Leikskólar - staða innritunar
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
33. fundur
Leikskólanefnd lýsir yfir mikilli ánægju með góða stöðu í innritun barna í leikskóla í Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
02
33. (2181). fundur
Guðbjörg Linda Udengård, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2025. Í apríl var öllum börnum sem fædd eru í júlí 2024 og eldri boðið leikskólapláss. Í lok maí voru börnum sem fædd eru í ágúst og september 2024 boðin leiksólavist. Í kjölfar yfirferðar umsókna var öllum börnum sem fædd eru í október 2024 boðin leikskólavist, auk þess sem innrituð voru eldri börn sem bæst höfðu á biðlista yfir sumarið.
Fjöldi barna í leikskólum Garðabæjar 1. nóvember nk. verður 1.456, þar af eru um 200 börn fædd árið 2024.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
15. (2163). fundur
Minnisblað um stöðu innritunar í leikskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2025-2026 lagt fram. Í minnisblaðinu kemur fram að innrituð hafi verið 235 börn í leikskóla Garðabæjar og 200 flutningsbeiðnir milli skóla hafi verið afgreiddar. Við innritun er höfð til hliðsjóna kennitala, systkinayfirlit og aldursamsetning í leikskólunum. Öllum börnum sem fædd eru í júlí 2024 og eldri var boðin leikskólavist. Næsta innritunarlota verður í maí 2025 og verður leitast við að innrita börn fædd í ágúst og september 2024 þá.
Leikskólanefnd Garðabæjar
04
27. fundur
Kynning á stöðu innritunar í leikskóla.
Innritun í leikskóla Garðabæjar gekk vel haustið 2024, og nú eru 1415 börn í leikskólum bæjarins. Sérlega vel tókst að manna leikskólana í haust, þrátt fyrir að enn séu nokkrar stöður ómannaðar. Innritun barna fædd í október 2023 er nú lokið, og í janúar 2025 verða opnaðar nýjar ungbarnadeildir í leikskólunum Urriðabóli og Krakkakoti. Samkvæmt tölum frá 10. janúar 2025 eru alls 82 börn, sem orðin eru eins árs, á biðlista, og umsóknum hefur fjölgað lítillega frá desember 2024. Stærsta innritun ársins fer fram dagana 2.- 3. apríl, og allt bendir til þess að hún gangi jafn vel og á síðasta ári.