Afgreiðsla skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi .
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. (2224). fundur
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (BF, MB, HBE, SS) gegn einu (ÞÞ) að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi sem gera m.a. ráð fyrir veislusal til útleigu fyrir allt að 105 manns að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.skipulagslaga.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir veitingarými í flokki II. Í þeim flokki eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og sem almennt kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.
Skipulagsnefnd leggur til að bætt verði við eftirfarandi ákvæðum í byggingarlýsingu á uppdrætti:
“- Í samræmi við notkun byggingarinnar í byggingarlýsingu sem veitingarými í flokki II og með tilliti til aðstæðna þá skal samkvæmi vera alfarið innanhúss eftir kl. 23:00 um helgar en kl. 22:00 á virkum dögum. Á sama tíma skal lækka niður í hljóðkerfum og annarri háværri tónlist.
- Notkun hljóðkerfa utanhúss er óheimil.
- Flugeldanotkun er óheimil nema á þeim tímum sem reglur um almenna notkun kveða á um.
- Bálkestir eru óheimilir nema með tilskyldum leyfum.
- Ákvæði um notkun hússins sem sett eru fram í þessari byggingarlýsingu skal endurskoða í kjölfar gildistöku deiliskipulags- og aðalskipulagsbreytingar sem nær til svæðisins ef ástæða er til.
Umfjöllun byggingarlýsingar um skipulag á svæðinu skal breytt og þar skal standa:
- „Lóðin stendur innan svæðis sem skilgreint er sem opið svæði í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Samkvæmt kafla 3.15 í greinargerð aðalskipulagsins kemur fram að á opnum svæðum megi gera ráð fyrir veitingaaðstöðu. Ekkert deiliskipulag er formlega í gildi fyrir svæðið (Norðurnes). „
Skipulagsnefnd mælist til þess að fullt tillit sé tekið til Breiðabólstaðatjarnar sem nýtur hverfisverndar í aðalskipulagi. Ekki hafa verið mótaðar sérstakar reglur um umgengni í og við tjörnina og beinir nefndin því til umhverfisnefndar að skoða hvort ástæða sé til að móta tillögur þar um.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að svörum við athugasemdum sem borist hafa og gerir nefndin engar athugasemdir við þau.
Meirihluti skipulagsnefndar samþykkti með 4 atkvæðum (BF, ÁSÁ, AEV og KV) gegn einu (EÞE) að gera ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem byggir á grenndarkynntum gögnum og byggingarlýsingu með ofangreindum breytingum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi sem gera m.a. ráð fyrir veislusal til útleigu fyrir allt að 105 manns að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.skipulagslaga.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir veitingarými í flokki II. Í þeim flokki eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og sem almennt kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.
Skipulagsnefnd leggur til að bætt verði við eftirfarandi ákvæðum í byggingarlýsingu á uppdrætti:
“- Í samræmi við notkun byggingarinnar í byggingarlýsingu sem veitingarými í flokki II og með tilliti til aðstæðna þá skal samkvæmi vera alfarið innanhúss eftir kl. 23:00 um helgar en kl. 22:00 á virkum dögum. Á sama tíma skal lækka niður í hljóðkerfum og annarri háværri tónlist.
- Notkun hljóðkerfa utanhúss er óheimil.
- Flugeldanotkun er óheimil nema á þeim tímum sem reglur um almenna notkun kveða á um.
- Bálkestir eru óheimilir nema með tilskyldum leyfum.
- Ákvæði um notkun hússins sem sett eru fram í þessari byggingarlýsingu skal endurskoða í kjölfar gildistöku deiliskipulags- og aðalskipulagsbreytingar sem nær til svæðisins ef ástæða er til.
Umfjöllun byggingarlýsingar um skipulag á svæðinu skal breytt og þar skal standa:
- „Lóðin stendur innan svæðis sem skilgreint er sem opið svæði í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Samkvæmt kafla 3.15 í greinargerð aðalskipulagsins kemur fram að á opnum svæðum megi gera ráð fyrir veitingaaðstöðu. Ekkert deiliskipulag er formlega í gildi fyrir svæðið (Norðurnes). „
Skipulagsnefnd mælist til þess að fullt tillit sé tekið til Breiðabólstaðatjarnar sem nýtur hverfisverndar í aðalskipulagi. Ekki hafa verið mótaðar sérstakar reglur um umgengni í og við tjörnina og beinir nefndin því til umhverfisnefndar að skoða hvort ástæða sé til að móta tillögur þar um.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að svörum við athugasemdum sem borist hafa og gerir nefndin engar athugasemdir við þau.
Meirihluti skipulagsnefndar samþykkir með 4 atkvæðum (BF, ÁSÁ, AV og VK) gegn einu (EÞE) að gera ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem byggir á grenndarkynntum gögnum og byggingarlýsingu með ofangreindum breytingum.
Fulltrúi Framsóknar (EÞE) leggur fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi Framsóknar í skipulagsnefnd Garðabæjar er ekki andvígur veislu- og veitingaþjónustu á þessum stað í sjálfu sér, sé rétt að henni staðið. Forsendan er traustur skipulagslegur grunnur og raunverulegt samráð við íbúa.
Samkvæmt gögnum bæjarins sjálfs er byggingin á opnu svæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Fulltrúinn leggur því til að afgreiðslu verði frestað þar til fyrir liggur skriflegt álit bæjarlögmanns á því hvernig umsóknin samræmist gildandi aðalskipulagi, hljóðvistargreining óháðs aðila, og mat á áhrifum starfseminnar á fuglalíf og hverfisverndað svæði við Breiðabólstaðatjörn.
Samtímis er mikilvægt að leitað verði samtals við umsækjanda og íbúa um opnunartíma, hámarksfjölda gesta og notkun útisvæða, svo afgreiðsla málsins geti byggt á sátt."
Áheyrnarfulltrúi Garðabæjarlistans (GPL) leggur fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi Garðabæjarlistans lýsir undrun á vinnubrögðum umsækjanda, þar sem framkvæmdir hafa verið hafnar án þess að tilskilin byggingarleyfi liggi fyrir og rekstur þegar hafinn í umræddri byggingu án þess að rekstrarleyfi hafi verið gefið út.
Garðabæjarlistinn telur uppbyggingu og atvinnustarfsemi af þessu tagi geta verið jákvæða fyrir samfélagið. Það breytir þó ekki þeirri skyldu sveitarfélagsins að tryggja að uppbygging og rekstur fari fram í samræmi við lög, reglur og skipulag og að fullt tillit sé tekið til hagsmuna íbúa, nágranna og náttúrunnar á svæðinu.
Við teljum því mikilvægt að málið verði tekið til nánari skoðunar áður en byggingarleyfi er veitt, sérstaklega með tilliti til áhrifa starfseminnar á nærliggjandi íbúabyggð, umhverfis- og náttúruverndar og þess hvort umfang og eðli starfseminnar samræmist skipulagi og aðstæðum á svæðinu.
Garðabæjarlistinn styður atvinnuuppbyggingu og verkefni sem auðga samfélagið, en slík sjónarmið mega ekki ganga framar vandaðri og eðlilegri málsmeðferð. Sömu reglur og kröfur eiga að gilda um alla og mikilvægt er að sveitarfélagið gæti jafnræðis, hagsmuna íbúa og umhverfis við afgreiðslu málsins."
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar (KAK) leggur fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúi Samfylkingarinnar telur rétt að staldra við í þessu máli. Ljóst er að mikil vinna og framtaksemi hefur einkennt uppbygginguna á svæðinu og starfsemin hefur skapað margar ánægjulegar stundir. Á sama tíma er sú staða uppi að verið er að fjalla um byggingarleyfi fyrir byggingu og starfsemi sem þegar hefur verið komið á fót. Það er óheppilegt og undirstrikar mikilvægi þess að farið sé eftir eðlilegum farvegi við uppbyggingu og leyfisveitingar.
Jafnframt þarf að hlusta á ábendingar og áhyggjur íbúa. Af þeim má ráða að starfsemin hafi að einhverju leyti raskað þeirri ró sem íbúar sóttust eftir með því að búa á þessu svæði.
Mikilvægt er að hlusta á sjónarmið allra, leita sameiginlegra lausna og skapa meiri sátt um starfsemina og umgjörð hennar til framtíðar."
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingum og starfsemi í útihúsum á Spildu A í landi Grundar við austanverða Breiðabólsstaðatjörn að lokinni grenndarkynningu.
5 erindi með athugasemdum hafa borist og þau lögð fram.
Uppdráttum og athugasemdum vísað til umhverfissviðs til úrvinnslu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
10. (980). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. júní 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir spildu A úr landi Grundar, sem gerir ráð fyrir rýmum sem tengjast veislu-og veitingaþjónustu í núverandi atvinnuhúsnæði. Ekkert deiliskipulag er í gildi á Norðurnesi. Samkvæmt aðalskipulagi er byggingin staðsett á opnu svæði. Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal íbúum við Fálkastíg, Blikastíg, Grund, Breiðabólstöðum, Hvol, Jörfa og Seilu sem og landeigendum á Norðurnesi.
Bæjarráð Garðabæjar
05
21. (2216). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. júní 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir spildu A úr landi Grundar, sem gerir ráð fyrir rýmum sem tengjast veislu-og veitingaþjónustu í núverandi atvinnuhúsnæði.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á Norðurnesi. Samkvæmt aðalskipulagi er byggingin staðsett á opnu svæði.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal íbúum við Fálkastíg, Blikastíg, Grund, Breiðabólstöðum, Hvol, Jörfa og Seilu sem og landeigendum á Norðurnesi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
9. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir rýmum sem tengjast veislu-og veitingaþjónustu í núverandi atvinnuhúsnæði.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á Norðurnesi. Samkvæmt aðalskipulagi er byggingin staðsett á opnu svæði.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal íbúum við Fálkastíg, Blikastíg, Grund, Breiðabólstöðum, Hvol, Jörfa og Seilu sem og landeigendum á Norðurnesi.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
8. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsóknin felur í sér breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum atvinnuhúsnæðis við Spildu A í landi Grundar þar sem nú er gert ráð fyrir veislusal og geymslurýmum. Skipulagsstjóri vísar umsókninni til skoðunar hjá umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
09
25. (2126). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Erlendi Kára Kristjánssyni,kt. 190982-3009 leyfi fyrir viðhaldi og endurgerð útihúsa á jörðinni Grund á Álftanesi.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
12
5. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir breytingum atvinnuhúsnæðis á spildu A úr landi Grundar við norðausturhorn Breiðabólstaðatjarnar á Álftanesi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Byggingarleyfisumsókn sem samþykkt var árið 2014 hlaut grenndarkynningarferli sem byggingarleyfi í ódeiliskipulögðu landi og bárust engar athugasemdir.
Þær breytingar sem gerðar hafa verið frá samþykktum uppdráttum í umsókn þeirri sem nú er til umfjöllunar eru ekki þess eðlis að þær kalli á grenndarkynningu að nýju.
Með vísan í 2.msl, 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fellir skipulagsstjóri niður grenndarkynningu og gerir ekki athugasemd við að byggingaleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.