19. (2120). fundur
19. (2120). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
21.05.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2401084
01
Hörgatún 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hávarðsstöðum ehf., kt. 540617-0150, leyfi til að koma fyrir óupphituðu skýli við vörumóttöku að vestanverðu á jarðhæð á lóðinni Hörgatúni 2.
Málsnúmer 2107247
02
Smáraflöt 22 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Illuga Fanndal Birkissyni, kt. 050574-3189, leyfi til að breyta einangrun hússins, lækkun botnplötu, breytingu á gluggum í stofu til upprunalegs útlits og herbergjaskipan innanhúss, á Smáraflöt 22.
Málsnúmer 2209699
03
Tilboð í framkvæmdir við byggingu Urriðaholtsskóla, 3. áfanga.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við Urriðaholtsskóla, 3. áfanga.
Þarfaþing ehf., kr. 2.449.005.747.-
ÞG verk ehf., kr. 2.630.659.997.-
Flotgólf ehf., kr. 2.464.757.408.-
Ístak hf., kr. 2.745.378.132.-
Kostnaðaráætlun kr. 2.830.336.246.-
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að ræða við lægstbjóðanda og óska eftir frekari gögnum í samræmi við kafla 0.1.11. í útboðs- og verklýsingum með það að markmiði að gera verksamning um verkefnið að því gefnu að gögnin uppfylli þær kröfur sem fram koma í útboðs- og verklýsingu.
Málsnúmer 2401526
04
Holtsbúð 87 - Klaustrið. RFI markaðskönnun.
Minnisblað VSÓ ráðgjafar um samantekt innsendra hugmynda varðandi RFI (Request for information) markaðskönnun varðandi samstarfsverkefni um kaup eða leigu, endurbætur, viðhald og rekstur á húsnæði Klaustursins við Holtsbúð 87. Skilafrestur var til 14. maí og skiluðu alls 8 aðilar inn hugmyndum áður en skilafresturinn rann út.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til frekari úrvinnslu.
Málsnúmer 2405296
05
Tillaga að breytingu á reglum um greiðslur til forráðamanna barna.
Afgreiðslu frestað.
Málsnúmer 2311298
06
Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á samræmdri móttöku flóttafólks.
Lögð fram úttekt gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á samræmdri móttöku flóttafólks.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar velferðarráðs og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að fara nánar yfir þau atrið sem lagt er til að bætt sé úr.
Málsnúmer 2405293
07
Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um niðurstöður frumkvæðisathugunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga. dags. 16.05.24.
Niðurstaða frumkvæðisathugunar gæða og eftirlitsstofnunar velferðarmála á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga, dags. 16. maí 2024. Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar velferðarráðs og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að fara nánar yfir þau atrið sem lagt er til að bætt sé úr.
Málsnúmer 2405195
08
Ársskýrsla Skógræktarfélags Reykjavíkur 2023.
Lögð fram ársskýrsla Skóræktarfélags Reykjavíkur 2023, vegna aðalfundar félagsins sem haldinn var þann 23. apríl 2024.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2405289
09
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu fulltrúa í samstarfsnefnd um málefni friðlandsins Bessastaðanes, dags. 14.05.24.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Lindu Björk Jóhannsdóttur í samstarfsnefnd um friðland Bessastaðaness, sbr. auglýsingu um friðlýsingu Bessastaðanes Stj.B., nr. 755/2023.
Málsnúmer 2405190
10
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um um breytingu á lögræðislögum nr. 71/1997 (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.), 925. mál, dags. 13.05.24.
Málsnúmer 2405299
11
Samstarfssamningur milli umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagður fram samstarfssamningur milli umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um verkefni sveitarfélaga á sviði umhverfis-, orku- og loftlagsmála, dags. 24. apríl 2024.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2405302
12
Göngu og hjólastígar um Kópavogsháls - ósk um umsögn
Lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar um göngu- og hjólreiðasdtíga um Kópavogsháls, nr. 0583/2024, kynning tillögu á vinnslustigi (nýtt deiliskipulag).
Bæjarráð vísar umsagnarbeiðninni til skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2405152
13
Starfs- og verkefnaáætlun Umhverfissviðs.
Sviðsstjóri Umhverfissviðs fór yfir verkáætlun og starfsemi sviðsins.