Stekkholt 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
17. fundur
Lagðir fram að nýju uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsnefnd ítrekar fyrri bókun vegna málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
15. fundur
Lögð fram tillaga að aðaluppdráttum einbýlishússins að Stekkholti 22 sem gerir ráð fyrir því að svalir á suðurhlið stækki frá þegar samþykktum uppdrætti.
Skipulagsnefnd minnir á að á síðasta ári voru heimilaðar umtalsverðar breytingar á deiliskipulagi þar sem að byggingarreitur lóðarinnar færðist til suðausturs að opnu svæði auk þess sem byggingarmagn jókst á lóðinni. Skipulagsnefnd fellst ekki á að fjarlægð hússins frá fjölbýlishúsi við Vorbraut sé það lítil að það réttlæti þá breytingu sem óskað er eftir enda er sama fjarlægð þar og er í öðrum einbýlishúsum við Stekkholt og Útholt að fjölbýlishúsum við Vorbraut. Auk þess var dregið umstalsvert úr þeirri fjarlægð með því að fallast á að byggingarreitur flyttist til suðurs.
Skipulagsnefnd er því ekki reiðubúin að fallast á umbeðna útfærslu á svölum.
Bæjarráð Garðabæjar
04
43. (2144). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Nýju Þaki ehf., kt. 450318-1240, leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum að Stekkholti 22.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
07
13. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja byggingarleyfi fyrir Stekkholt 22. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.