Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 15/9 ´26.

Málsnúmer 2609024F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (983). fundur

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 4.tl. innritun í leikskóla í Garðabæ 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna góðri stöðu innritunar í leikskóla Garðabæjar. Öllum börnum fæddum árið 2025 hefur nú verið boðin leikskólavist, sem er mikilvægur áfangi og staðfestir sterka stöðu leikskólaþjónustunnar í Garðabæ.

Þessi árangur er ekki sjálfgefinn í ört vaxandi sveitarfélagi heldur endurspeglar markvissa uppbyggingu leikskólanna, góða áætlanagerð og faglegt og metnaðarfullt starf starfsfólks Garðabæjar. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins færa starfsfólki leikskólanna og þeim starfsmönnum bæjarins sem annast skipulag og innritun sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf."

Björg Fenger ræddi 2.tl. úthlutun og sala lóða á Hnoðraholti, 3.tl. Vetrarmýri - sala og úthlutun lóða, 4.tl. innritun í leikskóla í Garðabæ 2026 og afgreiðslumál skipulagsnefndar úr fundargerð bæjarráðs.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl. innritun í leikskóla Garðabæjar 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Minnihluti bæjarstjórnar tekur undir bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um góða stöðu leikskólamála í Garðabæ. Breytingar sem gerðar voru í þverpólitískri sátt á síðasta kjörtímabili hafa skilað eftirtektarverðum árangri sem vert er að fagna."

Kjartan Atli Kjartansson ræddi 4.tl. innritun í leikskóla Garðabæjar 2026 og afgreiðslumál skipulagsnefndar úr fundargerð bæjarráðs.

Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.