingum á deiliskipulaginu frá 2024. Umfang byggingarreits bílakjallara er stækkað. Spennistöð sem er á lóðinni er færð inn í bygginguna á nr. 13 sem spennistöð í byggingum annarra samkvæmt skipulagsskilmálum. Bílastæði á landi eru möguleg innan lóðar á nr. 13. Byggingarreitur fyrir Vetrarmýri 13 færist fjær Reykjanesbraut. Umfang byggingarreits bílakjallara á lóðinni nr. 15 er breytt. Botnlangagata út úr Vetrarbraut sem þjónar lóðum nr. 1-3, 5, 7 og 9 er breytt þannig að koma megi fyrir bílastæðum þvert á götu (90°). Við það færast gangstéttar inn á lóðir með þeim kröfum sem deiliskipulagið gerir í sambærilegum tilfellum. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 14/10 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 2.tl. lykiltölur í skólamálum, 3.tl. Menntadagur leik- og grunnskóla 2026, 4.tl. Forvarnarvika Garðabæjar 2026 og 5.tl. frumvarp til laga um innritun í leikskóla, 80. mál.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 29/10 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð velferðarráðs frá 16/10 ´26.
Anna Ragnheiður Möller ræddi 1.tl. verkefnaáætlun velferðarráðs 2026-2027.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 17/9 og 15/10 ´26.
Birkir Guðlaugsson ræddi fundargerð 17. september 2026, 1.tl. árshlutauppgjör janúar til júní 2026, 2.tl. drög að fjárhagsáætlun, 3.tl. fjármál Strætó, 4.tl. Pant, 5.tl. stefnur Strætó og fundargerð 15. október 2026, 1.tl. langtímaskuldir Strætó, 3.tl. innra eftirlit og 4.tl. fjárhagsáætlun 2027-2028.
Hlynur Bæringsson ræddi fundargerð 15. október 2026, 4.tl. fjárhagsáætlun 2027-2028.
Birkir Guðlaugsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerð 15. október 2026, 4.tl. fjárhagsáætlun 2027-2028.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
11
Fundargerðir stjórnar SSH frá 5/10 og 19/10 ´26.
Almar Guðmundsson ræddi fundargerð 5. október 2026, 4.tl. fjárlög 2027 og 5.tl. fyrirkomulag með hollustuháttum o.fl.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
12
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 16/9, 28/9 og 2/10 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi fundargerð 16. september 2026 1.tl. uppfærð drög að fjárhagsáætlun Sorpu fyrir árin 2027-2031 kynnt, 2.tl. gjaldskrárbreytingar, 3.tl. staða ESA-málsins, 4.tl. úrskurður umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðuneytis um málefni Úrvinnslusjóðs og 5.tl. málefni endurvinnslustöðva, skýrsla starfshóps um framtíðarskipan endurvinnslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og fundargerð 2. október 2026, 1.tl. lokadrög að fjárhagsáætlun SORPU fyrir árin 2027-2031 kynnt.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
14
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 20/10 ´26.
Fundargerðin er lögð fram.
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030) - fyrri umræða
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2026-2029. Bæjarstjóri lagði fram drög að greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar. Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Hlynur Bæringsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar Garðabæjar 2027-2030 leggur Framsókn áherslu á þau mál sem við vorum kosin til að vinna að: hækkun hvatapeninga og úrbætur á íþróttamannvirkjum sem miða að því að bæta aðstöðu og stytta biðlista þar sem það á við. Við viljum að öll börn hafi raunhæft tækifæri til að taka þátt í íþrótta- og frístundastarfi, óháð efnahag fjölskyldna, og að aðstaðan mæti þörfum bæjarbúa. Sömuleiðis munum við leggja áherslu á að sérstakt fjármagn verði sett í að greina og móta úrræði fyrir ungmenni sem ekki eru lengur í skipulögðu tómstundastarfi, en brotthvarf úr því verður oft á framhaldsskólaaldri.
Menningarmál eru okkur hugleikin og við munum leita leiða til að styðja við þau í endanlegri áætlun eftir skýrt ákall um það frá íbúum í vor, ekki síst yngra fólkinu.
Milli umræðna munum við leggja þessar áherslur inn í samtalið um fjárhagsáætlunina.
Það er auðvelt að benda á það sem okkur langar til að gera og kostar peninga. Tillögur okkar munu ekki eingöngu snúa að því, heldur einnig að leiðum til tekjuöflunar og hagræðingar í rekstri.
Það er mögulega ekki skemmtilegasta viðfangsefnið en við teljum eitt brýnasta verkefnið að draga úr fjármagnskostnaði bæjarins. Í frumvarpinu er hreinn fjármagnskostnaður A- hluta áætlaður rúmir 1,7 milljarðar árið 2027 og því ástæða til að fara varlega í fjárfestingar og lántökur.
Við hlökkum til málefnalegs samtals milli umræðna."
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Samfylkingin leggur áherslu á eftirfarandi þætti í vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
1. Ábyrg fjármálastjórn og sjálfbærni í rekstri
Samfylkingin vill leggja sitt af mörkum við að greina og meta þær aðhaldsaðgerðir sem nauðsynlegar eru til að bæta rekstrarstöðu sveitarfélagsins. Sjálfbær rekstur er grunnurinn að öflugu sveitarfélagi til framtíðar og forsenda þess að við getum staðið undir góðri þjónustu og uppbyggingu til lengri tíma.
2. Forgangsröðun og grunnþjónusta
Við leggjum áherslu á skýra forgangsröðun þar sem grunnþjónusta bæjarins er höfð að leiðarljósi. Ráðdeild í rekstri þarf að fara saman við að standa vörð um góða þjónustu við íbúa.
3. Fjárfestum í samfélaginu
Þrátt fyrir aðhald í rekstri eigum við áfram að fjárfesta í samfélaginu. Við teljum mikilvægt að skoða af fullri alvöru útfærslu á lengri afgreiðslutíma sundlauganna á sunnudögum og lengri opnunartíma bókasafnsins. Við eigum að hafa opinn hug gagnvart þessum og sambærilegum verkefnum sem eru ekki kostnaðarsöm í stóra samhenginu en geta skapað Garðbæingum fleiri tækifæri til samveru og bætt lífsgæði. Hluti af því að fjárfesta í samfélaginu er einnig að miða almennar gjaldskrárhækkanir við 2,5% árið 2027 og leggja þannig okkar af mörkum til að verja ráðstöfunartekjur heimilanna.
Samfylkingin mun leggja áherslu á að fjárhagsáætlunin verði unnin áfram með ábyrgum hætti, að forgangsröðun sé skýr og að ákvarðanir um rekstur og fjárfestingar byggi á raunhæfum forsendum og langtímahagsmunum Garðabæjar."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn mun á milli umræðna í bæjarstjórn leggja áherslu á að bókasöfn bæjarins og sundlaugar verði varin fyrir aðhaldskröfum í fjárhagsáætlun ársins 2027 og að þjónusta þeirra verði efld, enda eru það stofnanir sem gagnast öllum íbúum jafnt. Í sítengdum nútíma þar sem samvera við annað fólk er á undanhaldi teljum við skipta höfuðmáli að svokölluð þriðju rými séu sett í forgang, með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á samfélagið allt. Einnig mun listinn fylgja eftir tillögu um hækkun hvatapeninga og undirbúning systkinaafsláttar sem fyrr á árinu var vísað inn í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar."
Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027-2030, sem nú er lagt fram til fyrri umræðu, er ekki endanlegt. Núverandi efnahagsaðstæður kalla á að gætt sé sérstaks aðhalds í rekstrinum. Við áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunina verður því, líkt og hingað til, lögð rík áhersla á ábyrga fjármálastjórn og traustan rekstur sveitarfélagsins.
Skýrt markmið þeirrar vinnu er að bæta rekstrarniðurstöðu A-hluta frá því sem nú liggur fyrir og snúa neikvæðri niðurstöðu við fyrir seinni umræðu. Þær breytingar og aðgerðir sem unnið verður að á milli umræðna munu því endurspeglast í frumvarpi að fjárhagsáætlun sem lagt verður fram til seinni umræðu."
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar (í þúsundum króna):
2027 2028 2029 2030
Tekjur: 35.925.201 37.802.808 39.514.089 41.078.256
Gjöld: 31.425.986 33.062.682 34.463.773 35.961.469
Rnst. f. afskr. 4.499.215 4.740.127 5.050.315 5.116.787
Rnst. án fmst/gj 2.193.039 2.322.953 2.504.367 2.466.770
Afskriftir 2.306.175 2.417.174 2.545.948 2.650.017
Fmt/gj 2.017.459 1.870.350 1.756.135 1.416.358
Rekstrarniðurstaða 175.850 452.603 748.233 1.050.413
Framkvæmdir 3.984.000 3.884.000 3.969.000 3.524.000
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2027-2030 til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í bæjarráði.