Beint í efni

25. (2126). fundur

02.07.2024
Bæjarráð Garðabæjar

25. (2126). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

02.07.2024

Kl. 08:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2405208

01

Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Erlendi Kára Kristjánssyni,kt. 190982-3009 leyfi fyrir viðhaldi og endurgerð útihúsa á jörðinni Grund á Álftanesi.



Málsnúmer 2406885

02

Erindi Hafnarfjarðarbæjar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2013-2025 vegna stækkunar Straumsvíkurhafnar og efnistökusvæðis Rauðamelsnámu, dags. 24. júní 2024.

Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar 2013-2025, sem felur í sér stækkun Straumsvíkurhafnar og stækkun á efnistökusvæði.

Framsett tillaga að breytingu á aðalskipulagi í vinnslu til kynningar, sbr. 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 122/2010.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2208745

03

Viðauki þjónustusamnings um samræmda móttöku flóttafólks.

Bæjarráð samþykkir viðauka þjónustusamnings milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og Garðabæjar, um samræmda móttöku flóttafólks sem undirritaður var 20. mars 2024. Viðaukinn varðar framlengingu gildistíma núgildandi samnings til og með 31. desember 2024.

Málsnúmer 2209699

04

Verksamningur um þriðja áfanga Urriðaholtsskóla.

Lægstbjóðandi í þriðja áfanga Urriðaholtsskóla, Þarfaþing ehf., hefur skilað inn fullnægjandi gögnum í samræmi við kafla 0.1.11. í útboðs- og verklýsingum.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda. Samningsfjárhæðin er kr. 2.449.005.747.

Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings, sem þegar er liðinn. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð vísar samningnum til undirritunar bæjarstjóra, að framangreindum skilyrðum uppfylltum.

Málsnúmer 2401133

05

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 18.06.24.

Lögð fram.

Lögð fram.

Fylgiskjöl