8. (2109). fundur
8. (2109). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
27.02.2024
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2402345
01
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 115. mál., dags. 16.02.24.
Lagt fram.
Málsnúmer 2402419
02
Bréf Bjarkarhlíðar varðandi framlag til starfseminnar, dags 21.02.24.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2024.
Málsnúmer 2402421
03
Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna skotæfingasvæðis á Álfsnesi, dags. 22.02.24.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2307150
04
Tillaga um breytingu á gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
Lögð fram til afgreiðslu tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara sem gerir ráð fyrir að gjald fyrir akstur í sérhæfða dagdvöl aldraðar verði sem nemur einu fargjaldi með almenningsvögnum en ekki eitt og hálft fargjald eins og almennt er gert ráð fyrir.
Bæjarráð samþykkir tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
Málsnúmer 2402179
05
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi birtingu draga borgarstefnu í samráðsgátt, dags. 22.02.24.
Lögð fram tilkynning frá innviðaráðuneytinu þar sem fram kemur að drög að fyrstu borgarstefnu hafi verið birt í samráðsgátt stjórnvalda en innviðaráðherra fyrirhugar að leggja fram tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu á Alþingi á komandi haustþingi.
Málsnúmer 2209699
06
Hönnun og undirbúningur framkvæmda 3. áfanga Urriðaholtsskóla - kynning.
Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti stöðu á hönnun þriðja áfanga Urriðaholtsskóla og undirbúning framkvæmda. Stefnt er að því að útboð vegna framkvæmda verði auglýst í byrjun mars og að framkvæmdir geti hafist í maí 2024. Verklok eru áætluð vorið 2026. Jafnframt var gerð grein fyrir stöðu framkvæmda við 2. áfanga en gert er ráð fyrir að áfanginn verði tilbúinn fyrir páska 2024.
Bæjarráð samþykkir heimild til auglýsingar útboðs vegna framkvæmda við 3. áfanga.