Fundargerð bæjarráðs frá 17/11 ´26.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (987). fundur
Björg Fenger ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna þeim mikilvæga áfanga að nú liggi fyrir tillaga að deiliskipulagi Norðurness. Vinna við deiliskipulag svæðisins hófst upphaflega árið 2005 en fór svo aftur í markvissari vinnu árið 2020. Tillagan er því afrakstur langrar og vandaðrar vinnu.
Sérstaða Norðurness er mikil og mikilvægt að skipulag þess taki mið af ólíkum hagsmunum, svo svæðið nýtist sem flestum. Slíkt kallar óhjákvæmilega á úrlausn fjölmargra viðfangsefna. Tillagan sem hér liggur fyrir felur í sér raunhæfar lausnir og skýra sýn á framtíð svæðisins.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja tímabært að taka næsta skref og auglýsa tillöguna. Í því ferli fá íbúar, ekki síst þeir sem þegar búa á svæðinu, tækifæri til að kynna sér hana ítarlega og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Allar athugasemdir verða teknar til efnislegrar skoðunar og þeim svarað með formlegum hætti. Íbúar og aðrir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna og taka virkan þátt í að móta framtíð Norðurness. Það er einfaldlega tímabært að leiða til lykta þá miklu skipulagsvinnu og umræðu um svæðið sem átt hefur sér stað á undanförnum árum."
Hlynur Bæringsson ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030).
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030) og 4.tl. Kvenfélag Álftaness 100 ára 2026. Afmælisgjöf.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 4.tl. Kvenfélag Álftaness 100 ára 2026. Afmælisgjöf og 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju og ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 13.tl. afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Fundargerðin sem er 19.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála: