33. (2181). fundur
33. (2181). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
16.09.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2501192
01
Staða innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar.
Guðbjörg Linda Udengård, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2025. Í apríl var öllum börnum sem fædd eru í júlí 2024 og eldri boðið leikskólapláss. Í lok maí voru börnum sem fædd eru í ágúst og september 2024 boðin leiksólavist. Í kjölfar yfirferðar umsókna var öllum börnum sem fædd eru í október 2024 boðin leikskólavist, auk þess sem innrituð voru eldri börn sem bæst höfðu á biðlista yfir sumarið.
Fjöldi barna í leikskólum Garðabæjar 1. nóvember nk. verður 1.456, þar af eru um 200 börn fædd árið 2024.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2407142
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - lántaka.
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lagt er til að Garðabær taki nú 600.000.000 kr. lán. Um er að ræða skammtímalán með gjalddaga 18. mars 2026, óverðtryggt með 9,3% vöxtum.
Fyrir liggur lánsloforð lánasjóðsins til Garðabæjar fyrir allt að kr. 2.000.000.000, en sú fjárhæð rúmast innan lántökuheimilda Garðabæjar skv. fjárhagsáætlun ársins 2025.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2509209
03
Umsókn Litla Sauna Hússins slf. um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Lögð fram beiðni Litla Sauna Hússins slf., um stöðuleyfi fyrir saunu í Sjálandi. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar og úrvinnslu á umhverfissviði.
Málsnúmer 2509241
04
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi vegna lokahófs í Miðgarði.
Lögð fram beiðni Ungmennafélagsins Stjörnunnar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga fyrir lokahófs Norðurlandamóts í kraftlyftingum, þann 14. ágúst 2025. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verði veitt.
Málsnúmer 2509244
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Álftaness um tímabundið áfengisleyfi vegna herrakvölds í íþróttahúsinu Breiðumýri.
Lögð fram umsókn UMF-Álftaness um tímabundið áfengisleyfi í íþróttamiðstöðinni Breiðumýri, á herrakvöldi sem halda á 18. október 2025. Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2509207
06
Bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands til sveitarstjórna og skipulagsyfirvalda, dags. 10. september 2025.
Lagt fram bréf Náttúruhamfaratrygginga Íslands, dags. 10. september 2025 til sveitarfélaga á Íslandi, skipulagsyfirvalda og sveitarstjórna, varðandi áhrif 16.gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar hjá skipulagsnefnd.
Málsnúmer 2502231
07
Samræmd móttaka flóttafólks 2025.
Lagt fram bréf Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 5. september 2025, varðandi móttöku einstaklinga sem fengið hafa vernd hér á landi. Í bréfinu er upplýst að ekki sé fyrirhugað að leggja fram frumvarp á haustþingi 2025, þar sem kveðið yrði á um breytingar á fyrirkomulagi í tengslum við móttöku einstaklinga sem fengið hafa vernd hér á landi.
Málsnúmer 2209699
08
Urriðaholtsskóli 3. áfangi - skoðunarferð
Bæjarráð heimsótti Urriðaholtsskóla og kynnti sér stöðu byggingaframkvæmda við 3. áfanga Urriðaholtsskóla.