31. (2226). fundur
31. (2226). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.09.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Birkir Guðlaugsson - varamaður
- Ýmir Örn Finnbogason - varamaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - endurfjármögnun skammtímaláns.
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lagt er til að Garðabær taki nú 800.000.000 kr. lán, til endurfjármögnunar láns sem er með gjalddaga 16. september 2026.
Fyrir liggur lánsloforð Lánasjóðsins til Garðabæjar fyrir allt að kr. 1.350.000.000, en sú fjárhæð rúmast innan lántökuheimilda Garðabæjar skv. fjárhagsáætlun ársins 2026.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
02
Úthlutun og sala lóða á Hnoðraholti
Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi undir sölumeðferð sérbýlislóða á Hnoðraholti (háholti). Nánar tiltekið er um að ræða 26 einbýlishúsalóðir við Selholt og Stórholt og 1x5 húsa raðhúsalengju, 1x5 húsa raðhúsalengju og 3x6 húsa raðhúsalengjur við Haustbraut. Enn fremur er 18 einingum í raðhúsum við Sólholt sem gert er ráð fyrir að úthlutað verði til félaga sem starfrækt eru á grundvelli laga nr. 153/1998 um byggingarsamvinnufélög og hlotið hafa staðfestingu ráðherra.
Bæjarráð vísar málinu til frekari skoðunar bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, sem geri bæjarráði tillögu um fyrirkomulag við sölumeðferð lóðanna.
03
Vetrarmýri - sala og úthlutun lóða
Bæjarstjóri gerði grein fyrir mögulegri sölu byggingaréttar á byggingarlóðinni Vetrarbraut 17, sem fram gæti farið samhliða útboðsferli hjúkrunarheimilis að Vetrarbraut 19.
Bæjarráð vísar málinu til frekari skoðunar bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
04
Innritun í leikskóla Garðabæjar 2026
Guðbjörg Linda Udengard, sviðsstjóri fræðslu- og frístundar, gerði grein fyrir stöðu innritunar barna í leikskóla fyrir haustið 2026.
Innritun hefur gengið vel og hefur börnum sem fædd eru í nóvember og desember 2025 verið boðin leikskólapláss. Fyrir liggur að búið er að bjóða öllum börnum sem fædd eru á árinu 2025 leikskólavist.
Fylgiskjöl
05
Reykjanesbraut - Álftanesvegur. Vegtenging.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, gerði grein fyrir frumdragavinnu Vegagerðarinnar vegna útfærslu á Reykjanesbraut milli Álftanesvegar og Lækjargötu.
06
Bókun frá 630. fundi stjórnar SSH - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030
Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, gerði grein fyrir aðgerðaráætlun farsældarráðs.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
07
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi Notendaráð sveitarfélaga, dags. 08.09.26.
Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um notendaráð sveitarfélaga, sem er samráðshópur í málefnum fatlaðs fólks, öldrunarráðs og ungmennaráðs.
Fyrir liggur að Garðabær hefur skipað fulltrúa í öldungaráð, notendaráð í málefnum fatlaðs fólks og ungmennaráðs.
Fylgiskjöl
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Svalir út fyrir byggingarreit
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði í grein 5.2.5.6 í greinargerð deiliskipulagsins sem kveður á um svalir, gustlokanir og svalaganga. Óskað er eftir því að svalir geti náð út fyrir byggingarreit húshliða sem snúa að götu um 2 metra eins og kveðið er á um svalir sem snúa að inngarði.
Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu byggingar eru sýnd með skýringamyndum.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað svalir varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hofslundur 11-19 - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lunda sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslengjunnar Hofslundur 11,13,15,17 og 19. Byggingarreitir stækka til suðurs sem veitir heimildir fyrir viðbyggingar, t.a.m. fyrir sólstofur. Innskot í byggingarreit að norðanverðu yrði fellt út til samræmingar við veitt byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Stella Stefánsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Sameining lóða - E, F, G og K
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingum sem ná til eftirfarandi lóða; E, F, G og K.
Helstu breytingar samkvæmt tillögunni yrðu:
Lóðir E og F eru sameinaðar í eina lóð (EF) og stækkaðar. Byggingarreitur neðanjarðar breytist - Göngutenging sem hlykkjast niður Landakur að Ósakri, sem áður lá milli lóða E og F, tilheyrir nú lóð EF. Yfirborð, umsjón og rekstur yrðu áfram á vegum Garðabæjar.
Lóðir G og K eru sameinaðar í eina lóð (GK) og stækkaðar. - Byggingarreitur ofanjarðar (áður á lóð K) breytist, speglast og liggur meðfram Nesakri. - Byggingarreitur neðanjarðar breytist. - Aðkoma að bílakjallara færist. Að öðru leyti haldast almennir skilmálar óbreyttir.
Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að lóð spennistöðvar við Landakur flyst til austur og er það í samræmi við tillögur gatnahönnuða og Veitna.
Lagt fram minnisblað frá Arkís og uppbyggingaraðila þar sem að nánar er gerð grein fyrir útfærslunni.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að gönguleiðin sem liggur á milli Landakurs og Ósakurs haldi þeim gæðum sem deiliskipulagið gerir ráð fyrir og þá t.d. með því að jarðvegsþekja ofan á bílageymslu verði ekki minni en 50 cm og geti borið öflugan gróður. Þar sem því verður viðkomið utan bílageymslu verði gert ráð fyrir hávaxnari gróðri meðfram gönguleið.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarlands í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Arnarland_umsókn um dsk.br. - Útveggir bílakjallara
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi umsókn landeiganda og uppbyggingaraðila Arnarlands um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir breytingu á ákvæði um hámarkshæð útveggja kjallara.
Skipulagsnefnd óskaði eftir ítarlegri gögnum sem myndu sýna hugmyndir uppbyggingaraðila og með hvaða hætti útveggir bílakjallara yrðu útfærðir.
Lagt fram minnisblað arkitektastofunnar Arkís þar sem drög að útfærslu bygginga eru sýndar með skýringamyndum.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri beiti fráviki við útgáfu byggingarleyfis í samræmi 2. og 3. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 hvað hæðir útveggja bílakjallara varðar ef að útfærsla verður með þeim hætti eins og skýringarmyndir sýna.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum rammaáætlunar
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. september 2026 varðandi
erindi Háskólans á Akureyri um álit sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.
Skipulagsnefnd telur að hugmyndir um vindorkuvirkjanir á Mosfellsheiði verði lítt sýnilegar úr byggð í Garðabæ þó svo að staðsetning þeirra sé innan við 30 km fjarlægð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerði ekki athugasemd við vindorkukostina.
13
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi 18.09.26.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna fundahalds/kvöldverðar 18. september 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.
14
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi 19.09.26.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna brúðkaups 19. september 2026.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (BF, BG, ÝÖF, SS) gegn einu (ÞÞ) að gera ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.