Breyting á vaxtarmörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar. Aðal- og svæðisskipulagsbreyting.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (958). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarsvæðið 2040, annarsvegar og tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 hinsvegar. Svæðisskipulagstillagan gerir ráð fyrir breytingu á vaxtarmörkum byggðar í Vífilsstaðalandi þannig að þau verði dregin um Elliðavatnsveg frá Vífilsstöðum að hesthúsabyggðinni á Kjóavöllum þannig að hesthúsabyggðin lendi öll innan vaxtarmarka. Aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir athafnasvæði í Rjúpnahlíð og Rjúpnadal austan við fyrirhugaðan kirkjugarð í Rjúpnadal. Gerðar hafa verið breytingar á lýsingarskýrslum m.a. lögð ríkari áhersla á að við mótun tillagna verði tekið sérstakt tillit til nálægðar fyrirhugaðs athafnasvæðis við íbúðarbyggð. Skipulagsnefnd samþykkti framlagðar verkefnislýsingar í samræmi við 1.mgr.23.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skal hún send svæðisskipulagsnefnd og þeim sveitarfélögum sem aðild eiga að svæðisskipulaginu til samþykktar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (2161). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarsvæðið 2040, annarsvegar og tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 hinsvegar.
Svæðisskipulagstillagan gerir ráð fyrir breytingu á vaxtarmörkum byggðar í Vífilsstaðalandi þannig að þau verði dregin um Elliðavatnsveg frá Vífilsstöðum að hesthúsabyggðinni á Kjóavöllum þannig að hesthúsabyggðin lendi öll innan vaxtarmarka.
Aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir athafnasvæði í Rjúpnahlíð og Rjúpnadal austan við fyrirhugaðan kirkjugarð í Rjúpnadal.
Gerðar hafa verið breytingar á lýsingarskýrslum m.a. lögð ríkari áhersla á að við mótun tillagna verði tekið sérstakt tillit til nálægðar fyrirhugaðs athafnasvæðis við íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagðar verkefnislýsingar í samræmi við 1.mgr.23.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skal hún send svæðisskipulagsnefnd og þeim sveitarfélögum sem aðild eiga að svæðisskipulaginu til samþykktar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lagðar fram verkefnislýsingar fyrir tillögu að breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarsvæðið 2040, annarsvegar og tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 hinsvegar.
Svæðisskipulagstillagan gerir ráð fyrir breytingu á vaxtarmörkum byggðar í Vífilsstaðalandi þannig að þau verði dregin um Elliðavatnsveg frá Vífilsstöðum að hesthúsabyggðinni á Kjóavöllum þannig að hesthúsabyggðin lendi öll innan vaxtarmarka.
Aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir athafnasvæði í Rjúpnahlíð og Rjúpnadal austan við fyrirhugaðan kirkjugarð í Rjúpnadal.
Gerðar hafa verið breytingar á lýsingarskýrslum m.a. lögð ríkari áhersla á að við mótun tillagna verði tekið sérstakt tillit til nálægðar fyrirhugaðs athafnasvæðis við íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagðar verkefnislýsingar í samræmi við 1.mgr.23.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skal hún send svæðisskipulagsnefnd og þeim sveitarfélögum sem aðild eiga að svæðisskipulaginu til samþykktar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins og mats á því hvaða kostir eru varðandi áframhald verkefnisins.
Skipulagsnefnd bendir á að svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins samþykkti einróma á fundi sínum þann 14. október 2022 lýsingu verkefnisins og segir m.a. í bókun þess fundar: "Breytingin er hluti af innleiðingu Garðabæjar á stefnumörkun svæðisskipulagsins. Unnið er að uppbyggingu þéttrar blandaðrar byggðar með endurnýtingu athafnasvæða í grennd við miðbæ."
Skipulagsnefnd bendir ennfremur á það að í umsögn Skipulagsstofnunar um verkefnislýsingu dags. 22.desember 2022 segir: "Að mati Skipulagsstofnunar er Rjúpnahlíð verðmætt byggingarland á áberandi stað sem getur hentað fyrir margvíslega landnotkun, uppbyggingu og starfsemi."
Sterk andmæli komu hinsvegar fram í umsögn Kópavogsbæjar og í ábendingum íbúa Rjúpnahæðarhverfis sem liggur að umræddu svæði.
Skipulagsnefnd áréttar þá sýn sína að skipulag athafnasvæðis á þessum stað í námunda við íbúðabyggð og mikilvæg útivistarsvæði taki fullt tillit til nágrennis síns og vísar tilmælum þess efnis til mótunar skipulagsins. Ákvæði aðalskipulags og deiliskipulags geta á ýmsan hátt komið til móts við þann ásetning.
Skipulagsnefnd felur umhverfisviði að endurskoða texta verkefnislýsingar, þar sem árétta skal sýn skipulagsnefndar um áherslur sem taka tillit til staðsetningar svo nærri íbúðabyggð. Leggja skal endurskoðaða verkefnislýsingu fyrir fund nefndarinnar. Samþykkir nefndin lýsinguna verður hún send umsagnaraðilum og svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
13. fundur
Skipulagsstjóri fór yfir valkosti varðandi nálgun verkefnisins og næstu skref.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsstjóra og skipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
12. fundur
Lagðar fram að nýju skipulagslýsingar fyrir tillögu að breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins "Höfuðborgarsvæðið 2040" annarsvegar og fyrir tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 hins vegar. Svæðisskipulagstillagan gerir ráð fyrir færslu vaxtamarka í Rjúpnahlíð og aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir breyttri landnotkun í Rjúpnahlíð þar sem að opið svæði yrði athafnasvæði.
Lýsingarnar voru auglýstar í lok árs 2022 og sendar umsagnaraðilum til umsagnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur skilning á því að almenningur, m.a. íbúar í efri byggðum Kópavogs, sé annt um að staðinn sé vörður um opin svæði til útivistar í nágrenni við íbúabyggð. Skipulagsnefnd bendir á að Garðabær hefur í skipulagsáætlunum sínum skilgreint stór opin svæði til útivistar eins og í Heiðmörk, Sandahlíð og í Smalaholti auk friðlýstra svæða sem þekja nú stóran hluta bæjarlandsins og nýtast íbúum höfuðborgarsvæðisins alls.
Í umsögn Skipulagsstofnunar við ofangreindar skipulagslýsingarnar dags. 22.desember 2022 kom fram að að mati stofnunarinnar sé Rjúpnahlíð verðmætt byggingarland sem gæti hentað fyrir margvíslega landnotkun. Gera þyrfti betur grein fyrir valkostum í umhverfismatsskýrslu, þ.e. að fleiri kostir yrðu bornir saman við athafnasvæði eins og íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd vísar því til umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa að skoðað verði hvort endurskoða mætti vaxtarmörk byggðar eins og þau eru sett fram í lýsingu að tillögu á breytingu á svæðisskipulagi. Einnig að umhverfismatsskýrsla áætlanna skoði fleiri kosti til landnotkunar til samanburðar við valkostinn athafnasvæði. Eins skuli sett fram markmið um að ákvæði aðalskipulagstillögunnar stuðli að því að önnur landnotkun eins og athafnasvæði falli eins vel við aðliggjandi byggð og hægt er.
Skipulagsnefnd áréttar mikilvægi þess áform um athafnasvæði í Rjúpnahlíð séu sett í samhengi við þá stefnu svæðisskipulags og aðalskipulags um samgöngu-og þróunarás meðfram Hafnarfjarðarvegi og aðliggjandi byggð.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
07
7 (22-26). fundur
Skipulagsstjóri kynnti tillögu af breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Umhverfisnefnd samþykkir tillögu sem kynnt var.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
15. (911). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar sem gerir ráð fyrir að opið svæði í Rjúpnahlíð breytist í athafnasvæði. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi. (Mál nr. 2111064)
Bæjarráð Garðabæjar
09
39. (2046). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar sem gerir ráð fyrir að opið svæði í Rjúpnahlíð breytist í athafnasvæði. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.
Svæðisskipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum 14. október 2022 fyrirliggjandi lýsingu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015 - 2040 er varðar færslu á vaxtarmörkum svæðisskipulags við Rjúpnahlíð í Garðabæ. Lýsingin verður send aðildarsveitarfélögum til afgreiðslu sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga. Þá verður hún sérstaklega kynnt þeim sveitarfélögum sem þess óska. Leitað verður umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
10. fundur
Lagðar fram tillögur að lýsingu á breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins annarsvegar og lýsingu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 hinsvegar.
Svæðisskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir breytingu á vaxtarmörkum byggðar en aðalskipulags breytingin gerir ráð fyrir að opin svæði í Rjúpnahlíð breytist í athafnasvæði.
Áður hefur skipulagsnefnd og bæjarstjórn samþykkt sameiginlega lýsingu en svæðisskipulagsnefnd mælti með því að lýsingar verði aðskildar og eru þær lagðar fram sem slíkar.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur sem lýsingu svæðisskipulagsbreytingar í samræmi við 23.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og sem lýsingu aðalskipulagsbreytingar í samræmi við 1.mgr.30.gr.sömu laga.
Svæðisskipulagsnefnd hefur tekið lýsingu svæðisskipulagsbreytingarinnar til meðferðar og sent hana til sveitarfélaga sem aðild eiga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til afgreiðslu.
Lýsing vegna aðalskipulagsbreytingar skal auglýst og send umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
9. fundur
Lögð fram bókun svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins þar sem fram kemur að nefndin feli svæðisskipulagsstjóra að hefja gerð lýsingar fyrir svæðisskipulagsbreytingu í samstarfi við skipulagsstjóra Garðabæjar þar sem gert verði ráð fyrir breytingu á vaxtarmörkum í Smalaholti og Rjúpnahlíð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar felur skipulagsstjóra að breyta áður samþykktri lýsingu svæðis-og aðalskipulagsbreytingar þannig að hún nái eingöngu til fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar.
Eftir sem áður er stefnt að því að tillögur að breytingum svæðisskipulags og aðalskipulags hljóti samhliða ferli.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
6. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir verkefnislýsingu að breytingu Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2040 og tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.
Breyting svæðisskipulags felst í breytingu á vaxtamörkum í Smalaholti og Rjúpnahlíð.
Breyting aðalskipulags felst í nýrri landnotkun í Rjúpnahlíð og Rjúpnadal þar sem að opin svæði (Op) breytast í athafnasvæði (At) sem ná til um 20 hektara lands.
Bæjarstjórn hefur samþykkt að verkefnislýsingin skuli send til meðferðar hjá svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins en um breytingar á svæðisskipulagi fer samkvæmt 22.-25. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
6. (902). fundur
Bæjarstjórn samþykkir verkefnalýsingu vegna breytinga á vaxtarmörkum svæðisskipulags í Smalaholti og Rjúpnahlíð. Verkefnalýsingin tekur einnig til breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Verkefnalýsingin skal send til meðferðar hjá svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins en um breytingar á svæðisskipulagi fer samkvæmt 22.-25. gr skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2111064)
Bæjarráð Garðabæjar
14
12. (2019). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja verkefnalýsingu vegna breytinga á vaxtarmörkum svæðisskipulags í Smalaholti og Rjúpnahlíð. Verkefnalýsingin tekur einnig til breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Verkefnalýsingin skal send til meðferðar hjá svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins en um breytingar á svæðisskipulagi fer samkvæmt 22.-25. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
4. fundur
Lögð fram verkefnislýsing að breytingu Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2040 og tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.
Breyting svæðisskipulags felst í breytingu á vaxtamörkum í Smalaholti og Rjúpnahlíð.
Breyting aðalskipulags felst í nýrri landnotkun í Rjúpnahlíð og Rjúpnadal þar sem að opin svæði (Op) breytast í athafnasvæði (At) sem ná til um 20 hektara lands.
Í samræmi við 1.mgr.23.gr. og 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 samykkir skipulagsnefnd framlagða verkefnislýsingu og skal hún send svæðisskipulagsnefnd til meðferðar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
14. fundur
Ssipulagsstjóri fer yfir forsendur tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem kallar á breytingu vaxtamarka í svæðisskipulagi.