Beint í efni

12. fundur

10.09.2026
Skipulagsnefnd Garðabæjar

12. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

10.09.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ásgeir Sigurður Ágústsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Agla Eir Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varamaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

HEB kom inn á fund undir 9.fundarlið.

Dagskrá

Málsnúmer 2606437

01

Landakot II - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eigenda Landakots II er varðar hugmynd um stækkun lóðar til suðurs og fjölgun íbúða á lóð úr þremur í fjórar í deiliskipulagi. Ekki er fyrirhugað að auka byggingarmagn á lóðinni en hugmyndin gerir ráð fyrir pöllum og stigum við húshliðar. Húsið er fyrrverandi útihús á jörðinni Landakoti en í því er ein samþykkt íbúð, 76 m2 og tvær geymslur, 198 og 148 m2. Á lóð Landakots 1A og 1B eru tvær íbúðir.

Landakot er innan deiliskipulagssvæðis Landakots-og Deildar (Hólmatún) sem var samþykkt 1998. Deiliskipulagsbreyting tók gildi að loknu deiliskipulagsferli í júní árið 2023 og veitir sú breyting heimild til þess að samþykkja allt að 3 íbúðir á lóð Landakots II. Fjölgun um eina íbúð er því ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stækkun lóðar um 10 metra til suðurs og að íbúðum fjölgi um eina eins og fram kemur í fyrirspurn en lækka skal viðmiðunar nýtingarhlutfall sem nemur þeirri stækkun lóðar þar sem að grunnflötur húss er óbreyttur. Nefndin gerir ekki athugasemd við að gert verði ráð fyrir útipöllum og útitröppun við og utan á nústandandi húsi. Hugmyndirnar kalla á breytingu á gildandi deiliskipulagi sem sækja þarf um. Samkomulag um kaup á landi þarf að liggja fyrir áður en hægt verður að taka fyrir breytingartillögu.

Málsnúmer 2604570

02

Hátún 5B - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Lögð fram beiðni lóðarhafa að Hátúni 5B um staðsetningu 15 m2 smáhýsis á lóð sem yrði staðsett við lóðarmörk að norðanverðu að opnu svæði í eigu Garðabæjar og lóðarmörk að austanverðu að Hátúni 7A. Samþykki lóðarhafa að Hátúni 7A liggur fyrir. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir hönd Garðabæjar staðsetningu smáhýsis sem er staðsett 0,5 metra frá lóðarmörkum að opnu svæði. Hæð smáhýsis skal ekki vera hærra en 2,5 m og því í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um smáhýsi sem eru undanþegin byggingarleyfi. Runnagróður skal koma á milli smáhýsis og lóðarmarka.

Málsnúmer 2410234

03

Hátún 7A - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Lögð fram beiðni lóðarhafa að Hátúni 7A um staðsetningu 15 m2 smáhýsis á lóð sem yrði staðsett við lóðarmörk að norðanverðu að opnu svæði í eigu Garðabæjar og lóðarmörk að vestanverðu að Hátúni 5B. Samþykki lóðarhafa að Hátúni 5B liggur fyrir. Einnig er óskað eftir því að reisa 1,2 m háa girðingu á lóðarmörkum að opnu svæði. Hæð girðingar er í samræmi við samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar og gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við hana. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir hönd Garðabæjar staðsetningu smáhýsis sem er staðsett 0,5 metra frá lóðarmörkum að opnu svæði. Hæð smáhýsis er samkvæmt teikningu 2,5 m og því í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um smáhýsi sem eru undanþegin byggingarleyfi. Runnagróður skal koma á milli smáhýsis og lóðarmarka.

Málsnúmer 2603543

04

Olís Hafnarfjarðarvegi - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram umsókn Olís um breytingar á deiliskipulagi. Einnig lögð fram greinargerð þar sem sett er fram framtíðarsýn Olís fyrir bensínstöðina og nágrenni hennar þar sem settar eru fram hugmyndir um nýtingu lóðarinnar.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.



Málsnúmer 2602060

05

Stöðuleyfi fyrir gufubaðshús á Álftanesi - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir saunahús. Sótt er um leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við Haukshús við Helguvík.

Skipulagsnefnd telur ekki tímabært að veita stöðuleyfi fyrir saunahús við Haukshús þar sem að ekki liggur fyrir hvaða starfsemi mun verða við Haukshús á næstunni.

Málsnúmer 2605134

06

Iðnbúð 2 - matarvagn - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um stöðuleyfi fyrir matarvagn innan lóðarinnar Iðnbúð 2.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að veitt verði tímabundið stöðuleyfi innan lóðar á meðan að aðrir eigendur eigna innan lóðarinnar eru því samþykkir.

Málsnúmer 2607020

07

Hofslundur 11 - 19 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslengjunnar Hofslundur 11,13,15,17 og 19. Byggingarreitir stækka til suðurs sem veitir heimildir fyrir viðbyggingar, t.a.m. fyrir sólstofur. Innskot í byggingarreit að norðanverðu yrði fellt út til samræmingar við veitt byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2608097

08

Þorraholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um breikkun efri innkeyrslu að lóðinni Þorraholti 2-4 þar sem Hekla hf hefur byggt aðalbækistöð sína. Innkeyrsla breikkar samkvæmt tillögu úr 6 m í 11 m. Markmiðið er að draga úr hættu á árektstrum ökutækja og gera umferð þjálli.

Lagt fram Minnsblað verkfræðistofunnar Eflu dags. 28.8.2026.

Skipulagsnefnd vísar tillögu og umsögn til skoðunar hjá umhverfissviði.


Málsnúmer 2605395

09

Eskiás - Bílastæði - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn húsfélaga í Eskiási um hugsanlega fjölgun bílastæða í götu og innan lóða á kostnað gróðurbeða.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2306521

10

Stórás - breyting á deiliskipulagi

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir því að lokað verði fyrir tengingu Stóráss við Ásabraut á móts við Breiðás. Einnig lagt fram minnisblað Eflu sem mælir með lokun á þessum stað.

Tilgangur tillögunnar er að draga úr gegnumakstri um Stórás milli Ásabrautar að Lyngáss.

Tillagan gerir einnig ráð fyrir bílastæðum meðfram Stórási að norðanverðu.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2604479

11

Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Svalir út fyrir byggingarreit

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði í grein 5.2.5.6 í greinargerð deiliskipulagsins sem kveður á um svalir, gustlokanir og svalaganga. Óskað er eftir því að svalir geti náð út fyrir byggingarreit húshliða sem snúa að götu um 2 metra eins og kveðið er á um svalir sem snúa að inngarði.

Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu byggingar eru sýnd með skýringamyndum.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað svalir varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.

Málsnúmer 2605059

12

Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Sameining lóða - E, F, G og K

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingum sem ná til eftirfarandi lóða; E, F, G og K.

Helstu breytingar samkvæmt tillögunni yrðu:

Lóðir E og F eru sameinaðar í eina lóð (EF) og stækkaðar. Byggingarreitur neðanjarðar breytist - Göngutenging sem hlykkjast niður Landakur að Ósakri, sem áður lá milli lóða E og F, tilheyrir nú lóð EF. Yfirborð, umsjón og rekstur yrðu áfram á vegum Garðabæjar.

Lóðir G og K eru sameinaðar í eina lóð (GK) og stækkaðar. - Byggingarreitur ofanjarðar (áður á lóð K) breytist, speglast og liggur meðfram Nesakri. - Byggingarreitur neðanjarðar breytist. - Aðkoma að bílakjallara færist. Að öðru leyti haldast almennir skilmálar óbreyttir.

Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að lóð spennistöðvar við Landakur flyst til austur og er það í samræmi við tillögur gatnahönnuða og Veitna.

Lagt fram minnisblað frá Arkís og uppbyggingaraðila þar sem að nánar er gerð grein fyrir útfærslunni.

Skipulagsnefnd leggur áherslu á að gönguleiðin sem liggur á milli Landakurs og Ósakurs haldi þeim gæðum sem deiliskipulagið gerir ráð fyrir og þá t.d. með því að jarðvegsþekja ofan á bílageymslu verði ekki minni en 50 cm og geti borið öflugan gróður. Þar sem því verður viðkomið utan bílageymslu verði gert ráð fyrir hávaxnari gróðri meðfram gönguleið.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarlands í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.

Málsnúmer 2604410

13

Arnarland_umsókn um dsk.br. - Útveggir bílakjallara

Lögð fram umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði um hámarkshæð útveggja kjallara.

Skipulagsnefnd óskaði á síðasta fundi eftir ítarlegri gögnum sem myndu sýna hugmyndir uppbyggingaraðila og með hvaða hætti útveggir bílakjallara yrðu útfærðir.

Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu byggingaa eru sýndar með skýringamyndum.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað hæðir útveggja bílakjallara varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.

Málsnúmer 2607221

14

Arnarland - Umsókn um dsk.br. Djúpgámar - bílastæði fyrir hreyfihamlaða

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa sem snýr að staðsetningu djúpgáma í Arnarlandi fyrir lóð E og F og bílastæði fyrir hreyfihamlaðar. Lögð fram umsögn VSB verkfræðistofu.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2608428

15

Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum rammaáætllunar

Lagt fram erindi Háskólans á Akureyri varðandi álit sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.

Skipulagsnefnd telur að hugmyndir um vindorkuvirkjanir á Mofellsheði verði lítt sýnilegar úr byggð í Garðabæ þó svo að staðsetning þeirra sé innan við 30 km fjarlægð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við vindorkukostina.

Málsnúmer 2608004F

16

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 13

16.1 - 2608066 - Framkvæmdarleyfi - Arnarnesvegur einhalla hraðahindrun

Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi vegna framkvæmda á Arnarnesvegi vegna einhalla hraðahindrunar á göngubraut yfir Arnarnesveg. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.