Beint í efni

18. fundur

14.06.2023
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

18. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

14.06.2023

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Svanur Þorvaldsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Fundarmenn fóru í vettvangsferð í Útilífsmiðstöð Vífils í Heiðmörk og fengu þar kynningu af hálfu Jónatans Smára Svavarssonar félagsforingja og Björns Hilmarssonar gjaldkera á aðstöðunni og stöðu verkefnisins.

Dagskrá

Málsnúmer 2306082

01

Elín Vilhjálmsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 20.000 til Elínar Vilhjálmsdóttur vegna U15 kvenna HSÍ í Færeyjum 9.-12. júní 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Elínar Vilhjálmsdóttur vegna U15 kvenna HSÍ í Færeyjum 9.-12. júní 2023.

Málsnúmer 2306144

02

Íþróttir fyrir alla - samstarfsverkefni félaga í Garðabæ

Stjarnan/Álftanes í samstarfi við Íþróttafélagið Öspina hefur áætlanir um að fara af stað með fótboltaæfingar fyrir einstaklinga með fatlanir núna í haust. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreyttar æfingar fyrir allan aldur óháð fötlun.

Garðabær er með yfir 75 fötluð börn sem bærinn þjónustar af um það bil 175 fötluðum einstaklingum í heildina. Við bindum vonir við að bærinn sjái sér hag í að auka við sitt góða framboð í þjónustu við fatlaða með því að aðstoða okkur og veita okkur styrk til verkefnisins. Okkur telst til að styrkur upp á 1.000.000 kr. myndi tryggja það að verkefnið Fótbolti fyrir alla verði að veruleika.

ÍTG mælir með styrk að upphæð kr. 1.000.000 til verkefnis um íþróttir fatlaðra í Garðabæ á vegum Stjörnunnar og UMFÁ.

Málsnúmer 2305578

03

Íþróttavika Evrópu 2023.

ÍTG samþykkir að taka þátt í "Íþróttaviku Evrópu" 23.-30. september og sækja um styrk í verkefnið til kynningar á því hvaða aðstaða er í boði fyrir almenning innan bæjarins til almennrar heilsuræktar.

Félög og samtök verða einnig hvött til að taka þátt í hreyfivikunni með því að bjóða opna viðburði fyrir almenning og kynna sína starfsemi.

Önnur mál:
Samþykktvar að festa fundartíma á næsta starfsvetri við miðvikudaga kl. 8:00.
Næsti fundur eftir sumarleyfi er 23. ágúst og síðan annar miðvikudagur í mánuði yfir veturinn.