Móar, endurskoðað deiliskipulag
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
4. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem athugasemdir hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Umhverfissvið hefur verið með málið til skoðunar.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að eftirfarandi atriði verði skoðuð nánar:
-Tenging Hrísmóa við Bæjarbraut m.t.t. hljóðvistar og öryggis.
-Útfærsla á aðkomu að fjölbýlishúsum í Hrísmóum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði með ofangreindum óskum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Móa að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem athugasemdir hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til úrvinnslu á umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa að lokinni auglýsingu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
15. (967). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Móum. Tillagan er endurskoðun á því deiliskipulagi sem uppbygging svæðisins studdist við en bætt er við ýmsum ákvæðum sem lagar deiliskipulagið að þeim kröfum sem gerðar eru til deiliskipulagsáætlana í samtímanum. Deiliskipulag þetta nær yfir göturnar Lyngmóa, Kjarrmóa, Hrísmóa og Kirkjulund 2 og 4, saman mynda þær Móa. Móarnir afmarkast við Lyngmóa til norðvesturs og norðurs, við Hofstaðabraut til austurs og við göturnar Hrísmóa og Kirkjulund til suðurs. Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan Hrísmóar verði lokuð framan við Hrísmóa 13 að vestanverðu og framan við Hrísmóa 3 að austanverðu. Ný tenging komi frá Bæjarbraut norðan við Garðatorg 2 og þar yrði aðkoma að Miðbæ og að Hrísmóum 1, 6, 8 og 10. Tillagan hefur verið forkynnt samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar og unnið hefur verið úr þeim ábendingum sem borist hafa. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á auglýsingu stendur. Tillaga skal auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
05
40. (2188). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varpandi tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Móum. Tillagan er endurskoðun á því deiliskipulagi sem uppbygging svæðisins studdist við en bætt er við ýmsum ákvæðum sem lagar deiliskipulagið að þeim kröfum sem gerðar eru til deiliskipulagsáætlana í samtímanum.
Deiliskipulag þetta nær yfir göturnar Lyngmóa, Kjarrmóa, Hrísmóa og Kirkjulund 2 og 4, saman mynda þær Móa. Móarnir afmarkast við Lyngmóa til norðvesturs og norðurs, við Hofstaðabraut til austurs og við göturnar Hrísmóa og Kirkjulund til suðurs.
Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan Hrísmóar verði lokuð framan við Hrísmóa 13 að vestanverðu og framan við Hrísmóa 3 að austanverðu. Ný tenging komi frá Bæjarbraut norðan við Garðatorg 2 og þar yrði aðkoma að Miðbæ og að Hrísmóum 1, 6, 8 og 10.
Tillagan hefur verið forkynnt samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar og unnið hefur verið úr þeim ábendingum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á auglýsingu stendur. Tillaga skal auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
15. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Móum. Tillagan er endurskoðun á því deiliskipulagi sem uppbygging svæðisins studdist við en bætt er við ýmsum ákvæðum sem lagar deiliskipulagið að þeim kröfum sem gerðar eru til deiliskipulagsáætlana í samtímanum.
Deiliskipulag þetta nær yfir göturnar Lyngmóa, Kjarrmóa, Hrísmóa og Kirkjulund 2 og 4, saman mynda þær Móa. Móarnir afmarkast við Lyngmóa til norðvesturs og norðurs, við Hofstaðabraut til austurs og við göturnar Hrísmóa og Kirkjulund til suðurs.
Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan Hrísmóar verði lokuð framan við Hrísmóa 13 að vestanverðu og framan við Hrísmóa 3 að austanverðu. Ný tenging komi frá Bæjarbraut norðan við Garðatorg 2 og þar yrði aðkoma að Miðbæ og að Hrísmóum 1, 6, 8 og 10.
Tillagan hefur verið forkynnt samhliða tilllögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar og unnið hefur verið úr þeim ábendingum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á auglýsingu stendur. Tillaga skal auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
13. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi Móa og tengslum þess við tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa sem vísað hefur verið til forkynningar. Tillagan tekur nú mið af útfærslu á vöruaðkomu að Garðatorgi 1 frá Hrísmóum, sem skipulagsnefnd óskaði eftir að yrði mótuð nánar. Jóhanna Helgadóttir arkitekt hjá Nordic arkitektum gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir útfærsluna og skal hún kynnt á almennum kynningarfundi sem verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 27. maí.
Bæjarstjórn Garðabæjar
09
7. (959). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi Móa ásamt skýrslu Eflu um umferðarmál innan svæðisins. Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan Hrísmóar verði lokuð framan við Hrísmóa 13 að vestanverðu og framan við Hrísmóa 3 að austanverðu. Ný tenging komi frá Bæjarbraut norðan við Garðatorg 2 og þar yrði aðkoma að Miðbæ og að Hrísmóum 1, 6, 8 og 10. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur og er stefnt að því að hann verði haldinn í maímánuði. Skipulagsnefnd fól umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að útfæra vöruaðkomu norðan við Garðatorg 1 með ítarlegri hætti en tillagan gerir ráð fyrir og með áherslu á öryggi vegfarenda.
Bæjarráð Garðabæjar
10
18. (2166). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi Móa ásamt skýrslu Eflu um umferðarmál innan svæðisins. Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan Hrísmóar verði lokuð framan við Hrísmóa 13 að vestanverðu og framan við Hrísmóa 3 að austanverðu. Ný tenging komi frá Bæjarbraut norðan við Garðatorg 2 og þar yrði aðkoma að Miðbæ og að Hrísmóum 1, 6, 8 og 10.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur og er stefnt að því að hann verði haldinn í maímánuði.
Skipulagsnefnd fól umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að útfæra vöruaðkomu norðan við Garðatorg 1 með ítarlegri hætti en tillagan gerir ráð fyrir og með áherslu á öryggi vegfarenda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
8. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa ásamt skýrslu Eflu um umferðarmál innan svæðisins. Jóhanna Helgadóttir arkitekt hjá Nordic-arkitektum og Elín Rita Sveinbjörnsdóttir hjá Eflu gerðu grein fyrir framlögðum gögnum. Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan Hrísmóar verði lokuð framan við Hrísmóa 13 að vestanverðu og framan við Hrísmóa 3 að austanverðu. Ný tenging komi frá Bæjarbraut norðan við Garðatorg 2 og þar yrði aðkoma að Miðbæ og að Hrísmóum 1, 6, 8 og 10.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur og er stefnt að því að hann verði haldinn miðvikudaginn 21.maí nk.
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að útfæra vöruaðkomu norðan við Garðatorg 1 með ítarlegri hætti en tillagan gerir ráð fyrir og með áherslu á öryggi vegfarenda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
6. fundur
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic arkitektum gerði grein fyrir valkostum varðandi umferðarskipulag í Móum og fyrirkomulag bílageymsla í Kjarrmóum.
Skipulagsráðgjafa falið að fullvinna tillögu sem stefnt verði að að forkynna samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Miðbæjar sem eru í mótun.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
9. fundur
Elín Rita Sveinbjörnsdóttir hjá Eflu og Bjarki Eysteinsson hjá Heimum hf gerðu grein fyrir niðurstöðu valkostagreiningar vegna aðkomu að austanverðu að húsum við Garðatorg og tengsl við umferð um Hrísmóa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
13. fundur
Bergdís Bjarnadóttir arkitekt hjá Nordic arkitektum og Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerðu grein fyrir mótun tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Móa og greiningu á umferðaröryggi.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum sem borist hafa. Einnig lögð fram fundargerð kynningarfundar sem haldinn var 9.mars sl.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
16
3. (918). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag fyrir Móahverfi. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Að lokinni kynningu skal deiliskipulagstillagan lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.“ (Mál nr.1405080)
Bæjarráð Garðabæjar
17
7. (2060). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag fyrir Móahverfi. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Skal kynningin auglýst með áberandi hætti. Að lokinni kynningu skal deiliskipulagstillagan lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
2. fundur
Bergdís Bjarnadóttir og Pála Ríkharðsdóttir hjá Nordic arkitektum kynntu drög að deiliskipulagi Móa.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Boða skal til kynningarfundar meðan á forkynningu stendur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
19
12. fundur
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi Móa (Hrísmóa, Lyngmóa og Kjarrmóa) sem unnin voru árið 2020. Vegna heimsfaraldurs var málinu frestað þar sem til stóð að halda íbúafund í tengslum við forkynningu tillögunnar.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins og markmiðum þess.
Skipulagsnefnd vísar málinu til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
20
10. fundur
Sólveig Helga Jóhannsdóttir kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir Móa. Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
2. fundur
Lögð fram drög að deiliskipulagi Móa sem nær til fullbyggðs svæðis í Kjarrmóum og Lyngmóum sem Arkitektastofan Arkþing vinnur að. Þar sem að deiliskipulag var samþykkt í bæjarstjórn áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildið árið 1987 telst deiliskipulag á svæðinu ekki í gildi og því hefur verið ákveðið að vinna nýja tillögu.
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
22
11. fundur
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir stöðu vinnu við gerð deiliskipulags Kjarrmóa.
Skipulagsstjóri leggur til að skipulagssvæðið verði stækkað sem nemur Lyngmóum og Hrísmóum og verði nefnt deiliskipulag Móa.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra.