Þorraholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Skipulagsnefnd telur að útfærslan sem lögð er til í fyrirspurn muni draga úr öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.
Að athuguðu máli koma til greina breytingar á útfærslunni sem geta bætt hana t.d. með því að fella niður göngustíg frá innkeyrslu að Vetrarbraut eða með útfærslu á miðeyju í innkeyrslu. Nefndin óskar eftir því að tillagan verði útfærð betur með öryggissjónarmið í huga og að henni fylgi úttekt samgönguverkfærðinga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um breikkun efri innkeyrslu að lóðinni Þorraholti 2-4 þar sem Hekla hf hefur byggt aðalbækistöð sína. Innkeyrsla breikkar samkvæmt tillögu úr 6 m í 11 m. Markmiðið er að draga úr hættu á árektstrum ökutækja og gera umferð þjálli.
Lagt fram Minnsblað verkfræðistofunnar Eflu dags. 28.8.2026.
Skipulagsnefnd vísar tillögu og umsögn til skoðunar hjá umhverfissviði.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
14. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um breikkun á innkeyrslu.
Fyrirspurn vísað til umsagnar gatnahönnuðar og umhverfissviðs.