Beint í efni

5. fundur

17.05.2024
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

5. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

17.05.2024

Kl. -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2405208

01

Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi



Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir breytingum atvinnuhúsnæðis á spildu A úr landi Grundar við norðausturhorn Breiðabólstaðatjarnar á Álftanesi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.

Byggingarleyfisumsókn sem samþykkt var árið 2014 hlaut grenndarkynningarferli sem byggingarleyfi í ódeiliskipulögðu landi og bárust engar athugasemdir.

Þær breytingar sem gerðar hafa verið frá samþykktum uppdráttum í umsókn þeirri sem nú er til umfjöllunar eru ekki þess eðlis að þær kalli á grenndarkynningu að nýju.

Með vísan í 2.msl, 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fellir skipulagsstjóri niður grenndarkynningu og gerir ekki athugasemd við að byggingaleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2310085

02

Lyngholt 19 - Endurskoðun lóðarmarka




Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Víðiholts og deiliskipulagi Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á skipulagsmörkum og lóðarmörkum raðhúslóðarinnar Lyngholt 19. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting ofangreindra deiliskipulagsáætlana.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.


Málsnúmer 2405221

03

Álftanes 1 jarðhiti - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram umsókn Veitna ehf um framkvæmdaleyfi fyrir 6 borholum til rannsóknar á jarðhita á Álftanesi, ásamt því að hreinsa og dýpka eldri holur. Fyrir hönd Garðabæjar veitir skipulagsstjóri leyfi fyrir borunum, hreinsun og dýpkun á holum í landi í eigu sveitarfélagsins. Þar sem að borholur eru í einkalandi skal leyfi landeiganda liggja fyrir. Skipulagsstjóri veitir framkvæmdaleyfi fyrir borununum í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim fyrirvara að leyfi landeiganda liggi fyrir. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2405218

04

Sviðholtsvör 1 skjólveggir - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðinga á lóðarmörkum sem snúa að landi Garðabæjar (götur).

Skipulagsstjóri vísar málinu til skoðunar hjá skipulagsnefnd Garðabæjar.

Málsnúmer 2404541

05

Hólmatún 15 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn til umhverfissviðs um að byggja 1,5 m háa girðingu við Hólmatún 15, sem snýr að bæjarlandi Garðabæjar. Með vísan í samþykktir Garðabæjar um veggi og girðingar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við útfærslu girðinga á lóðarmörkum að opnu svæði í eigu Garðabæjar.

Málsnúmer 2405070

06

Gullakur 1 - Tilkynningarskyld framkvæmd - Pergola

Lögð fram fyrirspurn um staðsetningu smáhýsis innan lóðar Gullakurs 1. Samkvæmt teikningum er smáhýsið 8,75 m², 2,5 m á hæð og er staðsett 1,6 m frá lóðarmörkum aðliggjandi lóðar (Garðabæ).

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við staðsetningu og stærð smáhýsis, meðan útfærsla þess er í samræmi við innsendar teikningar.

Málsnúmer 2405130

07

Rjúpnahæð 12 - fyrirspurn til skipulas ósk um deilsiskipulagsbreytingu

Lögð fram fyrirspurn um fjölgun íbúða við Rjúpnahæð 12. Með vísan í eldri fyrirspurnir sama eðlis, um fjölgun íbúða í einbýlishúsum í Garðabæ, er afar ólíklegt að skipulagsnefnd fallist á að vísa umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í einbýlishúsahverfi í ferli.

Málsnúmer 2405245

08

Dyngjugata 18 - Steypa bílastæði - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa við Dyngjugötu 18 um útfærslu á steyptu bílastæði sem gerir ráð fyrir meðhöndlun ofanvatns innan lóðar. Ákvæði um gegndræpt yfirborð bílastæða er sett fram í kafla 4.4.1.7 í deiliskipulagi norðurhluta Urriðaholts 2. áfangi. Með vísan í afgreiðslu sambærilegra umsókna gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að vikið verði frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað útfærslu á bílastæði varðar, svo lengi sem að ofanvatni frá bílastæði sé veitt í þar til gerðan móttaka innan lóðar.

Málsnúmer 2404296

09

Tinnuvellir 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir fyrir Tinnuvelli 11 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar dags. 29.04.24.

Samkvæmt skipulagi er byggingarreitur 30x13 m og má á aðaluppdráttum sjá að bygging er 30 cm lengri en sem nemur lengd á byggingarreit.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreinda lengd byggingar varðar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2403415

10

Útholt 1 og 3 - Breyttir hæðarpunktar

Lögð fram fyrirspurn hönnuðar fyrir hönd lóðarhafa um það hvort samþykkt verði að gólfhæð hússins Útholt 1 verði 30 cm hærri en gólfkóti samkvæmt hæðarblaði og hússins Útholt 3 20 cm hærri. Heildarhæð húss eins og drög að aðaluppdráttum gerir ráð fyrir er vel undir hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað gólfkóta húsanna varðar eins fram kemur í fyrirspurn og meðan að heildarhæð húss er vel undir leyfilegri hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.