Beint í efni

Eskiás - Bílastæði - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Málsnúmer 2605395

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

14. fundur

Lögð fram fyrirspurn húsfélaga í Eskiási um hugsanlega fjölgun bílastæða í götu og innan lóða á kostnað gróðurbeða.

Skipulagsnefnd mælir ekki með því að ráðist yrði í breytingu deiliskipulags með útfellingu gróðurbeða en beinir því til umhverfissviðs að skoða breytingar á gróðurbeðum í götu sem kalli ekki á deiliskipulagsbreytingu með það fyrir augum að fjölga bílastæðum.

Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að móta tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda þar sem horft yrði til þess að fjölga bílastæðum svæðinu.


Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

12. fundur

Lögð fram fyrirspurn húsfélaga í Eskiási um hugsanlega fjölgun bílastæða í götu og innan lóða á kostnað gróðurbeða.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn íbúa í Eskiási um útfærslu bílastæða.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.