29. (2224). fundur
29. (2224). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
01.09.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Almar Guðmundsson
Dagskrá
01
Greiðslur vegna nefndarsetu.
Lögð fram tillaga um fjölgun áheyrnarfulltrúa og greiðslur til þeirra fyrir setu í nefndum bæjarfélagsins og um að viðmiðunarfjárhæð nefndarlauna taki breytingum miðað við launavísitölu 1. júlí ár hvert.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs úrvinnslu málsins.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi .
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (BF, MB, HBE, SS) gegn einu (ÞÞ) að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi sem gera m.a. ráð fyrir veislusal til útleigu fyrir allt að 105 manns að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.skipulagslaga.
Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir veitingarými í flokki II. Í þeim flokki eru umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og sem almennt kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.
Skipulagsnefnd leggur til að bætt verði við eftirfarandi ákvæðum í byggingarlýsingu á uppdrætti:
“- Í samræmi við notkun byggingarinnar í byggingarlýsingu sem veitingarými í flokki II og með tilliti til aðstæðna þá skal samkvæmi vera alfarið innanhúss eftir kl. 23:00 um helgar en kl. 22:00 á virkum dögum. Á sama tíma skal lækka niður í hljóðkerfum og annarri háværri tónlist.
- Notkun hljóðkerfa utanhúss er óheimil.
- Flugeldanotkun er óheimil nema á þeim tímum sem reglur um almenna notkun kveða á um.
- Bálkestir eru óheimilir nema með tilskyldum leyfum.
- Ákvæði um notkun hússins sem sett eru fram í þessari byggingarlýsingu skal endurskoða í kjölfar gildistöku deiliskipulags- og aðalskipulagsbreytingar sem nær til svæðisins ef ástæða er til.
Umfjöllun byggingarlýsingar um skipulag á svæðinu skal breytt og þar skal standa:
- „Lóðin stendur innan svæðis sem skilgreint er sem opið svæði í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Samkvæmt kafla 3.15 í greinargerð aðalskipulagsins kemur fram að á opnum svæðum megi gera ráð fyrir veitingaaðstöðu. Ekkert deiliskipulag er formlega í gildi fyrir svæðið (Norðurnes). „
Skipulagsnefnd mælist til þess að fullt tillit sé tekið til Breiðabólstaðatjarnar sem nýtur hverfisverndar í aðalskipulagi. Ekki hafa verið mótaðar sérstakar reglur um umgengni í og við tjörnina og beinir nefndin því til umhverfisnefndar að skoða hvort ástæða sé til að móta tillögur þar um.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að svörum við athugasemdum sem borist hafa og gerir nefndin engar athugasemdir við þau.
Meirihluti skipulagsnefndar samþykkti með 4 atkvæðum (BF, ÁSÁ, AEV og KV) gegn einu (EÞE) að gera ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem byggir á grenndarkynntum gögnum og byggingarlýsingu með ofangreindum breytingum.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð bílageymslu á baklóð einbýlishúsalóðarinnar Bæjargils 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Byggður flötur byggingar samkvæmt uppdrætti er í samræmi við gildandi deiliskipulag Bæjargils og grenndarkynnta tillögu frá árinu 2008.
Umsóknin gerir ráð fyrir gluggalausum kjallara undir bílageymslu og stiga á milli hæða.
Nýtingarhlutfall lóðar ef tillit er tekið til flatarmáls kjallara er 0.5 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall 0.45.
Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 1, 5, 35 og 37.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Skeiðakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir nýtingu á gluggalausum kjallararýmum og útitröppu sem tengir þau við verönd.
Í skilmálum deiliskipulags grein 1.1.8 segir að stærð neðri hæðar skuli ekki fara yfir 70% af flatarmáli aðalhæðar. Samkvæmt tillögu er flatarmál neðri hæðar orðið stærra en flatarmál efri hæðar.
Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Skeiðakurs 1, 3 og 4 sem og Sandakurs 1 og 3, Seinakurs 2 og Stórakurs 1 og 3.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (BF, MB, HBE, SS) gegn einu (ÞÞ) að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis öðru sinni eftir auglýsingu en nú að liðnum framlengdum athugasemdafresti. Fyrir mistök láðist að auglýsa kynningu tillögunnar í Lögbirtingarblaði og í samráði við HMS var athugasemdafrestur framlengdur. Engar athugasemdir bárust innan framlengds athugasemdafrests og standa því fyrri samþykktir skipulagsnefndar (10. apríl 2026) og bæjarstjórnar (14. apríl 2026).
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts öðru sinni eftir auglýsingu en að liðnum framlengdum athugasemdafresti. Fyrir mistök láðist að auglýsa kynningu tillögunnar í Lögbirtingarblaði og í samráði við HMS var athugasemdafrestur framlengdur. Engar athugasemdir bárust innan framlengds athugasemdafrests og standa því fyrri samþykktir skipulagsnefndar (10. apríl 2026) og bæjarstjórnar (14. apríl 2026).
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hafnarfjarðarvegur dsk frá Lyngási í Engidal.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að bráðabirgðadeiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar frá Lyngási að Engidal. Bráðabirgðadeiliskipulag Hafnarfjarðarvegar frá Lyngási að Vífilsstaðavegi var samþykkt árið 2019.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Vinastræti 18-26 - Deiliskipulagsbreyting.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 og háholts.
Tillagan var kynnt á fundi skipulagsnefndar 11. júní síðastliðinn. Hugmyndir sem tillagan byggir á var kynnt á íbúafundi 11. mars síðastliðinn.
Í tillögu að deiliskipulagsbreytingu felst að:
-Skilmálum á lóð Vinastrætis 20-24 er breytt þannig að lóðin verður eftir breytingu lóð fyrir atvinnu og íbúðarhúsnæði.
-Samtals er heimilt að byggja allt að 35 íbúðir á lóð, þar af allt að 12 íbúðir minni en 90m² birt stærð
-Lóð Vinastrætis 18 er felld niður og verður eftir breytingu hluti af torgi. Lóð nr. 20-24 stækkar en lóð nr. 26 minnkar.
-Byggingarreitur á lóð nr. 18 er felldur niður.
-Byggingarreitir og kennisnið á lóð Vinastrætis 20-24 breytast.
-Samhliða deiliskipulagsbreytingunni er gerð númerabreyting á lóðum.
-Lóð Vinastrætis 20-24 verður eftir breytingu Vinastræti 18-22. Lóð Vinastrætis 26 verður eftir breytingu Vinastræti 24. Lóð Vinastrætis 28 verður eftir breytingu Vinastræti 26.
-Kvöð er um gegnumakstur og samnýtingu bílastæða á lóðum Vinastrætis 18-22 og Vinastrætis 24. Sjá skilmálatöflu á skýringaruppdrætti.
-Bílastæðakrafa fyrir íbúðir er tvö stæði fyrir íbúðir stærri en 90 m² en eitt stæði fyrir íbúðir minni en 90 m² og bílastæðakrafa fyrir atvinnuhúsnæði er 1 stæði
fyrir hverja 35 m² atvinnuhúsnæðis.
-Á lóð skulu vera 10 stæði fyrir íbúðir og öll stæði fyrir atvinnurými, staðsett skv. skipulagsuppdrætti og mæliblaði. Öll bílastæði skulu vera innan lóðar. Aðkoma að bílastæðum á lóð og bílgeymslu er frá Vinastræti. Kvöð er um aðkomu að bílastæðalóð og gegnumakstur á lóð. Rekstur, umhirða og viðhald bílastæða og akstursleiða á lóð skal vera á sameiginlegri ábyrgð eigenda húsa á lóðinni í hlutfalli við
skiptingu bílastæða á lóðinni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fallið er frá gerð skipulagslýsingar og forkynningu þar sem að tillagan samræmist gildandi aðalskipulagi.
09
Endurskoðun á friðlýsingu Reykjanesfólkvangs.
Lögð fram skýrsla Náttúruverndarstofnunar varðandi valkosti vegna endurskoðunar á friðlýsingu Reykjanesfólksvangs, friðlýst svæði innan Garðabæjar.
Bæjarráð staðfestir tillögu umhverfisnefndar um að valkostur a) verði valinn og að svæðið verði friðlýst sem landslagsverndarsvæði innan Garðabæjar.
10
Erindi Náttúruhamfaratryggingar Íslands til sveitarstjórna og skipulagsyfirvalda, dags. 27.08.26.
Lagt fram bréf Náttúruhamfaratrygginga Íslands, dags. 27. ágúst 2026 til sveitarfélaga á Íslandi, skipulagsyfirvalda og sveitarstjórna, varðandi áhrif 16.gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar hjá umhverfissviði og til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
11
Erindi til sveitarstjórna varðandi álit á vindorkuhugmyndum rammaáætlunar, dags. 25.08.26.
Lagt fram erindi Háskólans á Akureyri varðandi álit sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu hjá umhverfissviði og til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
12
Stofnun hollvinafélags Garðakirkju.
Bæjarstjóri lagði fram tillögu um framlag Garðabæjar til Hollvinafélags Garðakirkju.
Bæjarráð samþykkir að Garðabær leggi til kr. 500.000 sem framlag í stofnsjóð nýstofnaðs Hollvinafélags Garðakirkju. Bæjarráð óskar Garðbæingum og Garðakirkju til hamingju með 60 ára endurvígsluafmæli kirkjunnar.
Fylgiskjöl
13
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á Herra- og kvennakvöldi Ungmennafélags Álftaness 06.11.26.
Lögð fram umsókn UMF-Álftaness um tímabundið áfengisleyfi í íþróttamiðstöðinni Breiðumýri á herra- og kvennakvöldi sem halda á dagana 6. og 7. nóvember 2026.
Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
14
Gjöf á útilistaverki eftir Pétur Bjarnason myndhöggvara.
Lagt fram erindi Sigríðar Jóhannesdóttur, ekkju Péturs Bjarnasonar myndhöggvara, þar sem fram kemur vilji hennar til að gefa Garðabæ útilistaverkið „Kringja“ eftir Pétur.
Bæjarráð færir Sigríði þakkir fyrir gjöfina og felur menningarfulltrúa í samráði við umhverfissvið að finna útilistaverkinu staðsetningu og undirbúa uppsetningu þess.