Beint í efni

Hraunhólar - Lynghólar - samgöngustígur - Deiliskipulag

Málsnúmer 2604413

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Lögð fram tillaga skipulagsstjóra um að mótaðar verði tillögur að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra og deiliskipulags Bæjargarðs þess efnis að stofnstígur um Lynghóla og Hraunhóla verði felldur út en gert verði ráð fyrir stofnstíg í hrauninu sunnan Hraunhóla.

Hafa þarf samráð við Náttúruverndarstofnun þar sem hraunið er friðlýst sem fólkvangur og einnig er máli vísað til umsagnar hjá umhverfisnefnd Garðabæjar. Breytingartillaga er í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar um legu stofnstíga á svæðinu.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu skipulags hvað varðar stígakerfi í Lynghólum, Hraunhólum og vestanverðum bæjargarði.

Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að móta tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunholts eystra og deiliskipulagi bæjargarðs sem eru í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 m.s.br.