Beint í efni

Íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ

Málsnúmer 2306144

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

26. fundur

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kynnir stöðu verkefnisins "Íþróttir fyrir alla" sem er í gangi í Garðabæ fyrir einstaklinga með fatlanir. Verkefnið hlaut styrk sl. haust til að geta ráðið leiðbeinendur. Verkefnið er í samstarfi við Stjörnuna, íþróttafélagið Ösp í Reykjavík, KSÍ og ÍF.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kynnti stöðu verkefnisins "Íþróttir fyrir alla" sem er í gangi í Garðabæ fyrir einstaklinga með fatlanir. Verkefnið hlaut styrk sl. haust til að geta ráðið leiðbeinendur. Verkefnið er í samstarfi við Stjörnuna og íþróttafélagið Ösp í Reykjavík. Aldursdreifing iðkenda er frá 6 ára til 48 ára en flest eru 12 til 18 ára. Í byrjun voru þrír þátttakendur en við betri aðstöðu fyrir hópinn til að iðka knattspyrnu í Miðgarði og íþróttahúsi Sjálandsskóla hefur hópurinn vaxið upp í 40 iðkendur. Gunnhildur sagði stuðning ÍTG hafa skipt sköpum varðandi möguleikann á að ráða þjálfara og mæta fjölgun iðkenda.

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (2084). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráð að veita styrk að fjárhæð kr. 1.000.000 til verkefnisins íþróttir fyrir alla. Um er að ræða verkefni á vegum Ungmennafélags Stjörnunnar og Ungmennafélags Álftaness í samstarfi við Íþróttafélagið Ösp með það að markmiði að bjóða upp á fjölbreyttar æfingar fyrir allan aldur óháð fötlun.

Bæjarráð lýsir sérstakri ánægju með verkefnið og felur fræðslu og menningarsviði að ræða við forráðmenn þess og bjóða samvinnu til að tryggja sjálfbærni og þróun verkefnisins til lengri tíma.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

18. fundur

Stjarnan/Álftanes í samstarfi við Íþróttafélagið Öspina hefur áætlanir um að fara af stað með fótboltaæfingar fyrir einstaklinga með fatlanir núna í haust. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreyttar æfingar fyrir allan aldur óháð fötlun.
Garðabær er með yfir 75 fötluð börn sem bærinn þjónustar af um það bil 175 fötluðum einstaklingum í heildina. Við bindum vonir við að bærinn sjái sér hag í að auka við sitt góða framboð í þjónustu við fatlaða með því að aðstoða okkur og veita okkur styrk til verkefnisins. Okkur telst til að styrkur upp á 1.000.000 kr. myndi tryggja það að verkefnið Fótbolti fyrir alla verði að veruleika.

ÍTG mælir með styrk að upphæð kr. 1.000.000 til verkefnis um íþróttir fatlaðra í Garðabæ á vegum Stjörnunnar og UMFÁ.