Dyngjugata 18 - Steypa bílastæði - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2405245
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
5. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa við Dyngjugötu 18 um útfærslu á steyptu bílastæði sem gerir ráð fyrir meðhöndlun ofanvatns innan lóðar. Ákvæði um gegndræpt yfirborð bílastæða er sett fram í kafla 4.4.1.7 í deiliskipulagi norðurhluta Urriðaholts 2. áfangi. Með vísan í afgreiðslu sambærilegra umsókna gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að vikið verði frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað útfærslu á bílastæði varðar, svo lengi sem að ofanvatni frá bílastæði sé veitt í þar til gerðan móttaka innan lóðar.