Hofslundur 11 - 19 - Deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (983). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslengjunnar Hofslundur 11,13,15,17 og 19. Byggingarreitir stækka til suðurs sem veitir heimildir fyrir viðbyggingar, t.a.m. fyrir sólstofur. Innskot í byggingarreit að norðanverðu yrði fellt út til samræmingar við veitt byggingarleyfi. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Stella Stefánsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Stella Stefánsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
31. (2226). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslengjunnar Hofslundur 11,13,15,17 og 19. Byggingarreitir stækka til suðurs sem veitir heimildir fyrir viðbyggingar, t.a.m. fyrir sólstofur. Innskot í byggingarreit að norðanverðu yrði fellt út til samræmingar við veitt byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Stella Stefánsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslengjunnar Hofslundur 11,13,15,17 og 19. Byggingarreitir stækka til suðurs sem veitir heimildir fyrir viðbyggingar, t.a.m. fyrir sólstofur. Innskot í byggingarreit að norðanverðu yrði fellt út til samræmingar við veitt byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.