16. fundur
16. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
11.11.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ásgeir Sigurður Ágústsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Agla Eir Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Einar Þór Einarsson - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - áheyrnarfulltrúi
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mælikvarða 1:3000, skýringaruppdrætti í 1:3000 og greinargerð í A4 broti.
Greinargerð samanstendur af 5 köflum; Forsendur, Deiliskipulag, Almennir skilmálar, Sérákvæði nýbygginga og Umhverfismat.
Skipulagsráðgjafar tillögunnar eru Arkís arkitektar (Edda Kristín Einarsdóttir) og Landslagsarkitektastofan Landslag (Þráinn Hauksson). Til ráðgjafar eru Efla ehf (Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir) vegna umfeðarmála og Verkís verkfræðistofa vegna náttúrfarsþátta (Arnór Þórir Sigfússon).
Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis. Breytingartillögu aðalskipulags hefur nú verið vísað til auglýsingar í bæjarstjórn og hefur borist HMS til athugunar.
Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði. Innan deiliskipulagsvæðis er nyrðri helmingur Bessastaðatjarnar, Kasthúsatjörn og Breiðabólstaðatjörn.
Skipulagssvæðið er um 124 hektarar að flatarmáli. Stærstur hluti þess er í einkaeigu.
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá forkynntri tillögu og eru þær helstar:
- Íbúðareiningum hefur verið fækkað að lágmarki um 20
- Rað- og parhús verða á einni hæð í stað tveggja og grunnflötur þeirra stækkar.
- Heimilt er byggja einbýli á parhúsalóðum sem snúa að Bessastaðatjörn.
- Hámarks mænishæð einbýlishúsa lækkar.
- Parhús vestan Blikastígs verða einnar hæðar án rishæðar. Þök skulu vera lögð torfi.
- Parhús á suðurjaðri svæðis verða 1 hæð í stað tveggja.
- Aðkomu að parhúsagötu vestan Blikastígs breytt og nú gert ráð fyrir hringtorgi.
- Fyrirkomulagi bílastæða við Hlöðuna breytt til aðlögunar að því sem til staðar er.
- Staðsetning golfskála breytist, verður austan gatnamóta Norðurnesvegar og Jörfavegar í stað staðsetningar norðaustan Eyvindarholts.
- Ekki er lengur gert ráð fyrir stækkunarmöguleika gistihúss á Eyvindarholti 1 til suðurs inn á land Eyvindarholts 2.
Framlögð tillaga gerir ráð fyrir eftirfarandi:
- Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir að hámarki 137 íbúðareiningum í sérbýli. (54 einbýlishúseiningar, 51 raðhúseining og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi og við Bessataðatjörn eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því að hámarki 175 húseiningar.
- Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði en golfvöllurinn verður hannaður í kjölfar staðfestingar deiliskipulags innan þess svæðis sem skilgreint er sem golfvallarsvæði í deiliskipulaginu.
- Lóðir fyrir tvö einnar hæðar einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn.
- Lóð fyrir hverfisstöð þjónustumiðstöðvar Garðabæjar verður skilgreind þar sem áhaldahús er fyrir.
- Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs.
- Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum.
- Gert er ráð fyrir lítilli aðstöðuhöfn nyrst og austast á Eyri ásamt dælustöð vegna fyrirhugaðrar Skerjafjarðarfráveitu.
- Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir að mynda tjarnir nyrst á Eyri til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar.
- Gert er ráð fyrir aðalaðkomuvegi að byggð á Norðurnesi um Jörfaveg, sem liggur frá Norðurnesvegi að mestu í legu núverandi vegar.
- Gert er ráð fyrir einum aðkomuvegi að Stekk, Tjörn, Asparvík og Eyvindarholti 1, frá Norðurnesvegi.
Umsögn Vegagerðarinnar, (sem fer með siglinga-og hafnarmál, þ.m.t. varnir gegn sjávarflóðum og landbroti) dags. 12. febrúar 2026 liggur fyrir og þar kemur fram að lágmarksgólfkóti Aðaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem er 5,2 mys uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miðar við 5,15 mys.
Skipulagsnefnd vísar tillögu deiliskipulags Norðurness til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.
02
Breyting á vaxtarmörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar. Aðal- og svæðisskipulagsbreyting.
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu nefndinni grein fyrir stöðu málsins og innihaldi tillagna að verkefnalýsingu fyrir svæðisskipulagsbreytingu og aðalskipulagsbreytingu.
03
Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns neðra að lokinni auglýsingu ásamt tillögum að svörum við athugasemdum.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
04
Hraunhólar - Lynghólar - samgöngustígur - Deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að stígur sem liggur um Lynghóla úr vestri að húsi nr. 13 og þar yfir í Hraunhóla til austurs verði felldur niður sem stofnstígur og verði almennur stígur. Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
05
Bæjargarður, dsk br, stofnstígur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs Garðabæjar sem gerir ráð fyrir stofnstíg frá stofnstíg þeim sem liggur úr Molduhrauni að Garðfit til vesturs að fyrirhugaðri framlengingu Álftanesvegar við bæjarmörk að Hafnarfirði (hjá Fjarðarkaupum). Er það gert til samræmis við gildandi aðalskipulag og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til stígakerfis.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
06
Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar ásamt minnisblaði frá Eflu um hugsanleg viðbrögð við athugasemdum. Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulags-og tæknifræðingur gerði grein fyrir innihaldi minnisblaðs Eflu. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
07
Móar, endurskoðað deiliskipulag
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Móa ásamt minnisblaði frá Eflu um hugsanleg viðbrögð við athugasemdum. Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulags-og tæknifræðingur gerði grein fyrir innihaldi minnisblaðs Eflu. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
08
Bæjargil 106 -116 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn íbúa við Bæjargil 106-116 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
09
Græn svæði háholt Hnoðraholts - Hönnun
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt gerði grein fyrir drögum að útfærslu opins svæðis efst á Hnoðraholti og milli byggðar í Þorraholti og núverandi byggðar í Hnoðraholti.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
10
Vetrarmýri - Dsk.br. - Skólalóð
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi skólalóðar í Vetrarmýri austan Miðgarðs.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
11
Spítalavegur 15 - Breyting á lóðamörkum
Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum lóðarinnar Spítalavegur 15 að Vífilsstöðum sem er sett fram á mæliblaði. Á þeirri lóð stendur tvílyft hús, byggt 1972 sem hefur verið nýtt undanfarin ár af grunnskóla Hjallastefnunnar. Vegna hönnunar Vífilsstaðavegar sem nú verður endurnýjaður er nauðsynlegt að skerða lóðina á tveimur stöðum sem nemur 313,5 m2 annarsvegar í norðausturhorni og 78,6 m2 hinsvegar í norðvesturhorni.
Deiliskipulag er ekki í gildi á Vífilsstöðum en breytingartillagan er í samræmi við rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands.
Skipulagsnefnd samþykkir breytt lóðarmörk í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12
Brekkugata 8 - stækkun lóðar - fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um mögulega stækkun lóðarinnar Brekkugata 8 á kostnað græns svæðis ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn er svar skipulagsnefndar neikvætt.
13
Miðstöð um öryggisráðstafanir á Hólmsheiði: Skilgreining samfélagsþjónustu (S63) - USK26100141
Lögð fram lýsing á skipulagsgerð vegna Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 sem nær til svæðis fyrir samfélagsþjónustu á Hólmsheiði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við framlagða lýsingu.