Beint í efni

Hafnarfjörður-ask.br. - stækkun Straumsvíkurhafnar og efnistökusvæðis Rauðamelsnámu

Málsnúmer 2406885

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðar um tillögu á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem tengist umfangsmiklum áformum fyrirtækisins Carbfix sem nefnist Coda Terminal um uppbyggingu móttöku- og geymslustöðvar fyrir koldíoxíð innan lögsögu Hafnarfjarðar. Breytingartillagan nær til stækkunar Straumsvíkurhafnar og efnistökusvæðis í Rauðamelsnámu.
Lögð fram matsskýrsla sem fylgdi umhverfismati framkvæmdarinnar, og umsagnir sem borist hafa m.a. frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti.

Skipulagsnefnd tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Umhverfisstofnunar um að gera þurfi grein fyrir áhrifum á yfirborðsvatnshlotið og grunnvatnshlotið Kleifarvatn. Nefndin minnir auk þess á að í greinargerð heildarendurskoðunar vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu eru tilgreindar niðurstöður úr greiningarvinnu Vatnaskila. Þar kemur m.a. fram að einn af framtíðarmöguleikum vatnsöflunar á höfuðborgarsvæðinu er í Fagradal norðaustan við Kleifarvatn en ekki verður séð að minnst sé á þann álitlega vatnstökustað, hvorki í umhverfismatsskýrslu né í umsögnum.
Þar sem að fram kemur í niðurstöðum umhverfismats að áhrif á grunnvatn séu metin óviss vill skipulagsnefndin árétta mikilvægi þess að mótvægisaðgerðum og vöktun sé framfylgt.
Skipulagsnefndin telur að leita hefði átt umsagnar Garðabæjar við umhverfismat framkvæmdarinnar þar sem að sveitarfélagið ætti að teljast viðeigandi umsagnaraðili þar sem að hugsanleg áhrif framkvæmdarinnar teygi sig inn í lögsögu þess sbr.15.gr.laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd Garðabæjar ekki athugasemdir við skipulagstillöguna sem tengist áformum um Coda Terminal innan lögsögu Hafnarfjarðar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar sem gerir ráð fyrir stækkun hafnar í Straumsvík og efnistökusvæðis í Rauðamelsnámu.
Tillögur Hafnarfjarðarbæjar sem eru í auglýsingu á aðalskipulagsstigi, deiliskipulagsstigi og framkvæmdastigi eru umfangsmiklar og umdeildar eins og fram hefur komið í samfélagsumræðu. Í meðfylgjandi umhverfismatsskýrslu kemur m.a. fram að áhrifa mun hugsanlega gæta á stöðu og ástand grunnvatns innan marka Garðabæjar þar sem að m.a. á að fylgjast með áhrifum á Urriðakotsvatn.
Skiplagsnefnd óskar eftir kynningu Hafnarfjarðarbæjar á tillögum áður en að afstaða Garðabæjar liggur fyrir.

Bæjarráð Garðabæjar

03

25. (2126). fundur

Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar 2013-2025, sem felur í sér stækkun Straumsvíkurhafnar og stækkun á efnistökusvæði.
Framsett tillaga að breytingu á aðalskipulagi í vinnslu til kynningar, sbr. 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 122/2010.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar.