Beint í efni

Vetrarmýri - Dsk.br. - Skólalóð

Málsnúmer 2510094

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

14. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu vinnu við mótun deiliskipulags fyrir grunnskóla við rætur Hnoðraholts.

Vísað til áframhaldandi mótunar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Skipulagsstjóri greindi nýrri nefnd frá þeirri frumvinnu sem hefur átt sér stað við mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir skólalóð í Vetrarmýri við rætur Hnoðraholts.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði, fræðslu-og frístundasviði og ráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir frumskoðun á fyrirhugaðri grunnskólalóð við rætur Hnoðraholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Formaður skipulagsnefndar leggur til að umhverfissviði verði falið að móta tillögu að deiliskipulagi skólalóðar, á því svæði sem aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 gerir ráð fyrir landnotkunarreit (4.07 S) fyrir grunnskóla. Það deiliskipulag verði sett fram sem breyting deiliskipulagsins Vetrarmýri-miðsvæði.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu formanns.