Beint í efni

Urriðaholtsskóli 3. áfangi - skoðunarferð

Málsnúmer 2209699

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

33. (2181). fundur

Bæjarráð heimsótti Urriðaholtsskóla og kynnti sér stöðu byggingaframkvæmda við 3. áfanga Urriðaholtsskóla.

Bæjarráð Garðabæjar

02

25. (2126). fundur

Lægstbjóðandi í þriðja áfanga Urriðaholtsskóla, Þarfaþing ehf., hefur skilað inn fullnægjandi gögnum í samræmi við kafla 0.1.11. í útboðs- og verklýsingum.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda. Samningsfjárhæðin er kr. 2.449.005.747.
Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings, sem þegar er liðinn. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð vísar samningnum til undirritunar bæjarstjóra, að framangreindum skilyrðum uppfylltum.

Bæjarráð Garðabæjar

03

19. (2120). fundur

Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við Urriðaholtsskóla, 3. áfanga.

Þarfaþing ehf., kr. 2.449.005.747.-
ÞG verk ehf., kr. 2.630.659.997.-
Flotgólf ehf., kr. 2.464.757.408.-
Ístak hf., kr. 2.745.378.132.-

Kostnaðaráætlun kr. 2.830.336.246.-

Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að ræða við lægstbjóðanda og óska eftir frekari gögnum í samræmi við kafla 0.1.11. í útboðs- og verklýsingum með það að markmiði að gera verksamning um verkefnið að því gefnu að gögnin uppfylli þær kröfur sem fram koma í útboðs- og verklýsingu.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

26. fundur

Stutt kynning á stöðu 3. áfanga Urriðaholtsskóla, íþróttahús og sundlaug. Egill Daði Gíslason af Umhverfissviði Garðabæjar.

Egill Daði Gíslason deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda hjá Garðabæ fór yfir stöðu 3. áfanga Urriðaholtsskóla, íþróttahúss og sundlaugar sem nú er að fara í útboð.

Bæjarráð Garðabæjar

05

8. (2109). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti stöðu á hönnun þriðja áfanga Urriðaholtsskóla og undirbúning framkvæmda. Stefnt er að því að útboð vegna framkvæmda verði auglýst í byrjun mars og að framkvæmdir geti hafist í maí 2024. Verklok eru áætluð vorið 2026. Jafnframt var gerð grein fyrir stöðu framkvæmda við 2. áfanga en gert er ráð fyrir að áfanginn verði tilbúinn fyrir páska 2024.

Bæjarráð samþykkir heimild til auglýsingar útboðs vegna framkvæmda við 3. áfanga.