40. (2335). fundur
40. (2335). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.11.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Vilborg Anna S. Garðarsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027 - 2030)
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2027 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24.gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2026, samkvæmt 2.mgr. 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995."
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Lögð fram drög að framkvæmdaáætlun.
Lögð fram drög að álagningu fasteignagjalda.
Farið yfir helstu atriði og dagsetningar varðandi vinnu við fjárhagsáætlun fram að seinni umræðu í bæjarstjórn.
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Lántaka
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Samþykkt er að Garðabær taki nú 550.000.000 kr. skammtímalánlán, með gjalddaga 11. febrúar 2027.
Framangreint skammtímalán kemur í stað töku langtímaláns og rúmast innan heimilda áætlunar.
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Úthlutun styrkja.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja:
Garðálfar, kór eldri borgara á Álftanesi, kr. 450.000.
Norræna félagið í Garðabæ, kr. 200.000.
04
Kvenfélag Álftaness 100 ára 2026. Afmælisgjöf
Í tilefni að 100 ára afmæli Kvenfélags Álftaness á árinu 2026, samþykkir bæjarráð tillögu bæjarstjóra að færa Kvenfélagi Álftaness uppfærslu á kvenfélagsgarði á Álftanesi í afmælisgjöf. Reiturinn er staðsettur við lóð sunnan sundlaugarinnar.
Bæjarráð samþykkir að fela garðyrkjudeild að gera reitinn fallegri og aðgengilegri í samvinnu við Kvenfélagið.
05
Garðprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sveinbirni Jónssyni, kt. 261254-7949, leyfi til að byggja einbýlishús á einni hæð að Garðprýði 6.
06
Vorbraut 16 - Umsókn um stöðuleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Karli Raymond Birgissyni, kt. 090385-2329 stöðuleyfi fyrir vinnuskúr á lóð Garðabæjar við Vorbraut 16 og nýta sem geymslusvæði á meðan verið er að klára lóðafrágang. Stöðuleyfið er veitt til sex mánaða.
07
Háhæð 10 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bjargey Ingólfsdóttur, kt. 050259-4559, leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum aðaluppdráttum, innri breytingum og uppfærðri skráningartöflu að Háhæð 10.
08
Fjarskiptamastur . Suðurnesv. - Höfðabraut - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Íslandsturnum Sendastöðum hf., kt. 430321-1450, leyfi fyrir uppsetningu á mastri fyrir fjarskiptabúnað farsímafélaga og tengiskápum við Suðurnesveg - Höfðabraut.
09
Pikkolo - Hafnarfjarðarvegur Olís - Umsókn um stöðuleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra að veita Pikkoló ehf., kt. 441220-0810, stöðuleyfi fyrir snjalldreifistöð Pikkoló á lóð við Olís, Hafnarfjarðarvegi.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra varðandi stíg um Hraunhóla og Lynghóla.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að stígur sem liggur um Lynghóla úr vestri að húsi nr. 13 og þar yfir í Hraunhóla til austurs verði felldur niður sem stofnstígur og verði almennur stígur. Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis.
Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs vegna stofnstígs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs Garðabæjar sem gerir ráð fyrir stofnstíg frá stofnstíg þeim sem liggur úr Molduhrauni að Garðfit til vesturs að fyrirhugaðri framlengingu Álftanesvegar við bæjarmörk að Hafnarfirði (hjá Fjarðarkaupum). Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis.
Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breyttum lóðarmörkum lóðarinnar Spítalavegur 15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að breyttum lóðarmörkum lóðarinnar Spítalavegur 15 að Vífilsstöðum sem er sett fram á mæliblaði. Á þeirri lóð stendur tvílyft hús, byggt 1972. Vegna hönnunar Vífilsstaðavegar sem nú verður endurnýjaður er nauðsynlegt að skerða lóðina á tveimur stöðum sem nemur 313,5 m2 annars vegar í norðausturhorni og 78,6 m2 hins vegar í norðvesturhorni.
Deiliskipulag er ekki í gildi á Vífilsstöðum en breytingartillagan er í samræmi við rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands.
Skipulagsnefnd samþykkti breytt lóðarmörk í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftaness.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum (BF, MB, HBE, SS - ÞÞ sat hjá) að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. nóvember 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mælikvarða 1:3000, skýringaruppdrætti í 1:3000 og greinargerð í A4 broti.
Greinargerð samanstendur af 5 köflum; Forsendur, Deiliskipulag, Almennir skilmálar, Sérákvæði nýbygginga og Umhverfismat.
Skipulagsráðgjafar tillögunnar eru Arkís arkitektar (Edda Kristín Einarsdóttir) og Landslagsarkitektastofan Landslag (Þráinn Hauksson). Til ráðgjafar eru Efla ehf (Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir) vegna umferðarmála og Verkís verkfræðistofa vegna náttúrfarsþátta (Arnór Þórir Sigfússon).
Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis. Breytingartillögu aðalskipulags hefur nú verið vísað til auglýsingar í bæjarstjórn og hefur borist HMS til athugunar.
Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði. Innan deiliskipulagsvæðis er nyrðri helmingur Bessastaðatjarnar, Kasthúsatjörn og Breiðabólstaðatjörn.
Skipulagssvæðið er um 124 hektarar að flatarmáli. Stærstur hluti þess er í einkaeigu.
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá forkynntri tillögu og eru þær helstar:
- Íbúðareiningum hefur verið fækkað að lágmarki um 20
- Rað- og parhús verða á einni hæð í stað tveggja og grunnflötur þeirra stækkar.
- Heimilt er byggja einbýli á parhúsalóðum sem snúa að Bessastaðatjörn.
- Hámarks mænishæð einbýlishúsa lækkar.
- Parhús vestan Blikastígs verða einnar hæðar án rishæðar. Þök skulu vera lögð torfi.
- Parhús á suðurjaðri svæðis verða 1 hæð í stað tveggja.
- Aðkomu að parhúsagötu vestan Blikastígs breytt og nú gert ráð fyrir hringtorgi.
- Fyrirkomulagi bílastæða við Hlöðuna breytt til aðlögunar að því sem til staðar er.
- Staðsetning golfskála breytist, verður austan gatnamóta Norðurnesvegar og Jörfavegar í stað staðsetningar norðaustan Eyvindarholts.
- Ekki er lengur gert ráð fyrir stækkunarmöguleika gistihúss á Eyvindarholti 1 til suðurs inn á land Eyvindarholts 2.
Framlögð tillaga gerir ráð fyrir eftirfarandi:
- Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir að hámarki 137 íbúðareiningum í sérbýli. (54 einbýlishúseiningar, 51 raðhúseining og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi og við Bessataðatjörn eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því að hámarki 175 húseiningar.
- Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði en golfvöllurinn verður hannaður í kjölfar staðfestingar deiliskipulags innan þess svæðis sem skilgreint er sem golfvallarsvæði í deiliskipulaginu.
- Lóðir fyrir tvö einnar hæðar einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn.
- Lóð fyrir hverfisstöð þjónustumiðstöðvar Garðabæjar verður skilgreind þar sem áhaldahús er fyrir.
- Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs.
- Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum.
- Gert er ráð fyrir lítilli aðstöðuhöfn nyrst og austast á Eyri ásamt dælustöð vegna fyrirhugaðrar Skerjafjarðarfráveitu.
- Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir að mynda tjarnir nyrst á Eyri til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar.
- Gert er ráð fyrir aðalaðkomuvegi að byggð á Norðurnesi um Jörfaveg, sem liggur frá Norðurnesvegi að mestu í legu núverandi vegar.
- Gert er ráð fyrir einum aðkomuvegi að Stekk, Tjörn, Asparvík og Eyvindarholti 1, frá Norðurnesvegi.
Umsögn Vegagerðarinnar, (sem fer með siglinga-og hafnarmál, þ.m.t. varnir gegn sjávarflóðum og landbroti) dags. 12. febrúar 2026 liggur fyrir og þar kemur fram að lágmarksgólfkóti Aðaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem er 5,2 mys uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miðar við 5,15 mys.
Skipulagsnefnd vísaði tillögu deiliskipulags Norðurness til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.
14
Hönnun - Útboð. Gatnagerð Hnoðraholt Háholt.
Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna útboðs Hnoðraholt suður - háholts. Gatnagerð og lagnir.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
15
Erindi Brynju leigufélags um stofnframlög vegna kaupa á íbúðum í Garðabæ árið 2027, dags. 10.11.26.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar hjá bæjarstjóra og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027.
16
Erindi Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041, 313. mál.
Lagt fram.
17
Erindi Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031, 286. mál.
Lagt fram.
18
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi 13.11.26.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna kokteilboðs 13. nóvember 2026.
Bæjarráð gerir með 4 atkvæðum (BF,MB,HBE,SS - ÞÞ sat hjá) ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.
19
Erindi Lionsklúbbs Álftaness og Kvenfélags Álftaness varðandi afnot af húsnæði fyrir þorrablót Kvenfélags Álftaness og Lionsklúbbs Álftaness 2027, dags. 09.11.26.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.