Beint í efni

Landakot II - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Málsnúmer 2606437

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur

Lögð fram fyrirspurn eigenda Landakots II er varðar hugmynd um stækkun lóðar til suðurs og fjölgun íbúða á lóð úr þremur í fjórar í deiliskipulagi. Ekki er fyrirhugað að auka byggingarmagn á lóðinni en hugmyndin gerir ráð fyrir pöllum og stigum við húshliðar. Húsið er fyrrverandi útihús á jörðinni Landakoti en í því er ein samþykkt íbúð, 76 m2 og tvær geymslur, 198 og 148 m2. Á lóð Landakots 1A og 1B eru tvær íbúðir.

Landakot er innan deiliskipulagssvæðis Landakots-og Deildar (Hólmatún) sem var samþykkt 1998. Deiliskipulagsbreyting tók gildi að loknu deiliskipulagsferli í júní árið 2023 og veitir sú breyting heimild til þess að samþykkja allt að 3 íbúðir á lóð Landakots II. Fjölgun um eina íbúð er því ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stækkun lóðar um 10 metra til suðurs og að íbúðum fjölgi um eina eins og fram kemur í fyrirspurn en lækka skal viðmiðunar nýtingarhlutfall sem nemur þeirri stækkun lóðar þar sem að grunnflötur húss er óbreyttur. Nefndin gerir ekki athugasemd við að gert verði ráð fyrir útipöllum og útitröppun við og utan á nústandandi húsi. Hugmyndirnar kalla á breytingu á gildandi deiliskipulagi sem sækja þarf um. Samkomulag um kaup á landi þarf að liggja fyrir áður en hægt verður að taka fyrir breytingartillögu.