13. (983). fundur
13. (983). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.09.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Ýmir Örn Finnbogason - varabæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - bæjarfulltrúi
- Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Anna Ragnheiður Möller - forseti bæjarstjórnar
- Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Anna Ragnheiður Möller, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. september 2026 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/9 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 5.tl. skipulagsmál á Arnarnesi og lagði fram eftirfarandi bókun:
,,Garðabæjarlistinn ítrekar þá afstöðu sína að allir Garðbæingar eigi að geta notið strandlengjunnar við Arnarnes. Það er kominn tími til þess að gera þar útivistarstíg sem getur þjónað öllum bæjarbúum."
Almar Guðmundsson ræddi 5.tl. skipulagsmál á Arnarnesi og 6.tl. beiðni íbúa í Urriðaholti um afgirt hundasvæði.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/9 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 4.tl. innritun í leikskóla í Garðabæ 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna góðri stöðu innritunar í leikskóla Garðabæjar. Öllum börnum fæddum árið 2025 hefur nú verið boðin leikskólavist, sem er mikilvægur áfangi og staðfestir sterka stöðu leikskólaþjónustunnar í Garðabæ.
Þessi árangur er ekki sjálfgefinn í ört vaxandi sveitarfélagi heldur endurspeglar markvissa uppbyggingu leikskólanna, góða áætlanagerð og faglegt og metnaðarfullt starf starfsfólks Garðabæjar. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins færa starfsfólki leikskólanna og þeim starfsmönnum bæjarins sem annast skipulag og innritun sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf."
Björg Fenger ræddi 2.tl. úthlutun og sala lóða á Hnoðraholti, 3.tl. Vetrarmýri - sala og úthlutun lóða, 4.tl. innritun í leikskóla í Garðabæ 2026 og afgreiðslumál skipulagsnefndar úr fundargerð bæjarráðs.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl. innritun í leikskóla Garðabæjar 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Minnihluti bæjarstjórnar tekur undir bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um góða stöðu leikskólamála í Garðabæ. Breytingar sem gerðar voru í þverpólitískri sátt á síðasta kjörtímabili hafa skilað eftirtektarverðum árangri sem vert er að fagna."
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 4.tl. innritun í leikskóla Garðabæjar 2026 og afgreiðslumál skipulagsnefndar úr fundargerð bæjarráðs.
Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.
2.10 - 2605059 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Sameining lóða - E, F, G og K
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingum sem ná til eftirfarandi lóða; E, F, G og K.
Helstu breytingar samkvæmt tillögunni yrðu:
Lóðir E og F eru sameinaðar í eina lóð (EF) og stækkaðar. Byggingarreitur neðanjarðar breytist - Göngutenging sem hlykkjast niður Landakur að Ósakri, sem áður lá milli lóða E og F, tilheyrir nú lóð EF. Yfirborð, umsjón og rekstur yrðu áfram á vegum Garðabæjar.
Lóðir G og K eru sameinaðar í eina lóð (GK) og stækkaðar. - Byggingarreitur ofanjarðar (áður á lóð K) breytist, speglast og liggur meðfram Nesakri. - Byggingarreitur neðanjarðar breytist. - Aðkoma að bílakjallara færist. Að öðru leyti haldast almennir skilmálar óbreyttir.
Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að lóð spennistöðvar við Landakur flyst til austur og er það í samræmi við tillögur gatnahönnuða og Veitna.
Lagt fram minnisblað frá Arkís og uppbyggingaraðila þar sem að nánar er gerð grein fyrir útfærslunni.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að gönguleiðin sem liggur á milli Landakurs og Ósakurs haldi þeim gæðum sem deiliskipulagið gerir ráð fyrir og þá t.d. með því að jarðvegsþekja ofan á bílageymslu verði ekki minni en 50 cm og geti borið öflugan gróður. Þar sem því verður viðkomið utan bílageymslu verði gert ráð fyrir hávaxnari gróðri meðfram gönguleið.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarlands í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykki afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingum sem ná til eftirfarandi lóða; E, F, G og K. Helstu breytingar samkvæmt tillögunni yrðu: Lóðir E og F eru sameinaðar í eina lóð (EF) og stækkaðar. Byggingarreitur neðanjarðar breytist - Göngutenging sem hlykkjast niður Landakur að Ósakri, sem áður lá milli lóða E og F, tilheyrir nú lóð EF. Yfirborð, umsjón og rekstur yrðu áfram á vegum Garðabæjar. Lóðir G og K eru sameinaðar í eina lóð (GK) og stækkaðar. - Byggingarreitur ofanjarðar (áður á lóð K) breytist, speglast og liggur meðfram Nesakri. - Byggingarreitur neðanjarðar breytist. - Aðkoma að bílakjallara færist. Að öðru leyti haldast almennir skilmálar óbreyttir. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að lóð spennistöðvar við Landakur flyst til austur og er það í samræmi við tillögur gatnahönnuða og Veitna. Lagt fram minnisblað frá Arkís og uppbyggingaraðila þar sem að nánar er gerð grein fyrir útfærslunni. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að gönguleiðin sem liggur á milli Landakurs og Ósakurs haldi þeim gæðum sem deiliskipulagið gerir ráð fyrir og þá t.d. með því að jarðvegsþekja ofan á bílageymslu verði ekki minni en 50 cm og geti borið öflugan gróður. Þar sem því verður viðkomið utan bílageymslu verði gert ráð fyrir hávaxnari gróðri meðfram gönguleið. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarlands í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
2.11 - 2604410 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Arnarland_umsókn um dsk.br. - Útveggir bílakjallara
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði um hámarkshæð útveggja kjallara.
Skipulagsnefnd óskaði eftir ítarlegri gögnum sem myndu sýna hugmyndir uppbyggingaraðila og með hvaða hætti útveggir bílakjallara yrðu útfærðir.
Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu bygginga eru sýndar með skýringamyndum.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað hæðir útveggja bílakjallara varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði um hámarkshæð útveggja kjallara. Skipulagsnefnd óskaði eftir ítarlegri gögnum sem myndu sýna hugmyndir uppbyggingaraðila og með hvaða hætti útveggir bílakjallara yrðu útfærðir. Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu bygginga eru sýndar með skýringamyndum. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað hæðir útveggja bílakjallara varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.
2.12 - 2608428 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum rammaáætlunar
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi
erindi Háskólans á Akureyri um álit sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.
Skipulagsnefnd telur að hugmyndir um vindorkuvirkjanir á Mosfellsheiði verði lítt sýnilegar úr byggð í Garðabæ þó svo að staðsetning þeirra sé innan við 30 km fjarlægð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerði ekki athugasemd við vindorkukostina.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi erindi Háskólans á Akureyri um álit sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar. Skipulagsnefnd telur að hugmyndir um vindorkuvirkjanir á Mosfellsheiði verði lítt sýnilegar úr byggð í Garðabæ þó svo að staðsetning þeirra sé innan við 30 km fjarlægð. Skipulagsnefnd Garðabæjar gerði ekki athugasemd við vindorkukostina.
2.8 - 2604479 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Svalir út fyrir byggingarreit
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði í grein 5.2.5.6 í greinargerð deiliskipulagsins sem kveður á um svalir, gustlokanir og svalaganga. Óskað er eftir því að svalir geti náð út fyrir byggingarreit húshliða sem snúa að götu um 2 metra eins og kveðið er á um svalir sem snúa að inngarði.
Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu byggingar eru sýnd með skýringamyndum.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað svalir varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði í grein 5.2.5.6 í greinargerð deiliskipulagsins sem kveður á um svalir, gustlokanir og svalaganga. Óskað er eftir því að svalir geti náð út fyrir byggingarreit húshliða sem snúa að götu um 2 metra eins og kveðið er á um svalir sem snúa að inngarði. Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu byggingar eru sýnd með skýringamyndum. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað svalir varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.
2.9 - 2607020 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hofslundur 11-19 - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslengjunnar Hofslundur 11,13,15,17 og 19. Byggingarreitir stækka til suðurs sem veitir heimildir fyrir viðbyggingar, t.a.m. fyrir sólstofur. Innskot í byggingarreit að norðanverðu yrði fellt út til samræmingar við veitt byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Stella Stefánsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslengjunnar Hofslundur 11,13,15,17 og 19. Byggingarreitir stækka til suðurs sem veitir heimildir fyrir viðbyggingar, t.a.m. fyrir sólstofur. Innskot í byggingarreit að norðanverðu yrði fellt út til samræmingar við veitt byggingarleyfi. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Stella Stefánsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Stella Stefánsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 10/9 ´26.
Birkir Guðlaugsson ræddi 2.tl. afreksstyrkir 2026 - seinni úthlutun, 3.tl. styrkumsókn vegna fótbolta fyrir alla Stjarnan Öspin 2026 til 2027 og 5.tl. forvarnarvika Garðabæjar 2026.
Hlynur Bæringsson ræddi 3.tl. styrkumsókn vegna fótbolta fyrir alla Stjarnan Öspin 2026 til 2027 og 1.tl. vinnuskóli Garðabæjar 2026.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 5.tl. forvarnarvika Garðabæjar 2026.
Almar Guðmundsson ræddi 5.tl. forvarnarvika Garðabæjar 2026.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 5.tl. forvarnarvika Garðabæjar 2026.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 5.tl. forvarnarvika Garðabæjar 2026.
Björg Fenger ræddi 5.tl. forvarnarvika Garðabæjar 2026.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 5.tl. forvarnarvika Garðabæjar 2026.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 9/9 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Sunnuhvoll, 2.tl. beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Krakkakot, 3.tl. beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi 5 ára deildar Sjálandsskóla, 4.tl. beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Akrar og 5.tl. bókun frá 630. fundi stjórnar SSH - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8/9 ´26.
Stella Stefánsdóttir ræddi 2.tl. tillaga um árlega bæjarhátíð í Garðabæ og 3.tl. gjöf á verki eftir Pétur Bjarnason.
Björg Fenger ræddi 3.tl. gjöf á verki eftir Pétur Bjarnason.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. tillaga um árlega bæjarhátíð í Garðabæ.
Stella Stefánsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. tillaga um árlega bæjarhátíð í Garðabæ.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi 3.tl. gjöf á verki eftir Pétur Bjarnason og 2.tl. tillaga um árlega bæjarhátíð í Garðabæ.
Hlynur Bæringsson ræddi 2.tl. tillaga um árlega bæjarhátíð í Garðabæ.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð skólanefndar frá 2/9 ´26.
Harpa Rós Gísladóttir ræddi 4.tl. skólabyrjun 2026-2027 - fjöldi nemenda og fleiri upplýsingar, 5. tl. þrepaskipt skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Garðabæjar og 1.tl. starfsemi Tónlistarskóla Garðabæjar 2026-2027.
Kjartan Atli Kjartansson ræddi fundargerðina.
Almar Guðmundsson ræddi fundargerðina.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð umhverfisnefndar frá 9/9 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl. evrópsk samgönguvika 2026.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð öldungaráðs frá 10/9 ´26.
Harpa Rós Gísladóttir ræddi 1.tl. kynning á félagsstarfi eldra fólks í Garðabæ og 3.tl. spretthópur um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Fundargerð heilbrigðiseftirlits frá 2/9 ´26.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. verkefni sveitarfélaga við niðurlagningu heilbrigðisnefnda.
Fundargerðin er lögð fram.
13
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 24/8 og 11/9 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi fundargerð 24. ágúst 2026, 1.tl. kjör formanns og varaformanns í samræmi við III. kafla 4.gr. stofnsamnings eignaraðila frá 1. janúar 2007 og 5.tl. forsendur fjárhagsáætlunar 2027-2031 kynnt og fundargerð 11. september 2026, 1.tl. drög að fjárhagsáætlun 2027-2031 kynnt. Þá ræddi hann fundargerðirnar.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
15
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 28/8 ´26.
Birkir Guðlaugsson ræddi 1.tl. kynning á Strætó, 2.tl. verkefni næstu ára og 3.tl. stjórn og starfsáætlun.
Fundargerðin er lögð fram.
17
Aðgerðaráætlun Farsældarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi aðgerðaráætlun farsældarráðs.
18
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 - endurfjármögnun skammtímaláns.
Almar Guðmundsson gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 800.000.000. Um er að ræða skammtímalán með 9,85% vöxtum með gjalddaga 16. mars 2027.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 800.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar láninu - þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði - samþykkir bæjarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir ársins og endurfjármagna afborganir eldri lána sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Garðabæjar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.