Beint í efni

3 (26-30). fundur

09.09.2026
Umhverfisnefnd Garðabæjar

3 (26-30). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

09.09.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jón Þór Eggertsson - formaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Ingibjörg Loftsdóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Anna Gréta Hafsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2604143

01

Mengunarmælingar 2026

Sigrún Hrönn Halldórsdóttir, heilbrigðisfulltrúi kynnti niðurstöður á reglubundinni vöktun yfirborðsvatns og strandsjávarmengunarmælingum ásamt loftgæðamælingum í Garðabæ.

Málsnúmer 2609043

02

Umhverfishópar 2026

Skýrslan lögð fram. Umhverfisnefnd lýsir ánægju með öflugt og fjölbreytt starf umhverfishópanna og þakkar ungmennum og starfsfólki fyrir mikilvægt framlag til umhirðu og fegrunar bæjarins.

Málsnúmer 2605278

03

Evrópsk samgönguvika 2026

Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Yfirskrift átaksins er Evrópsk Samgönguvika og er hún haldin 16.- 22. september ár hvert. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Þema samgönguviku í ár er Samgöngur fyrir öll

Málsnúmer 2608428

04

Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum rammaáætllunar

Málið rætt. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að við mat á vindorkukostum verði tekið tillit til náttúruverndar, landslags, útivistargildis, ásýndar og mögulegra áhrifa tengdra innviða á hagsmuni Garðabæjar og íbúa hans.

Málsnúmer 1710244

05

Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.

Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir við deiliskipulagi Gálgahrauns sem bárust á auglýsingartíma. Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Garðabæ gerði grein fyrir markmiðum deiliskipulagsins. Umhverfisnefnd tekur undir markmið deiliskipulagsins um vernd, fræðslu og stýrt aðgengi. Nefndin leggur áherslu á að tekið verði tillit til umsagna Náttúruverndarstofnunar og Náttúrufræðistofnunar við áframhaldandi vinnslu málsins, að valkostir um legu, breidd, yfirborð og lýsingu stíga verði bornir saman og að ekki verði ráðist í óafturkræft rask á friðlandinu. Umhverfisnefnd telur mikilvægt að deiliskipulag svæðisins og stjórnunar- og verndaráætlun verði unnin í nánu samhengi.

Málsnúmer 2203422

06

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi

Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Garðabæ gerði grein fyrir markmiðum tillögunnar. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust á auglýsingartíma við endurskoðun á 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem tekur á stígakerfum bæjarins.

Umhverfisnefnd tekur jákvætt í markmið tillögunnar um heildstætt og öruggt stígakerfi. Nefndin leggur áherslu á að við endanlega útfærslu verði gætt að umferðaröryggi, aðgengi allra, fjölbreyttri útivist og verndargildi viðkvæmra náttúrusvæða. Jafnframt verði skýrt í skipulagsgögnum hvaða lega stíga er bindandi og hvar aðeins er um leiðbeinandi eða náttúrulega gönguleið að ræða.

Málsnúmer 2604413

07

Hraunhólar - Lynghólar - samgöngustígur - Deiliskipulag

Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Garðabæ gerði grein fyrir málinu. Umhverfisnefnd tekur jákvætt í markmið tillögunnar um bætta tengingu fyrir gangandi og hjólandi. Nefndin leggur áherslu á að við nánari hönnun verði gætt að umferðaröryggi, grenndaráhrifum, náttúrufari og góðum tengingum við núverandi stígakerfi.

Málsnúmer 2405208

08

Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Garðabæ gerir grein fyrir málinu. Umhverfisnefnd felur umhverfissviði að móta reglur um umgengni í og við Breiðabólstaðatjörn með hliðsjón af hverfisvernd, fuglalífi og verndargildi svæðisins og leggja tillögurnar fyrir nefndina.

Laufey Jóhannsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Umhverfisnefnd Garðabæjar - 3 (26-30) - Garðabær