26. fundur
26. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
13.03.2024
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
- Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
- Sigurður Sveinn Þórðarson - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2209699
01
Hönnun - Útboð - Urriðaholtsskóli 3. áfangi
Stutt kynning á stöðu 3. áfanga Urriðaholtsskóla, íþróttahús og sundlaug. Egill Daði Gíslason af Umhverfissviði Garðabæjar.
Egill Daði Gíslason deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda hjá Garðabæ fór yfir stöðu 3. áfanga Urriðaholtsskóla, íþróttahúss og sundlaugar sem nú er að fara í útboð.
Málsnúmer 2306144
02
Íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kynnir stöðu verkefnisins "Íþróttir fyrir alla" sem er í gangi í Garðabæ fyrir einstaklinga með fatlanir. Verkefnið hlaut styrk sl. haust til að geta ráðið leiðbeinendur. Verkefnið er í samstarfi við Stjörnuna, íþróttafélagið Ösp í Reykjavík, KSÍ og ÍF.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kynnti stöðu verkefnisins "Íþróttir fyrir alla" sem er í gangi í Garðabæ fyrir einstaklinga með fatlanir. Verkefnið hlaut styrk sl. haust til að geta ráðið leiðbeinendur. Verkefnið er í samstarfi við Stjörnuna og íþróttafélagið Ösp í Reykjavík. Aldursdreifing iðkenda er frá 6 ára til 48 ára en flest eru 12 til 18 ára. Í byrjun voru þrír þátttakendur en við betri aðstöðu fyrir hópinn til að iðka knattspyrnu í Miðgarði og íþróttahúsi Sjálandsskóla hefur hópurinn vaxið upp í 40 iðkendur. Gunnhildur sagði stuðning ÍTG hafa skipt sköpum varðandi möguleikann á að ráða þjálfara og mæta fjölgun iðkenda.
Málsnúmer 2402243
03
Unicef - stöðumat og aðgerðaráætlun Garðabæjar
Aðgerðaráætlun um Barnvænt samfélag (BVS) lögð fram til kynningar. Gunnar Richardsson starfsmaður nefndar um BVS í Garðabæ.
Gunnar Richardsson starfsmaður nefndar um BVS í Garðabæ fór yfir aðgerðaráætlun um Barnvænt samfélag. Í aðgerðaráætluninni er lögð áhersla á "Barnvænt hagsmunamat" við gerð áætlana eða framkvæmda. Einnig að börn og ungmenni fái upplýsingar í samræmi við aldur og þroska, og tækifæri til að endurmeta ákvarðanir.
Stefnt er á að skila af sér verkefninu til UNICEF í haust þannig að allar aðgerðir séu komnar í gang. Til þess þurfa allir aðilar sem eiga snertiflöt við aðgerðaráætlunina að leggja sig fram um að koma þessu í verk.
Málsnúmer 2403015
04
80 ára afmæli lýðveldisins
Lagt fram til kynningar.
Kynnt var dagskrá í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins.
Málsnúmer 2403052
05
Þórdís Unnur Bjarkadóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur að upphæð kr. 20.000 til Þórdísar Unnar Bjarkadóttur vegna EM U21 í bogfimi í Króatíu 18.-25. febrúar 2024.
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000 til Þórdísar Unnar Bjarkadóttur vegna EM U21 í bogfimi í Króatíu 18.-25. febrúar 2024.
Málsnúmer 2403051
06
Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Önnu Guðrúnar Yu Þórbergsdóttur að upphæð kr. 20.000 vegna EM U21 í bogfimi í Króatíu 18. til 25. febrúar 2024.
ÍTG samþykkir ferðastyrkur til Önnu Guðrúnar Yu Þórbergsdóttur að upphæð kr. 20.000 vegna EM U21 í bogfimi í Króatíu 18. til 25. febrúar 2024.
Formaður ÍTG sagði frá hugmyndum um að halda fund með íþróttafélögum í Garðabæ nú á vordögum. Hann og íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrú hafa verið að kasta á milli sín drögum að dagskrá slíks fundar eða "íþróttaþings". Unnið verður að því að leggja fram nánari drög um það á næsta fundi ÍTG.