Holtsbúð 87 - Klaustrið.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15. (2210). fundur
Fyrir liggur að lægstbjóðandi í útboði vegna samstarfs um endurbætur og notkun Holtsbúðar 87 (Klaustrið) hefur ekki enn hrint verkefninu í framkvæmd.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að skoða, í samráði við VSÓ Ráðgjöf hf. sem hefur verið ráðgefandi í málinu, möguleika á framtíðar nýtingu og endurbyggingu Holtsbúðar 87 og gera tillögu til bæjarráðs um framhald málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
3. (2198). fundur
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir viðræðum við Setrið eignarhaldsfélag ehf. sem hlaut flest stig m.t.t. valforsendna útboðs og gæðaþátta varðandi samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur Holtsbúðar 87 - Klaustrið.
Bæjarráð Garðabæjar
03
47. (2148). fundur
Lögð fram kynning E. Sigurðssonar ehf. fyrir hönd óstofnaðs einkahlutafélags, Setursins ehf., um endurbætur og notkun Holtsbúðar 87, Klaustursins.
Biðtími og kærufrestur, sbr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2106, vegna útboðsins Klaustrið í Garðabæ, samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur eru nú liðnir.
E. Sigurðsson f.h. Setursins ehf. hafa staðfest að aðilar verkefnisins standi við framkomið tilboð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við E. Sigurðsson ehf. fyrir hönd Setursins ehf.
Bæjarráð Garðabæjar
04
42. (2143). fundur
Niðurstaða matsnefndar og tillaga að vali á samningsaðila í verkefninu: Klaustrið í Garðabæ, samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur kynnt.
Yfirlit yfir mat á tillögum bjóðenda, einkunnagjöf og rökstuðning matsins lögð fram. Tillaga matsnefndar er að á grundvelli þessa mats verði gengið til samninga við E. Sigurðsson ehf., sem hlaut flest stig m.t.t. valforsendna útboðs fyrir verðtilboð og gæðaþætti.
Bæjarráð felur VSÓ Ráðgjöf að kynna niðurstöður útboðsins fyrir bjóðendum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samningaviðræðna við E. Sigurðsson ehf.
Bæjarráð Garðabæjar
06
23. (2124). fundur
Í samræmi við grein 0.6.1. í útboðsgögnum um Klaustrið í Garðabæ - samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur, samþykkir bæjarráð að tilnefna Björgu Fenger, Gunnar Val Gíslason og Þorbjörgu Þorvaldsdóttur sem fulltrúa Garðabæjar í matsnefnd, sem mun leggja mat á tilboð bjóðanda, í samræmi við valforsendur í grein 0.6.2 í útboðsgögnum. Matsnefnd hefur rétt til að kalla til ráðgjafa og sérfræðinga eftir því sem matsnefnd telur þörf á.
Bæjarráð Garðabæjar
07
22. (2123). fundur
Bæjarráð samþykkir útboðslýsingu fyrir Klaustrið í Garðabæ, samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur. Lýtur útboðið að áhugasamir leggi fram tillögu að starfsemi og endurbótum á húsnæðinu ásamt upplýsingum um hvernig sú starfsemi fellur að því umhverfi þar sem húsnæðið stendur og þeim kvöðum sem á húsnæðinu hvíla. Í útboðinu er um að ræða samkeppnisviðræður eins og þeim er lýst í 37.gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Útboðið er auglýst á EES svæðinu. Um ferlið gilda ákvæði laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Bæjarráð felur VSO Ráðgjöf umsjón með útboðinu.
Bæjarráð Garðabæjar
08
19. (2120). fundur
Minnisblað VSÓ ráðgjafar um samantekt innsendra hugmynda varðandi RFI (Request for information) markaðskönnun varðandi samstarfsverkefni um kaup eða leigu, endurbætur, viðhald og rekstur á húsnæði Klaustursins við Holtsbúð 87. Skilafrestur var til 14. maí og skiluðu alls 8 aðilar inn hugmyndum áður en skilafresturinn rann út.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til frekari úrvinnslu.
Bæjarráð Garðabæjar
09
4. (2105). fundur
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að kanna möguleika á að leita eftir samstarfsaðila til að koma að endurbótum húsnæðisins ásamt því að skapa möguleika á að hefja starfsemi í húsnæðinu.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirbúi markaðskönnun þar sem upplýst er um fyrirætlanir bæjarins um að kanna möguleika á að eiga samstarf við aðila um endurbætur og starfsemi í húsnæðinu.