Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 3/11 ´26.

Málsnúmer 2610039F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (986). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans situr hjá við þessa afgreiðslu. Við teljum tillöguna innihalda þætti sem ganga illa upp saman og erum ósannfærð um að skipulagið sé til bóta fyrir Álftanes og Álftnesinga, en erum því ekki mótfallin að tillagan verði auglýst.

Reiðstígur sem liggur þétt við golfvöll, sem er byggður á varpsvæði fugla, sem verður skorinn í sundur af vegi sem umferð mun þyngjast um vegna íbúabyggðar, sem á að rísa á landi sem þarf að hækka verulega vegna flóðahættu, veislusalur í nánd við þessa nýju byggð sem rís langt frá skólum, íþróttasvæði og félagsstarfi eldra fólks.

Með tillögunni er gerð tilraun til þess að gera öllum hagaðilum til geðs, fyrir utan þá íbúa sem búa á svæðinu nú þegar, en við teljum að lokaútkoman verði sú að enginn verði fyllilega ánægður. Svæðið verður þannig hvorki frábært til búsetu, golfs, hestamennsku, veitingareksturs né fyrir náttúrunnendur. Við hvetjum íbúa á svæðinu og áhugafólk um skipulag á Álftanesi til þess að senda inn ábendingar og athugasemdir."

Björg Fenger ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi, 4.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi og 8.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður - háholt.

Stella Stefánsdóttir ræddi 8.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður - háholt.

Kjartan Atli Kjartansson ræddi 4.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi og 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.

Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og 8.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður - háholt.

Jón Þór Eggertsson ræddi 4.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppbyggingu útivistarstígs í Flatahrauni innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdaleyfi.

Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi.

Fundargerðin sem er 8.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.