Vorbraut 8-12 - Deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (985). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til svæðis í götu norðan við fjölbýlishúsalóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12. Gert er ráð fyrir lóð fyrir djúpgáma við götu þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum samhliða götu. Tillagan gerir ráð fyrir því að tvö bílastæði verði innan lóðar fyrir þau stæði sem víkja við götu. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar 9, 11, 13, 14 og 15.
Bæjarráð Garðabæjar
02
35. (2230). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til svæðis í götu norðan við fjölbýlishúsalóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12. Gert er ráð fyrir lóð fyrir djúpgáma við götu þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum samhliða götu. Tillagan gerir ráð fyrir því að tvö bílastæði verði innan lóðar fyrir þau stæði sem víkja við götu.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar 9, 11, 13, 14 og 15.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til svæðis í götu norðan við fjölbýlishúsalóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12. Gert er ráð fyrir lóð fyrir djúpgáma við götu þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum samhliða götu. Tillagan gerir ráð fyrir því að tvö bílastæði verði innan lóðar fyrir þau stæði sem víkja við götu.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar 9, 11, 13, 14 og 15.