Unicef - stöðumat og aðgerðaráætlun Garðabæjar
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
19. fundur
Gunnar Hrafn Richardsson verkefnisstjóri, kynnti aðgerðaráætlun um Barnvænt samfélag (BVS), lögð fram til kynningar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
18. fundur
Gunnar Hrafn Gunnarsson verkefnastjóri tækni- og tómstundamála kynnti stöðumat og aðgerðaráætlun Unicef um barnvænt samfélag.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
26. fundur
Aðgerðaráætlun um Barnvænt samfélag (BVS) lögð fram til kynningar. Gunnar Richardsson starfsmaður nefndar um BVS í Garðabæ.
Gunnar Richardsson starfsmaður nefndar um BVS í Garðabæ fór yfir aðgerðaráætlun um Barnvænt samfélag. Í aðgerðaráætluninni er lögð áhersla á "Barnvænt hagsmunamat" við gerð áætlana eða framkvæmda. Einnig að börn og ungmenni fái upplýsingar í samræmi við aldur og þroska, og tækifæri til að endurmeta ákvarðanir.
Stefnt er á að skila af sér verkefninu til UNICEF í haust þannig að allar aðgerðir séu komnar í gang. Til þess þurfa allir aðilar sem eiga snertiflöt við aðgerðaráætlunina að leggja sig fram um að koma þessu í verk.