Spítalavegur 15 - Breyting á lóðamörkum
Málsnúmer 2609643
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
16. fundur
Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum lóðarinnar Spítalavegur 15 að Vífilsstöðum sem er sett fram á mæliblaði. Á þeirri lóð stendur tvílyft hús, byggt 1972 sem hefur verið nýtt undanfarin ár af grunnskóla Hjallastefnunnar. Vegna hönnunar Vífilsstaðavegar sem nú verður endurnýjaður er nauðsynlegt að skerða lóðina á tveimur stöðum sem nemur 313,5 m2 annarsvegar í norðausturhorni og 78,6 m2 hinsvegar í norðvesturhorni.
Deiliskipulag er ekki í gildi á Vífilsstöðum en breytingartillagan er í samræmi við rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands.
Skipulagsnefnd samþykkir breytt lóðarmörk í samræmi við 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.