Íþróttavika Evrópu 2023.
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
18. fundur
ÍTG samþykkir að taka þátt í "Íþróttaviku Evrópu" 23.-30. september og sækja um styrk í verkefnið til kynningar á því hvaða aðstaða er í boði fyrir almenning innan bæjarins til almennrar heilsuræktar.
Félög og samtök verða einnig hvött til að taka þátt í hreyfivikunni með því að bjóða opna viðburði fyrir almenning og kynna sína starfsemi.
Bæjarráð Garðabæjar
02
22. (2075). fundur
Í bréfinu er vakin athygli á Íþróttaviku Evrópu og því beint til sveitarfélaga að taka þátt, með hvatningu til íbúa um að stunda hreyfingu við sitt hæfi. Í bréfinu kemur fram að hægt er að sækja um styrk vegna þátttöku í verkefninu.
Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs og skólanefndar með hvatningu um að taka þátt og kynna íbúum íþróttir og almenna hreyfingu sem er markmið með Íþróttaviku Evrópu.