Beint í efni

17. (987). fundur

19.11.2026
Bæjarstjórn Garðabæjar

17. (987). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

19.11.2026

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Anna Ragnheiður Möller - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
  • Jón Þór Eggertsson - bæjarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
  • Guðjón Pétur Lýðsson - varabæjarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Anna Ragnheiður Möller, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. nóvember 2026 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2611005F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 10/11 ´26.

Fundargerðin sem er 10.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2611021F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 17/11 ´26.

Björg Fenger ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna þeim mikilvæga áfanga að nú liggi fyrir tillaga að deiliskipulagi Norðurness. Vinna við deiliskipulag svæðisins hófst upphaflega árið 2005 en fór svo aftur í markvissari vinnu árið 2020. Tillagan er því afrakstur langrar og vandaðrar vinnu.

Sérstaða Norðurness er mikil og mikilvægt að skipulag þess taki mið af ólíkum hagsmunum, svo svæðið nýtist sem flestum. Slíkt kallar óhjákvæmilega á úrlausn fjölmargra viðfangsefna. Tillagan sem hér liggur fyrir felur í sér raunhæfar lausnir og skýra sýn á framtíð svæðisins.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja tímabært að taka næsta skref og auglýsa tillöguna. Í því ferli fá íbúar, ekki síst þeir sem þegar búa á svæðinu, tækifæri til að kynna sér hana ítarlega og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Allar athugasemdir verða teknar til efnislegrar skoðunar og þeim svarað með formlegum hætti. Íbúar og aðrir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna og taka virkan þátt í að móta framtíð Norðurness. Það er einfaldlega tímabært að leiða til lykta þá miklu skipulagsvinnu og umræðu um svæðið sem átt hefur sér stað á undanförnum árum."



Hlynur Bæringsson ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030).

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030) og 4.tl. Kvenfélag Álftaness 100 ára 2026. Afmælisgjöf.

Kjartan Atli Kjartansson ræddi 4.tl. Kvenfélag Álftaness 100 ára 2026. Afmælisgjöf og 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.

Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju og ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.

Fundargerðin sem er 19.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála:

2.10 - 2604413 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra varðandi stíg um Hraunhóla og Lynghóla.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að stígur sem liggur um Lynghóla úr vestri að húsi nr. 13 og þar yfir í Hraunhóla til austurs verði felldur niður sem stofnstígur og verði almennur stígur. Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis.
Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að stígur sem liggur um Lynghóla úr vestri að húsi nr. 13 og þar yfir í Hraunhóla til austurs verði felldur niður sem stofnstígur og verði almennur stígur. Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis. Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.11 - 2611107 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs vegna stofnstígs.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs Garðabæjar sem gerir ráð fyrir stofnstíg frá stofnstíg þeim sem liggur úr Molduhrauni að Garðfit til vesturs að fyrirhugaðri framlengingu Álftanesvegar við bæjarmörk að Hafnarfirði (hjá Fjarðarkaupum). Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis.
Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs Garðabæjar sem gerir ráð fyrir stofnstíg frá stofnstíg þeim sem liggur úr Molduhrauni að Garðfit til vesturs að fyrirhugaðri framlengingu Álftanesvegar við bæjarmörk að Hafnarfirði (hjá Fjarðarkaupum). Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis. Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.12 - 2609643 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breyttum lóðarmörkum lóðarinnar Spítalavegur 15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breyttum lóðarmörkum lóðarinnar Spítalavegur 15 að Vífilsstöðum sem er sett fram á mæliblaði. Á þeirri lóð stendur tvílyft hús, byggt 1972. Vegna hönnunar Vífilsstaðavegar sem nú verður endurnýjaður er nauðsynlegt að skerða lóðina á tveimur stöðum sem nemur 313,5 m2 annars vegar í norðausturhorni og 78,6 m2 hins vegar í norðvesturhorni.
Deiliskipulag er ekki í gildi á Vífilsstöðum en breytingartillagan er í samræmi við rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands.
Skipulagsnefnd samþykkti breytt lóðarmörk í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breyttum lóðarmörkum lóðarinnar Spítalavegur 15 að Vífilsstöðum sem er sett fram á mæliblaði. Á þeirri lóð stendur tvílyft hús, byggt 1972. Vegna hönnunar Vífilsstaðavegar sem nú verður endurnýjaður er nauðsynlegt að skerða lóðina á tveimur stöðum sem nemur 313,5 m2 annars vegar í norðausturhorni og 78,6 m2 hins vegar í norðvesturhorni. Deiliskipulag er ekki í gildi á Vífilsstöðum en breytingartillagan er í samræmi við rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands. Skipulagsnefnd samþykkti breytt lóðarmörk í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.13 - 1803108 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftaness.

Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum (BF, MB, HBE, SS - ÞÞ sat hjá) að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mælikvarða 1:3000, skýringaruppdrætti í 1:3000 og greinargerð í A4 broti.
Greinargerð samanstendur af 5 köflum; Forsendur, Deiliskipulag, Almennir skilmálar, Sérákvæði nýbygginga og Umhverfismat.
Skipulagsráðgjafar tillögunnar eru Arkís arkitektar (Edda Kristín Einarsdóttir) og Landslagsarkitektastofan Landslag (Þráinn Hauksson). Til ráðgjafar eru Efla ehf (Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir) vegna umferðarmála og Verkís verkfræðistofa vegna náttúrfarsþátta (Arnór Þórir Sigfússon).

Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis. Breytingartillögu aðalskipulags hefur nú verið vísað til auglýsingar í bæjarstjórn og hefur borist HMS til athugunar.

Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði. Innan deiliskipulagsvæðis er nyrðri helmingur Bessastaðatjarnar, Kasthúsatjörn og Breiðabólstaðatjörn.

Skipulagssvæðið er um 124 hektarar að flatarmáli. Stærstur hluti þess er í einkaeigu.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá forkynntri tillögu og eru þær helstar:
- Íbúðareiningum hefur verið fækkað að lágmarki um 20
- Rað- og parhús verða á einni hæð í stað tveggja og grunnflötur þeirra stækkar.
- Heimilt er byggja einbýli á parhúsalóðum sem snúa að Bessastaðatjörn.
- Hámarks mænishæð einbýlishúsa lækkar.
- Parhús vestan Blikastígs verða einnar hæðar án rishæðar. Þök skulu vera lögð torfi.
- Parhús á suðurjaðri svæðis verða 1 hæð í stað tveggja.
- Aðkomu að parhúsagötu vestan Blikastígs breytt og nú gert ráð fyrir hringtorgi.
- Fyrirkomulagi bílastæða við Hlöðuna breytt til aðlögunar að því sem til staðar er.
- Staðsetning golfskála breytist, verður austan gatnamóta Norðurnesvegar og Jörfavegar í stað staðsetningar norðaustan Eyvindarholts.
- Ekki er lengur gert ráð fyrir stækkunarmöguleika gistihúss á Eyvindarholti 1 til suðurs inn á land Eyvindarholts 2.

Framlögð tillaga gerir ráð fyrir eftirfarandi:
- Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir að hámarki 137 íbúðareiningum í sérbýli. (54 einbýlishúseiningar, 51 raðhúseining og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi og við Bessataðatjörn eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því að hámarki 175 húseiningar.
- Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði en golfvöllurinn verður hannaður í kjölfar staðfestingar deiliskipulags innan þess svæðis sem skilgreint er sem golfvallarsvæði í deiliskipulaginu.
- Lóðir fyrir tvö einnar hæðar einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn.
- Lóð fyrir hverfisstöð þjónustumiðstöðvar Garðabæjar verður skilgreind þar sem áhaldahús er fyrir.
- Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs.
- Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum.
- Gert er ráð fyrir lítilli aðstöðuhöfn nyrst og austast á Eyri ásamt dælustöð vegna fyrirhugaðrar Skerjafjarðarfráveitu.
- Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir að mynda tjarnir nyrst á Eyri til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar.
- Gert er ráð fyrir aðalaðkomuvegi að byggð á Norðurnesi um Jörfaveg, sem liggur frá Norðurnesvegi að mestu í legu núverandi vegar.
- Gert er ráð fyrir einum aðkomuvegi að Stekk, Tjörn, Asparvík og Eyvindarholti 1, frá Norðurnesvegi.

Umsögn Vegagerðarinnar, (sem fer með siglinga-og hafnarmál, þ.m.t. varnir gegn sjávarflóðum og landbroti) dags. 12. febrúar 2026 liggur fyrir og þar kemur fram að lágmarksgólfkóti Aðaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem er 5,2 mys uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miðar við 5,15 mys.

Skipulagsnefnd vísaði tillögu deiliskipulags Norðurness til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.

Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum (AG, BF, MB, HBE, SS, BG, JÞE, ARM - 3 sitja hjá KAK, HEB, GPL) afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mælikvarða 1:3000, skýringaruppdrætti í 1:3000 og greinargerð í A4 broti. Greinargerð samanstendur af 5 köflum; Forsendur, Deiliskipulag, Almennir skilmálar, Sérákvæði nýbygginga og Umhverfismat. Skipulagsráðgjafar tillögunnar eru Arkís arkitektar (Edda Kristín Einarsdóttir) og Landslagsarkitektastofan Landslag (Þráinn Hauksson). Til ráðgjafar eru Efla ehf (Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir) vegna umferðarmála og Verkís verkfræðistofa vegna náttúrufarsþátta (Arnór Þórir Sigfússon). Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis. Breytingartillögu aðalskipulags hefur nú verið vísað til auglýsingar í bæjarstjórn og hefur borist HMS til athugunar. Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði. Innan deiliskipulagsvæðis er nyrðri helmingur Bessastaðatjarnar, Kasthúsatjörn og Breiðabólstaðatjörn. Skipulagssvæðið er um 124 hektarar að flatarmáli. Stærstur hluti þess er í einkaeigu. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá forkynntri tillögu og eru þær helstar: - Íbúðareiningum hefur verið fækkað að lágmarki um 20 - Rað- og parhús verða á einni hæð í stað tveggja og grunnflötur þeirra stækkar. - Heimilt er byggja einbýli á parhúsalóðum sem snúa að Bessastaðatjörn. - Hámarks mænishæð einbýlishúsa lækkar. - Parhús vestan Blikastígs verða einnar hæðar án rishæðar. Þök skulu vera lögð torfi. - Parhús á suðurjaðri svæðis verða 1 hæð í stað tveggja. - Aðkomu að parhúsagötu vestan Blikastígs breytt og nú gert ráð fyrir hringtorgi. - Fyrirkomulagi bílastæða við Hlöðuna breytt til aðlögunar að því sem til staðar er. - Staðsetning golfskála breytist, verður austan gatnamóta Norðurnesvegar og Jörfavegar í stað staðsetningar norðaustan Eyvindarholts. - Ekki er lengur gert ráð fyrir stækkunarmöguleika gistihúss á Eyvindarholti 1 til suðurs inn á land Eyvindarholts 2. Framlögð tillaga gerir ráð fyrir eftirfarandi: - Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir að hámarki 137 íbúðareiningum í sérbýli. (54 einbýlishúseiningar, 51 raðhúseining og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi og við Bessataðatjörn eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því að hámarki 175 húseiningar. - Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði en golfvöllurinn verður hannaður í kjölfar staðfestingar deiliskipulags innan þess svæðis sem skilgreint er sem golfvallarsvæði í deiliskipulaginu. - Lóðir fyrir tvö einnar hæðar einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn. - Lóð fyrir hverfisstöð þjónustumiðstöðvar Garðabæjar verður skilgreind þar sem áhaldahús er fyrir. - Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs. - Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum. - Gert er ráð fyrir lítilli aðstöðuhöfn nyrst og austast á Eyri ásamt dælustöð vegna fyrirhugaðrar Skerjafjarðarfráveitu. - Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu til stuðnings fuglalífi. - Gert er ráð fyrir að mynda tjarnir nyrst á Eyri til stuðnings fuglalífi. - Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar. - Gert er ráð fyrir aðalaðkomuvegi að byggð á Norðurnesi um Jörfaveg, sem liggur frá Norðurnesvegi að mestu í legu núverandi vegar. - Gert er ráð fyrir einum aðkomuvegi að Stekk, Tjörn, Asparvík og Eyvindarholti 1, frá Norðurnesvegi. Umsögn Vegagerðarinnar, (sem fer með siglinga-og hafnarmál, þ.m.t. varnir gegn sjávarflóðum og landbroti) dags. 12. febrúar 2026 liggur fyrir og þar kemur fram að lágmarksgólfkóti Aðaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem er 5,2 mys uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miðar við 5,15 mys. Skipulagsnefnd vísaði tillögu deiliskipulags Norðurness til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.

Málsnúmer 2611019F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11/11 ´26.

Birkir Guðlaugsson ræddi 1.tl. Miðgarður 3. hæð og 2.tl. Íþróttamaður ársins og íþróttahátíð 2026.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2611007F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 11/11 ´26.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 2.tl. eftirlit með gæðum á máltíðum í leik- og grunnskólum, 3.tl. orð og sögur - samstarfsverkefni bókasafns og fræðslusviðs Garðabæjar, 4.tl. viðurkenningar í skólastarfi og 5.tl. ársskýrsla/starfsáætlun leikskóla 2025-2026. Umbótaáætlun 2026-2027.

Kjartan Atli Kjartansson ræddi 2.tl. eftirlit með gæðum á máltíðum í leik- og grunnskólum.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. eftirlit með gæðum á máltíðum í leik- og grunnskólum.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. eftirlit með gæðum á máltíðum í leik og grunnskólum.

Bæjarstjórn óskar leikskólanum Bæjarbóli til hamingju með 50 ára afmæli leikskólans.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2611012F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 10/11 ´26.

Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. menningardagskrá fyrir skólahópa, 2.tl. fjölskyldustundir - menning í Garðabæ og 3.tl. styrkir til menningarstarfsemi 2026.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2611010F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/11 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2610040F

07

Fundargerð skólanefndar frá 4/11 ´26

Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. viðurkenningar í skólastarfi 2026, 2.tl. orð og sögur - samstarfsverkefni bókasafns og fræðslusviðs Garðabæjar, 3.tl. viðmið um skólasókn í grunnskólum Garðabæjar, 4.tl. forvarnarvika í Garðabæ 2026, 5.tl. menningarviðburðir í grunn- og leikskólum 2026-2027, 6.tl. Þróunarsjóður grunnskóla 2027 og 7.tl. kynning og samtal við stjórnendur Urriðaholtsskóla.

Bæjarstjórn óskar Garðaskóla til hamingju með 60 ára afmæli skólans.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2611011F

08

Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/11 ´26.

Jón Þór Eggertsson ræddi 1.tl. Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vífilsstaðavatn.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2611014F

09

Fundargerð öldungaráðs frá 12/11 ´26.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. kynning frá haustfundi 2026, Gott að eldast og 2.tl. aðgerðaráætlun Gott að eldast 2023-2027.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601375

10

Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 2/11 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2602305

11

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 28/10 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601508

12

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 16/10 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601544

13

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 5/11 ´26.

Birkir Guðlaugsson ræddi 1.tl. árshlutauppgjör janúar til september 2026, 2.tl. fjárhagsáætlun Strætó, 3.tl. eignamat og 4.tl. minnisblað frá SSH og Innviðaráðuneytinu.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2609083

14

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030). Álagning útsvarsprósentu fyrir árið 2027.

Almar Guðmundsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2027 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2026 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga."

Tillagan er samþykkt samhljóða.