Beint í efni

Lyngholt 19 - Endurskoðun lóðarmarka

Málsnúmer 2310085

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

7. fundur




Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

5. fundur




Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Víðiholts og deiliskipulagi Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á skipulagsmörkum og lóðarmörkum raðhúslóðarinnar Lyngholt 19. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting ofangreindra deiliskipulagsáætlana.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.


Bæjarstjórn Garðabæjar

03

18. (933). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Víðiholts og deiliskipulagi Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts í tilefni umsóknar um breytingu á lóðarmörkum lóðarinnar við Lyngholt 19. Grenndarkynna skal eigendum lóða við Víðiholt og Lyngholt 4, 6, 8, 10, 13, 15 og 17.“ (Mál nr. 2310085)

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

18. (933). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

48. (2101). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Víðiholts og deiliskipulagi Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts í tilefni umsóknar um breytingu á lóðarmörkum lóðarinnar við Lyngholt 19.

Grenndarkynna skal eigendum lóða við Víðiholt og Lyngholt 4, 6, 8, 10, 13, 15 og 17.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Víðiholts og deiliskipulags Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts sem gerir ráð fyrir því að raðhúslóðin Lyngholt 19 stækki til norðaustur um ca 60 m2. Deiliskipulagsvæði Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts stækkar og deiliskipulagssvæði Víðiholts minnkar sem því nemur.
Lögun núverandi lóðar er óhentug og lóðarhafa óska eftir því að lóðarmörk verði lagfærð til þess að bæta ástandið.
Skipulagsnefnd metur tillögurnar sem óverulegar breytingar á umræddum skipulagsáætlunum í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísar þeim til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum lóða við Víðholt og Lyngholti 4,6,8,10,13, 15 og 17.