Beint í efni

14. fundur

08.10.2026
Skipulagsnefnd Garðabæjar

14. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

08.10.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ásgeir Sigurður Ágústsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Agla Eir Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Einar Þór Einarsson - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2604407

01

Byggðir - Deiliskipulag

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Byggðir.

Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2604408

02

Mýrar - Deiliskipulag

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Mýrar.

Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2610010

03

Uppbygging útivistarstígs í Flatahrauni og grisjun skógar, innan fólkvangsins Urriðakotshrauns - Framkvæmdarleyfi

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi til Garðabæjar vegna uppbyggingar nýs útivistarstígs og stofnstígs í gegnum Flatahraun í Urriðakotshrauni og grisjun skógar á því svæði. Framlögð gögn eru í samræmi við Deiliskipulag Urriðavatnsdala sem samþykkt var árið 2023.

Skipulagsnefnd vísar umsókn til kynningar í umhverfisnefnd.

Málsnúmer 2605395

04

Eskiás - Bílastæði - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn húsfélaga í Eskiási um hugsanlega fjölgun bílastæða í götu og innan lóða á kostnað gróðurbeða.

Skipulagsnefnd mælir ekki með því að ráðist yrði í breytingu deiliskipulags með útfellingu gróðurbeða en beinir því til umhverfissviðs að skoða breytingar á gróðurbeðum í götu sem kalli ekki á deiliskipulagsbreytingu með það fyrir augum að fjölga bílastæðum.

Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að móta tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda þar sem horft yrði til þess að fjölga bílastæðum svæðinu.


Málsnúmer 2306521

05

Stórás - breyting á deiliskipulagi

Skipulagsnefnd mælist til þess að tillagan verði hluti af tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda þar sem skoðuð verður möguleg fjölgun bílastæða í nágrenni við Eskiás.

Málsnúmer 2610041

06

Akrar - Arnarland - farsímasendir - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Fyrirspurn vísað til umhverfissviðs. Leita skal umsagnar Vegagerðarinnar og skoðað hvort gera megi ráð fyrir staðsetningu farsímasendis í tillögu að deiliskipulagi Arnarnesvegar sem er í mótun.

Málsnúmer 2607139

07

Skeiðakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir nýtingu á gluggalausum kjallararýmum og útitröppu að Skeiðakri 2 að lokinni grenndarkynningu.

Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 2605038

08

Kaldakur 6 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi til að breyta gluggum á 2 hliðum húss, setja skyggni yfir glugga á sömu hliðum ásamt að klæða hluta veggja með álgrind, sorpskýli stækkað. Að öðru leyti er hús óbreytt, stærðir breytast ekki.

Umsókn kallar á breytingu deiliskipulags Akra sem skipulagsnefnd metur sem óverulega breytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Kaldakurs 3, 4, 5, 7 og 8 sem og Hvannakurs 5 og 7. Í samræmi við 3. mg. 44. gr. sömu laga er skipulagsstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni á uppdrátt lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytingartillöguna.

Málsnúmer 2606595

09

Bæjargil 106 -116 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Bæjargili 106-116 um mögulegar breytingar á lóðarmörkum að Hnoðraholtsbraut.

Fyrirspurn vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.

Málsnúmer 2609207

10

Brekkubyggð 50 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eigenda Brekkubyggðar 50 um hugmynd að viðbyggingu. Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá ráðgjafa sem vinnur að endurskoðun deiliskipulags Byggða.

Málsnúmer 2606044

11

Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 2608097

12

Þorraholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Skipulagsnefnd telur að útfærslan sem lögð er til í fyrirspurn muni draga úr öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.

Að athuguðu máli koma til greina breytingar á útfærslunni sem geta bætt hana t.d. með því að fella niður göngustíg frá innkeyrslu að Vetrarbraut eða með útfærslu á miðeyju í innkeyrslu. Nefndin óskar eftir því að tillagan verði útfærð betur með öryggissjónarmið í huga og að henni fylgi úttekt samgönguverkfærðinga.

Málsnúmer 2610057

13

Vorbraut 8-12 - Deiliskipulag

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til svæðis í götu norðan við fjölbýlishúsalóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12. Gert er ráð fyrir lóð fyrir djúpgáma við götu þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum samhliða götu. Tillagan gerir ráð fyrir því að tvö bílastæði verði innan lóðar fyrir þau stæði sem víkja við götu.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar 9, 11, 13, 14 og 15.

Málsnúmer 2510094

14

Vetrarmýri - Dsk.br. - Skólalóð

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu vinnu við mótun deiliskipulags fyrir grunnskóla við rætur Hnoðraholts.

Vísað til áframhaldandi mótunar.

Málsnúmer 2610056

15

Vetrarbraut 11 og 13. Dsk br

Lögð fram drög að tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem nær til lóðarinnar Vetrarbraut 11-13.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.