Hörgatún 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 2401084
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (2120). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hávarðsstöðum ehf., kt. 540617-0150, leyfi til að koma fyrir óupphituðu skýli við vörumóttöku að vestanverðu á jarðhæð á lóðinni Hörgatúni 2.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
1. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna óupphitaðs skýlis, sem nýtt verður sem vörumóttaka.
Nútingarhlutfall innan lóðar verður 0,47 en samkvæmt deiliskipulagi Hörgatúns 2 er hámarks nýtingarhlutfall 0,46.
Við veitingu byggingarleyfis gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að vikið verði frá 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað nýtingarhlutfall varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.